laugardagurinn 10. janúar 2009

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn - frestur til 1. feb.

Árið 2009 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum annars vegar ferðastyrkir og hins vegar styrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum og norrænum verkefnum. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar.


Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík og á skrifstofu Norræna félagsins í Stokkhólmi, Box 127 07, S-112 94 Stockholm. Umsóknareyðublöð er einnig að finna á vefslóðinni www.norden.se. Umsóknir skulu sendar á skrifstofu Norræna félagsins í Stokkhólmi.


Umsóknir skal stíla á stjórn Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins/Svensk-isländska samarbetsfonden. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2009 og gildir póststimpill. Styrkjunum verður úthlutað í lok mars.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón