mánudagurinn 29. október 2007

Menningarfulltrúinn á ferðinni í Barðastrandarsýslum

Á Tálknafirði
Á Tálknafirði

Jón Jónsson, menningarfulltrúi Vestfjarða, verður á ferðinni á sunnanverðum Vestfjörðum næstu daga frá þriðjudeginum 30. október til fimmtudagsins 1. nóvember. Hann mun í ferðinni heimsækja sveitarfélögin, Reykhólahrepp, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhrepp, auk þess sem hann er tilbúinn til skrafs og ráðagerða við alla þá sem eftir því leita, hvort sem ræða á vítt og breitt um menningarmálin og möguleika á því sviði eða menn eru að spekúlera í styrkjum Menningarráðsins sem auglýstir hafa verið. Sláið á þráðinn í síma 891-7372 ef þið hafið áhuga á spjalli eða fundi.

Minnt er á að umsóknarfrestur um styrki frá Menningarráði er til föstudagsins 2. nóvember og allar nánari upplýsingar og umsóknareyðublað eru hér til hægri undir tenglinum Styrkir. 

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón