miðvikudagurinn 7. nóvember 2007
Dagsetningar viðburða 2008
Nú er kominn sá tími að gott er að búið sé að ákveða dagsetningar fyrir atburði og uppákomur næsta sumar, þannig að auðveldara verði að markaðssetja. Þetta á ekki síst við um stóra árvissa viðburði sem nauðsynlegt er að ákveða með miklum fyrirvara. Í fréttatilkynningu frá Upplýsingamiðstöð Vestfjarða á Ísafirði segir að þrír aðilar hafi haft samband og beðið um yfirlit yfir stóra eða árvissa viðburði á Vestfjörðum á næsta ári, útgefendur Á ferð um Ísland, Big Map of Iceland og Símaskrárinnar. Skráning atburða í atburðadagatal hjá öllum þessum aðilum er ókeypis.
Upplýsingamiðstöðin á Ísafirði aðstoðar þá sem senda til hennar upplýsingar um viðburði við að koma þeim á framfæri. Á þessu stigi er fyrst og fremst verið að hugsa um nafn viðburðar, staðsetningu, dagsetningu, netfang eða símanúmer ábyrgðaraðila, vefsíðu ef við á og svo stutta lýsingu, bara eina eða tvær setningar. Þeim sem vilja vinna faglega að markaðssetningu og viðburðastjórnun er því bent á að senda upplýsingar sem allra fyrst í netfangið info@vestfirdir.is og að sjálfsögðu ættu þeir líka að senda afrit á menning@vestfirdir.is ef um menningarviðburð er að ræða. Þá getur Menningarráð og menningarfulltrúinn líka aðstoðað við útbreiðslu fagnaðarerindisins eftir því sem færi gefast.