sunnudagurinn 28. febrúar 2010

Auglýst er eftir styrkumsóknum til Menningarráðs

Hrafnseyri - ljósm. Arnar S. Jónsson
Hrafnseyri - ljósm. Arnar S. Jónsson

Hér með er auglýst eftir styrkumsóknum vegna fyrri úthlutunar Menningarráðs Vestfjarða árið 2010. Bent er sérstaklega á nánari upplýsingar í úthlutunarreglum sem samþykktar hafa verið fyrir þessa úthlutun, en þær er að finna undir tenglinum Styrkir hér til hægri. Einnig gefur menningarfulltrúi Vestfjarða allar nánari upplýsingar í s. 891-7372 eða menning@vestfirdir.is

Samkvæmt ákvörðun stjórnar Menningarráðs Vestfjarða verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur við fyrri úthlutun ársins 2010:
   a. Eflingu samstarfs á sviði menningarmála á svæðinu
   b. Nýsköpun í verkefnum tengdum menningu
   c. Fjölgun atvinnutækifæra í tengslum við menningarstarf á svæðinu 
   d. Eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu og ferðatengdrar menningarstarfsemi

Umsóknarfrestur er til sunnudagsins 28. mars 2010.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón