þriðjudagurinn 26. febrúar 2008

Samkeppni um slagorð fyrir bókasöfn

Á bókasafni á Hólmavík - ljósm. Sögusmiðjan
Á bókasafni á Hólmavík - ljósm. Sögusmiðjan

Kynningarnefnd bókasafna efnir til samkeppni um slagorð til að nota í kynningarátaki fyrir bókasöfn. Slagorðið þarf að eiga við allar tegundir bókasafna, hvort sem um er að ræða almenningsbókasöfn, skólabókasöfn eða sérfræðisöfn. Því er ætlað að koma jákvæðum skilaboðum á framfæri um bókasöfn og þarf að vera stutt, grípandi og gott að muna. Veggspjald og kynningu á keppninni er hægt að nálgast á vefsíðunni www.bokasafn.is

Frestur til að skila inn hugmyndum er til 20. mars 2008. Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða veitir 100.000 króna verðlaun fyrir besta slagorðið. Verðlaunin verða veitt á degi bókarinnar, þann 23. apríl.
 
Sendið hugmyndir í tölvupósti á bokasafn@bokasafn.is eða merkt "verðlaunasamkeppni" á: Bæjarbókasafn Ölfuss, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón