fimmtudagurinn 25. október 2007

Menningarhátíðin Veturnætur sett í dag

Á 17. júní á Ísafirði
Á 17. júní á Ísafirði
Menningarhátíðin Veturnætur á Ísafirði hefst í dag með friðargöngu frá Ísafjarðarkirkju að Silfurtorgi þar sem sungin verða vetrarljóð. Vestfirsku valkyrjurnar og Ólína Þorvarðardóttir munu setja Veturnætur. Einnig er á dagskránni í dag Sögusöngleikur KK og Einars Kárasonar í Edinborg, en dagskrána má nálgast í heild sinni á vefnum www.veturnaetur.is.  

Hausthátíðin Veturnætur var fyrst haldin fyrir 10 árum á Ísafirði og síðan endurvakin fyrir fjórum árum. Hún er jafnan haldin nálægt fyrsta vetrardegi. Hátíðin stendur í fjóra daga og á dagskránni eru m.a. tónleikar, myndlistarsýningar, húslestur og afmælisfögnuður í tilefni af stórafmæli Baldurs Geirmundssonar tónlistarmanns.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón