sunnudagurinn 10. janúar 2010

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn - 1. febrúar

Árið 2010 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum og norrænum verkefnum. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar.


Um styrki þessa skal sótt á sérstökum vefeyðublöðum sem er að finna á vefslóðinni www.nordiskafonder.se.

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2010 og skal skila umsóknum rafrænt á vefnum. Styrkjunum verður úthlutað í lok mars.

 

sunnudagurinn 10. janúar 2010

Fornleifasjóður - frestur til 15. febrúar

Fornleifasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum skv. 24. gr. þjóðminjalaga nr. 107/2001. Veittir verða styrkir til verkefna sem stuðla að rannsóknum og varðveislu á fornleifum og forngripum. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2010. Á fjárlögum 2010 eru 19,1 milljónir króna til ráðstöfunar. Úthlutunarreglur sjóðsins nr. 73/2004 eru birtar í Stjórnartíðindum og á vef mennta-og menningarmálaráðuneytis, menntamalaraduneyti.is.


Umsóknir, í fjórum eintökum, sendist stjórn fornleifasjóðs, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

fimmtudagurinn 3. desember 2009

Vestfirsk verkefni fá styrki úr Þjóðhátíðarsjóði

Nokkur verkefni á Vestfjarðakjálkanum fá styrki úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 2010, en úthlutað var 1. desember að venju. Er þetta næstsíðasta starfsár sjóðsins, en umsóknarfrestur fyrir síðustu úthlutun rennur út í lok ágústmánaðar 2010. Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.  

Alls bárust 259 umsónir, en 65 fengu styrk, samtals að upphæð 33,9 milljónir. Verkefni sem tengjast Vestfjörðum eru eftirfarandi:  

Félag áhugamanna um bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum fær 1 milljón í styrk til að lagfæra hús í eigu Reykhólahrepp og setja upp safn báta, verkfæra og annarra muna sem tilheyra bátasmíði, ásamt því að endursmíða gamlan bát og hafa til sýnis á safninu.  

Melrakkasetur Íslands í Súðavík fær 600 þúsund til að hanna og setja upp sýningu um refaveiðimenn, eina elstu launuðu starfstétt Íslendinga.  

Þrísker ehf. fær 500 þúsund til að endurbyggja Hraðfrystihúsið í Flatey.  

Félag um Snjáfjallasetur fær 500 þúsund til að setja upp sýningar um Drangajökul þar sem gerð er m.a. grein fyrir leiðum yfir jökulinn, fyrr á tímum.

Háskóli Íslands og Vestfirðir á miðöldum fær 500 þúsund til að vernda og kynna menningarverðmæti sem komið hafa í ljós í Vatnsfirði í Ísafjarðardjúpi.

Sjóminjasafnið Ósvör í Bolungarvík fær 500 þúsund til að gera skinnklæði eins og notuð voru á áraskipum á árabátaöldinni.

Þá má nefna að Ólafsdalsfélagið fékk 1 milljón til að vinna að endurreisn Ólafsdals í Gilsfirði og tryggja staðnum sess sem framfarasetur á 21. öld.  

Allmargir styrkir fara til ríkisstofnanna, Þjóðminjasafns, Stofnunar Árna Magnússonar, Listasafns Íslands, Málvísindastofnunar Háskóla Íslands og fleiri aðila.

þriðjudagurinn 1. desember 2009

Formleg úthlutun í Hlunnindasafninu á Reykhólum

Seinni úthlutun Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2009 fer fram í Hlunnindasafninu á Reykhólum nú á föstudaginn 4. desember og hefst athöfnin kl. 16:00. Verða þar afhent vilyrði um styrki frá Menningarráði Vestfjarða, en alls fá 37 verkefni framlög að þessu sinni á bilinu 150 þúsund til 1 milljón, samtals að upphæð 18,5 milljón. Umsóknir sem bárust að þessu sinni voru 89 og var samtals beðið um 75 milljónir í verkefnastyrki.

Styrkirnir fara til margvíslegra verkefna sem sýna að sóknarhugur og bjartsýni eru ríkjandi í vestfirsku menningarlífi, þrátt fyrir þrengingar og niðurskurð á fjölmörgum sviðum í samfélaginu. Öllum styrkumsóknum sem bárust hefur verið svarað í tölvupósti á þau netföng sem gefin voru upp í umsóknum með niðurstöðu hvað varðar einstakar umsóknir. Heildarlisti um styrkt verkefni verður birtur á vef Menningarráðsins og sendur fjölmiðlum eftir athöfnina á Reykhólum. Menningarráð Vestfjarða mun næst auglýsa eftir umsóknum um styrki fljótlega á nýju ári.

Athöfnin er opin öllum og þeir sem standa í eldlínunni í menningarstarfi á Vestfjörðum og sveitarstjórnarmenn eru sérstaklega boðnir velkomnir. Á dagskrá eru erindi og afhending styrkja og í lokin á þessari formlegu athöfn verður boðið upp á léttar veitingar.

þriðjudagurinn 24. nóvember 2009

Frestur til að sækja um í Húsafriðunarsjóð til 1. desember

Frestur til að sækja um í Húsafriðunarsjóðu vegna ársins 2010 rennur út 1. desember. Á vefsíðu sjóðsins er að finna nánari upplýsingar og umsóknareyðublað. Tilvonandi umsækjendur eru hvattir til að kynna sér gögnin og hefjast handa við umsóknagerð í tæka tíð.

Samkvæmt heimasíðu Húsafriðunarsjóðs er hlutverk hans skilgreint í 17. gr. laga um húsafriðun (104/2001). Hlutverk Húsafriðunarsjóðs er að veita styrki til viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum og mannvirkjum. Heimilt er að veita styrki til viðhalds annarra húsa en friðaðra sem að dómi Húsafriðunarnefndar hafa menningarsögulegt eða listrænt gildi. Sjóðnum ber að stuðla að byggingarsögulegum rannsóknum og útgáfu rita um þær.

 

Hér má finna reglur um úthlutun úr Húsafriðunarsjóði.

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón