þriðjudagurinn 17. nóvember 2009

Vinna við styrkumsóknir í fullum gangi

Stjórn Menningarráðs Vestfjarða vinnur nú við að fara yfir og afgreiða styrkumsóknir sem bárust vegna seinni úthlutunar ráðsins á árinu 2009. Alls bárust 89 umsóknir um styrki að þessu sinni, jafn margar og við fyrri úthlutun ársins í vor. Beðið er um framlög að upphæð tæplega 75 milljónir til fjölbreyttra menningarverkefna, en heildarsamtala í fjárhagsáætlunum verkefnanna hljóðar upp á 436 milljónir. Það er því ljóst að það er mikill hugur í Vestfirðingum á menningarsviðinu og mörg verkefnin býsna viðamikil, þó auðvitað séu þau af öllum stærðum og gerðum. Til ráðstöfunar er 18,5 milljónir að þessu sinni.  

Úthlutun vilyrða fyrir styrkjum fer fram nálægt næstu mánaðarmótum, en þeir eru síðan að venju greiddir út í samræmi við framvindu verkefna. Menningarráð Vestfjarða styrkir aldrei verkefni um meira en 50% af fjárhagsáætlun eða kostnaðaryfirliti að verki loknu, þannig að áhrifin af styrkjunum eiga að vera mun meiri en upphæð þeirra segir til um. Frá upphafi hefur Menningarráðið lagt sérstaka áherslu á að stuðla að nýsköpun, gæðaþróun, samvinnu og fjölgun skapandi starfa í menningargeiranum á Vestfjörðum. Formaður Menningarráðs Vestfjarða er nú Leifur Ragnar Jónsson á Patrekfirði, en Gerður Eðvarsdóttir á Ísafirði er varaformaður.

mánudagurinn 9. nóvember 2009

Viðhorfskönnun um Menningarráð Vestfjarða

Styrkúthlutun í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í vor - ljósm. Ágúst Atlason
Styrkúthlutun í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í vor - ljósm. Ágúst Atlason

Háskólasetur Vestfjarða vinnur nú að úttekt á starfsemi Menningarráðs Vestfjarða og árangri sem styrkir þess hafa haft. Liður í þessari úttekt er almenn viðhorfskönnun á vefnum, en hún er bæði ætluð þeim sem koma beint að menningarmálum á Vestfjörðum og öðrum sem hafa áhuga á vestfirskum menningarmálum.

Könnunin er aðgengileg fram á miðnætti sunnudaginn 15. nóvember og er aðgengileg undir þessum tengli: http://www.hsvest.is/konnun_menningarrad/. Menningarráð hvetur fólk til að taka þátt og koma á framfæri viðhorfum sínum og skoðunum.

miðvikudagurinn 30. september 2009

Auglýst eftir styrkumsóknum - haust 2009

Menningarráð Vestfjarða hefur nú auglýst eftir styrkumsóknum vegna seinni úthlutunar á árinu 2009 til menningarverkefna á Vestfjörðum. Um er að ræða styrki til afmarkaðra menningarverkefna og eru umsóknir bornar saman á samkeppnisgrundvelli, þannig að fara þurfa saman áhugaverð verkefni og góðar umsóknir til að líkur séu á að styrkur fáist.

Menningarráð Vestfjarða hefur skilgreint ákveðna áhersluþætti við hverja úthlutun til þessa og við seinni úthlutun 2009 verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:

a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
c. Samstarf milli menningarstofnanna, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
d. Verkefni sem miða að því að ungt fólk komi í auknum mæli að listsköpun og menningarstarfi á Vestfjörðum.

Umsóknarfrestur er til föstudagsins 30. október og er rafrænt umsóknarblað, leiðbeiningar og úthlutunarreglur að finna hér á vef Menningarráðsins. Í úthlutunarreglum er skilgreint hvernig verkefni Menningarráðið styður og einnig má skoða eldri úthlutanir til að fá hugmynd um það. Allar nánari upplýsingar gefur menningarfulltrúi Vestfjarða, Jón Jónsson, í síma 891-7372 og netfanginu menning@vestfirdir.is.
miðvikudagurinn 30. september 2009

Auglýst eftir styrkumsóknum - haust 2009

Menningarráð Vestfjarða hefur nú auglýst eftir styrkumsóknum vegna seinni úthlutunar á árinu 2009 til menningarverkefna á Vestfjörðum. Um er að ræða styrki til afmarkaðra menningarverkefna og eru umsóknir bornar saman á samkeppnisgrundvelli, þannig að fara þurfa saman áhugaverð verkefni og góðar umsóknir til að líkur séu á að styrkur fáist.

Menningarráð Vestfjarða hefur skilgreint ákveðna áhersluþætti við hverja úthlutun til þessa og við seinni úthlutun 2009 verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:

a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
c. Samstarf milli menningarstofnanna, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
d. Verkefni sem miða að því að ungt fólk komi í auknum mæli að listsköpun og menningarstarfi á Vestfjörðum.

Umsóknarfrestur er til föstudagsins 30. október og er rafrænt umsóknarblað, leiðbeiningar og úthlutunarreglur að finna hér á vef Menningarráðsins. Allar nánari upplýsingar gefur menningarfulltrúi Vestfjarða, Jón Jónsson, í síma 891-7372 og netfanginu menning@vestfirdir.is.
fimmtudagurinn 17. september 2009

Auglýst eftir styrkumsóknum fljótlega

Framundan er fundur hjá Menningarráði Vestfjarða, mánudaginn 21. september. Þar verður m.a. gengið frá úthlutunarreglum vegna styrkja haustið 2009 og í framhaldinu verður auglýst eftir umsóknum síðar í sömu viku. Líklegt er að gefinn verði frestur í mánuð til að sækja um.  
Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón