fimmtudagurinn 10. maí 2012

Listamannaþing í Bolungarvík 12. maí

Úr leiksýningunni Skugga Sveinn hjá Litla leikklúbbnum á Ísafirði
Úr leiksýningunni Skugga Sveinn hjá Litla leikklúbbnum á Ísafirði

Aðalfundur og listamannaþing Félags vestfirskra listamanna verður haldið laugardaginn 12. maí kl.15 í félagsheimilinu í Bolungarvík.


Það verður mikið um að vera í félagsheimilinu allan daginn og fram á nótt, því hver viðburðurinn rekur annan. Aðalfundurinn er fyrstur á dagskrá og hefst kl. 15:00. Þetta er annar aðalfundur Félags vestfirskra listamanna, en félagið var stofnað fyrir ári síðan. Félagar eru nú þegar orðnir á annað hundrað talsins. Bæði félögum og verkefnum fer fjölgandi.


Lengri hefð er komin á listamannaþing. Það verður haldið í beinu framhaldi af aðalfundinum og er miðað við að það hefjist kl. 16:30. Þar munu fulltrúar listgreinanna dans, leiklist, myndlist og tónlist halda stutt erindi um stöðu og framtíð sinnar listgreinar. Eins munu þrír fulltrúar sýningar- og vinnustaða fyrir list vera með erindi. Auk allra þessara rammvestfirsku erinda verða góðir gestir með fyrirlestra. Það eru þau Vilborg Davíðsdóttir skáldkona og Sigurður Skúlason leikari.


Það er Sigurður Skúlason sem á næsta leik. Hann flytur einleikinn "Hvílíkt snilldarverk er maðurinn", verk eftir hann sjálfan og leikstjórann Benedikt Árnason. Mörgum er tamt að nota orðið "snilldarverk" þegar rætt er um þetta leikverk. Í lokin geta allir þinggestir fengið útrás í frjálsri danslist. Þá mun vestfirska stuðbandið Húsið á sléttunni leika fyrir dansi, dilli eða hoppi.


Ókeypis er á alla viðburði nema leiksýninguna. Þinggestir fá veglegan afslátt. Fríar kaffiveitingar verða í boði Félags vestfirskra listamanna. Milli málþings og leikrits verður boðið upp á matarmikla kjötsúpu gegn vægu gjaldi.

 

laugardagurinn 5. maí 2012

Menningarráð fer yfir umsóknir

Menningarráð Vestfjarða fer nú yfir umsóknir vegna úthlutunar fyrir árið 2012. Alls bárust 40 umsóknir um stofn- og rekstrarstyrki og var óskað eftir samtals rúmlega 81 milljón í styrki. Alls eru 11,4 milljónir til úthlutunar í þeim flokki og má eiga von á því að niðurstaða varðandi stofn- og rekstrarstyrki liggi fyrir um miðjan maí. Verður listi um styrkþega þá birtur hér á vefnum og á Facebook síðu Menningarráðsins. Búast má við niðurstöðu varðandi verkefnastyrki Menningarráðsins seint í maí.

þriðjudagurinn 3. apríl 2012

Umsóknarfrestur um verkefnastyrki til 10. apríl

Frestur til að senda umsókn til Menningarráðs Vestfjarða vegna verkefnastyrkja er til og með þriðjudeginum 10. apríl og er hægt að senda inn fram að miðnætti þann dag. Frestur til að skila umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki er hins vegar runninn út, en frestur til að senda slíkar umsóknir var til 30. mars. Umsóknarblað á word-formi er undir þessum tengli en undir hlekknum Styrkir er rafrænt umsóknarform.

fimmtudagurinn 22. mars 2012

Minnt á frest til að skila styrkumsóknum

Menningarráð Vestfjarða auglýsir nú eftir umsóknum um styrki í tveimur flokkum á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Fjórðungssamband Vestfirðinga vegna ársins 2012. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum og eru umsóknir og verkefni hverju sinni borin saman á samkeppnisgrundvelli.  

STOFN- OG REKSTRARSTYRKIR  

Nú auglýsir Menningarráð Vestfjarða í fyrsta skipti eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur vandlega undir tenglinum Styrkir hér til hægri, en til ráðstöfunar í stofn- og rekstrarstyrki eru samtals 11,4 milljónir að þessu sinni. Umsækjendur þurfa að skila ítarlegum upplýsingum um starfsemi sína, þar á meðal síðasta ársreikningi. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við úthlutun stofn- og rekstrarstyrkja 2012 verði horft sérstaklega til umsækjenda sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:   

# Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna- og menningararfs.
# Stuðla að nýsköpun í menningarstarfsemi.
# Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu.  

Umsóknarfrestur um stofn- og rekstrarstyrki er til og með 30. mars 2012.  

VERKEFNASTYRKIR

Jafnframt er auglýst eftir umsóknum um verkefnastyrki, en vakin er athygli á að á árinu 2012 verður aðeins auglýst eftir verkefnastyrkjum í þetta eina skipti. Hægt er að sækja um stuðning við hverskyns menningarverkefni, en til hliðsjónar eru úthlutunarreglur sem samþykktar eru við hverja úthlutun. Fylgiskjöl með umsóknum um verkefnastyrki eru afþökkuð, allt sem skiptir máli á að koma fram í umsókninni sjálfri. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við úthlutun verkefnastyrkja 2012 verði horft sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:  

# Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.
# Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.
# Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.
# Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.  

Umsóknarfrestur um verkefnastyrki er til og með 10. apríl 2012.   

Allar nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.

fimmtudagurinn 22. mars 2012

Kynningar og styrkjanámskeið gengu að óskum

Minnismerki um Gest Pálsson við Reykhóla
Minnismerki um Gest Pálsson við Reykhóla

Nú er að baki kynningarferð um Vestfirði þar sem Jón Jónsson menningarfulltrúi hélt fundi í vestfirskum þéttbýlisstöðum og kynnti starfsemi Menningarráðsins. Sérstaklega var fjallað um styrki ráðsins, en nú er auglýst eftir umsóknum í tveimur styrkflokkum. Frestur til að sækja um stofn- og rekstrarstyrki er til 30. mars, en frestur til að sækja um verkefnastyrki er til 10. apríl. Einnig voru á fundunum gefnar margvíslegar ábendingar um hvað leggja eigi áherslu á þegar styrkumsóknir eru gerðar. Alls mættu 62 á kynningarfundina, 26 konur og 36 karlar, en markmiðið í upphafi var að fá 60 þátttakendur. Best var mætingin á kynninguna á Þingeyri.

Undir þessum tengli má nálgast glærur sem notaðar voru á kynningunni.

Fyrri síða
1
234567585960Næsta síða
Síða 1 af 60
Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón