miðvikudagurinn 9. september 2009

Styrkir Átaks til atvinnusköpunar til nýsköpunarverkefna

Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki Iðnaðarráðuneytisins undir yfirskriftinni Átak til atvinnusköpunar. Átak til atvinnusköpunar veitir styrki til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með verkefninu fyrir hönd iðnaðarráðuneytisins.


Styrkir úr Átakinu eru veittir tvisvar á ári og er næsti umsóknarfrestur 29. september næstkomandi. Umsóknir til Átaksins voru 230 vorið 2009. Þá var tæplega 44 milljónum úthlutað til 56 verkefna og voru styrkupphæðirnar frá 195.000 til 2.000.000 króna.

Nánar um Átak til atvinnusköpunar og umsóknareyðublað 

fimmtudagurinn 3. september 2009

Auglýst eftir umsóknum um starfslaun listamanna

Auglýst hefur verið eftir umsóknum um starfslaun listamanna sem úthlutað verður árið 2010, í samræmi við ákvæði laga nr. 57/2009 með áorðnum breytingum.

 Starfslaunin eru veitt úr sex sjóðum, þ.e.:

1.   launasjóði hönnuða,
2.   launasjóði myndlistarmanna,
3.   launasjóði rithöfunda,
4.   launasjóði sviðslistafólks,
5.   launasjóði tónlistarflytjenda,
6.   launasjóði tónskálda.

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á vef Stjórnarráðsins á vefslóðinni http://umsokn.stjr.is fram til  mánudagsins 19. október 2009. Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda (ekki kennitölu félags eða samtaka) og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu.

Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar. Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja Stjórn listamannalauna undir flipanum Umsóknir. Þar eru umsóknareyðublöðin. Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út. Með umsókn skal fylgja greinargerð um verkefni það sem liggur til grundvallar umsókninni ásamt upplýsingum um hve langan starfstíma er sótt um og rökstuðningi fyrir tímalengd.  Jafnframt skulu fylgja upplýsingar um náms- og starfsferil, verðlaun og viðurkenningar. Þessir þættir  skulu  að  jafnaði  liggja  til  grundvallar  ákvörðun  um úthlutun starfslauna.

Fylgigögnum með umsókn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Skrifstofu Stjórnar listamannalauna, Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík fyrir kl. 17:00 mánudaginn 19. október 2009. Athugið að hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun verður umsókn hans því aðeins tekin til umfjöllunar að hann hafi skilað Stjórn listamannalauna skýrslu um störf sín í samræmi við ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009 með áorðnum breytingum.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fást á vef Stjórnar listamannalauna www.listamannalaun.is eða á skrifstofunni í síma 562 6388. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 19. október 2009.

Menningarráð Vestfjarða hvetur vestfirska listamenn til að sækja um listamannalaun. Það eru aðeins þeir sem róa til fiskjar sem fá.
fimmtudagurinn 3. september 2009

Samráðsfundur menningarfulltrúa landshlutanna

Einn af reglulegum samráðsfundum menningarfulltrúa landshlutanna verður haldinn í Eyjafirði dagana 7.-8. september. Menningarfulltrúar landshlutanna hafa fundað reglulega frá 2007 þegar menningarráðum var komið á í öllum landshlutum og unnið saman að margvíslegum málefnum og er þetta annar fundur ársins. Meðal fundarefnis er framtíð menningarsamninga ríkis og sveitarfélaga, en staða flestra menningarráðanna er óviss og óljós frá og með næstu áramótum.

miðvikudagurinn 2. september 2009

Menningarfulltrúi fjallar um sókn í menningarmálum á Fjórðungsþingi

Fimmtugasta og fjórða Fjórðungsþing Vestfirðinga verður sett á Ísafirði kl. 10.30 föstudaginn 4. september næstkomandi.  Helstu umfjöllunarefni þingsins verða framtíðarsýn og sóknaráætlun fyrir Vestfirði, en í tilefni af 60 ára afmæli Fjórðungssambands Vestfirðinga verður þingið að þessu sinni með nokkrum hátíðarbrag, með sérstakri hátíðardagskrá eftir hádegi á föstudag.  


Þingið fer fram í Edinborgarhúsinu, auk þess sem nefndarstörf munu að einhverju leyti fara fram í Háskólasetri Vestfjarða.  Kristján L Möller, samgönguráðherra og Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga munu ávarpa þingið eftir hádegið á föstudag. Meðal fyrirlesara á þinginu eru Claire M. O‘Neill PhD og Dr Lorraine Gray en þær munu fjalla um gerð strandsvæðaskipulags og hvernig móta má nýja framtíðarsýn fyrir landsvæði. 

Þá mun Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi og formaður stýrihóps verkefnis um sóknaráætlun fyrir alla landshluta til eflingar atvinnulífs og lífsgæða til framtíðar fjalla um gerð sóknaráætlunar ríkisstjórnarinnar á laugardagsmorgun. Þá munu Aðalsteinn Óskarsson framkvæmdastjóri Fjórðungssambandsins og Þorgeir Pálsson framkvæmdastjóri AtVest fjalla um sóknaráætlun landshluta, Jón Páll Hreinsson forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða um sókn í ferðaþjónustu og Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða um sókn í menningarmálum.
 

Þá verður að venju hefðbundin dagskrá, afgreiðsla þingmála og fleira. Dagskrána má nálgast í heild á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga, www.fjordungssamband.is.
 

þriðjudagurinn 1. september 2009

Bólu Hjálmar á leið um landið

Stoppleikhópurinn er nú að hefja aftur sýningar á leikritinu um Bólu-Hjálmar en þetta er nýtt íslenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Bólu-HjálmarsSýningin hlaut Grímuverðlaunin fyrr á árinu. Verkið nefnist: "Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar" en það var frumsýnt 22 maí 2008 í Iðnó. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram bæði í grunnskólum og á hjúkrunarheimilum eldri borgara.

 

Bólu-Hjálmar er nafn sem við höfum öll heyrt. Grunnskólakrakkar vita sennilega flestir að hann var skáld. Þeir sem eldri eru kunna sum ljóðin hans og muna eftir honum af svipmikilli teikningu í gömlu Skólaljóðabókinni - „kallinn með hökuskeggið sem er svo grimmilegur til augnanna". Og þjóðin hampar honum ennþá sem einu af kraftmestu þjóðskáldum sínum fyrr og síðar. Hjálmar var skapmikill orðhákur sem oft kom sér í vandræði og lenti upp á kant við nágranna sína. Hann var öfundaður og rógborinn.  Hann var þjófkenndur og ákærður. Samt virtur og dáður fyrir hæfileika sína og mannkosti. 

Þrír leikarar
segja söguna og leika allar persónur; Hjálmar, eiginkonu hans, móður, börn, föður, uppeldismóður, bændur, presta, sýslumenn, förukonur, nágranna, fjandmenn og vini. Leikritið geymir einnig sýnishorn af kveðskap hans, allt frá því fegursta til andstyggilegustu níðvísna, en fáir voru flinkari í að meitla saman kjarnmikið níð en Hjálmar. 
 

Hægt er að panta leiksýninguna hvert á land sem er og eru leiktjöld/búnaður einföld til uppsetningar.

 

Höfundar handrits og tónlistar: Ármann Guðmundsson, Snæbjörn Ragnarsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason.

Leikarar: Eggert Kaaber, Magnús Guðmundsson og Margrét Sverrisdóttir.

Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir.

Leikmynd og búningar: Guðrún Öyahals.

 

Verð sýningar er: 54,000 kr.  Sýningartími: 45 mínútur.  www.stoppleikhopurinn.com.

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón