þriðjudagurinn 16. febrúar 2010

Kirkjur á Vestfjörðum

Gufudalskirkja
Gufudalskirkja

Marsibil G. Kristjánsdóttir, bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar, opnar sýninguna Kirkjur á Vestfjörðum kl. 17 á föstudag í Safnaðarheimili Ísafjarðarkirkju og mun hún standa næstu tvær vikur. Um sölusýningu er að ræða. Boðið verður uppá léttar veitingar á opnuninni á föstudaginn. Allar myndirnar eru í grafík og eru unnar á þessu ári.

Í sýningunni Kirkjur á Vestfjörðum er brugðið upp mynd af fjölbreytileika þessara bygginga á Vestfjörðum. Mikill munur er t.d. á byggingastíl Ísafjarðarkirkju og Gufudalskirkju en báðar þessar kirkjur koma við sögu í sýningunni Kirkjur á Vestfjörðum. Á sýningunni eru myndir af alls tíu kirkjum af öllum Vestfjörðum. Stefnt er að því að sýningin fari á flakk um Vestfirði með vorinu. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Vestfjarða.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón