sunnudagurinn 30. mars 2008

Stóra upplestrarkeppnin á Vestfjörðum

Framundan eru lokahátíðir Stóru upplestrarkeppninnar á Vestfjörðum, en þar keppa nemendur í 7. bekk Grunnskóla í upplestri. Lesið er úr skáldverki og ljóði og eru skáld keppninnar að þessu sinni Jón Sveinsson og Steinn Steinarr. Keppnin fer fram þriðjudaginn 1. apríl kl. 17:00 í Félagsheimilinu á Hólmavík, fimmtudaginn 3. apríl í Tálknafjarðarkirkju og föstudaginn 18. apríl kl. 20:00 í Hömrum á Ísafirði. Dómnefnd velur 3 bestu upplesarana og verðlaun eru veitt. Að keppninni standa Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn, í samvinnu við skólaskrifstofur, skóla og kennara um land allt.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón