þriðjudagurinn 20. mars 2012

Glærur frá kynningu á Menningarráðinu og styrkjum þess

Vel hefur gengið með kynningar á Menningarráði Vestfjarða síðustu daga. Alls hafa 45 sótt kynningar sem Jón Jónsson menningarfulltrúi hefur staðið fyrir víða um Vestfirði og hefur besta þátttakan til þessa verið á Þingeyri. Framundan eru 4 kynningar til viðbótar, á Flateyri og Suðureyri í dag þriðjudaginn 20. mars og í Bolungarvík og Súðavík miðvikudaginn 21. mars og má því telja líklegt að markmiðið um 60 þátttakendur í heildina náist. Hér undir þessum tengli geta menn nálgast glærurnar (pdf skjal) sem notaðar eru í kynningunni, en þar eru ýmsir fróðleiksmolar um gerð styrkumsókna.

föstudagurinn 9. mars 2012

Kynning á styrkjum og námskeið um umsóknagerð

Eins og kynnt hefur verið mun Menningarráð Vestfjarða nú í fyrsta skipti úthluta stofn- og rekstrarstyrkjum á þessu ári og er umsóknarfrestur um þá til 30. mars. Einnig hafa verið auglýst eftir umsóknum um hefðbundna verkefnastyrki og er frestur til að sækja um þá til 10. apríl. Aðeins verður auglýst einu sinni eftir verkefnastyrkjum á árinu 2012. Af þessu tilefni mun Menningarráð Vestfjarða standa fyrir kynningu á styrkjum ráðsins og stuttu námskeið um umsóknagerð víða um Vestfirði á næstu dögum. Búið er að fastsetja eftirtalin námskeið:


Malarkaffi, Drangsnesi - 11. mars kl. 17:00
Reykhólaskóla, Reykhólum - 12. mars kl. 17:00
Sjóræningjahúsinu, Patreksfirði - 14. mars kl. 17:00
Grunnskólanum Tálknafirði - 14. mars kl. 20:00
Skrímslasetrinu Bíldudal - 15. mars kl. 17:00
Rósubúð, Höfðagötu 9, Hólmavík - 16. mars kl. 17:00

Skrifstofuhótelinu, Ísafirði - 19. mars kl. 17:00
Simbahöllinni, Þingeyri - 19. mars kl. 20:00
Purku handverkshúsi, Flateyri - 20. mars kl. 17:00
Veitingastaðnum Talismann, Suðureyri - 20. mars kl. 20:00
Náttúrugripasafni Bolungarvíkur - 21. mars kl. 17:00
Melrakkasetri Íslands, Súðavík - 21. mars kl. 20:00

Allir eru velkomnir á námskeiðin, ekki þarf að skrá sig sérstaklega og þátttaka er þeim sem mæta að kostnaðarlausu.
 

föstudagurinn 2. mars 2012

Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum

Menningarráð Vestfjarða auglýsir nú eftir umsóknum um styrki í tveimur flokkum á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Fjórðungssamband Vestfirðinga vegna ársins 2012. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum og eru umsóknir og verkefni hverju sinni borin saman á samkeppnisgrundvelli.  

STOFN- OG REKSTRARSTYRKIR  

Nú auglýsir Menningarráð Vestfjarða í fyrsta skipti eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur vandlega undir tenglinum Styrkir hér til hægri, en til ráðstöfunar í stofn- og rekstrarstyrki eru samtals 11,4 milljónir að þessu sinni. Umsækjendur þurfa að skila ítarlegum upplýsingum um starfsemi sína, þar á meðal síðasta ársreikningi. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við úthlutun stofn- og rekstrarstyrkja 2012 verði horft sérstaklega til umsækjenda sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:   

# Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna- og menningararfs.
# Stuðla að nýsköpun í menningarstarfsemi.
# Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu.  

Umsóknarfrestur um stofn- og rekstrarstyrki er til og með 30. mars 2012.  

VERKEFNASTYRKIR

Jafnframt er auglýst eftir umsóknum um verkefnastyrki, en vakin er athygli á að á árinu 2012 verður aðeins auglýst eftir verkefnastyrkjum í þetta eina skipti. Hægt er að sækja um stuðning við hverskyns menningarverkefni, en til hliðsjónar eru úthlutunarreglur sem samþykktar eru við hverja úthlutun. Fylgiskjöl með umsóknum um verkefnastyrki eru afþökkuð, allt sem skiptir máli á að koma fram í umsókninni sjálfri. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við úthlutun verkefnastyrkja 2012 verði horft sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:  

# Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.
# Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.
# Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.
# Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.  

Umsóknarfrestur um verkefnastyrki er til og með 10. apríl 2012.   

Allar nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.

miðvikudagurinn 29. febrúar 2012

Stofn- og rekstrarstyrkir bætast við verkefnastyrki Menningarráðs

Grein eftir Leif Ragnar Jónsson, formann Menningarráðs 

Nú nýverið skrifaði Fjórðungssamband Vestfirðinga, f.h. sveitarfélaganna á Vestfjörðum, undir viðaukasamning við samning sveitarfélaganna við Mennta- og menningarmálaráðuneytið um menningarmál og framlög til þeirra í fjórðungnum. Á síðasta ári tók Alþingi þá ákvörðun að hætta að úthluta fé af safnliðum í stofn- og rekstrarstyrki til menningarstofnana og færa það fremur heim í hérað. Með því móti er talið betur tryggt að fagleg sjónarmið verði grundvallandi við úthlutun þess fjár sem til þess er varið.  

 
Eins og mörgum er kunnugt hefur verið við lýði samningur um verkefnastyrki frá árinu 2007 og hefur sá samningur og það fé sem samkvæmt honum er veitt til menningarverkefna, sannað gildi sitt. Þeir fjármunir sem þar hefur verið úthlutað eru einungis ætlaðir til beinna verkefna en ekki til stofn- og/eða rekstrarstyrkja. Þannig hefur Menningarráði Vestfjarða, og öðrum menningarráðum, ekki verið heimilt að úthluta fé til reksturs menningarstofnana, viðhalds þeirra, tækjakaupa o.s.frv.  
 

Við undirritun viðaukasamningsins er auknu fé veitt til Menningarráðsins sem úthlutað skal til stofnkostnaðar og reksturs, samtals 11,4 milljónir, sérstaklega eyrnamerktar til þeirra hluta. Áfram verða veittir verkefnastyrkir eins og verið hefur frá árinu 2007. Ekki er heimilt og heldur ekki sanngjarnt að fé flæði á milli þessara tveggja potta og er það mat ríkjandi meðal rmenningarráðana allra. Því er ekki að leyna að talsverð vonbrigði urðu innan flestra menningarráða á landsbyggðinni vegna þeirra upphæða sem lagðar eru til með viðaukasamningnum. Ljóst er að í sumum tilfellum er allt að 45-50% niðurskurður miðað við hvað best gerðist áður í meðförum fjárlaganefndar Alþingis. Því má öruggt telja að vonbrigði geta orðið nokkur þegar kemur að því að fé þessu verður útdeilt.
 

Vissulega er það svo, að vandi steðjar að þegar ljóst er að hafna þarf allmörgum verkefnum miðað við hvað umsóknir geta orðið margar, enda er menningarlíf afburða öflugt og metnaðarfullt í fjórðungnum eins og sjá má t.d. á tilnefningum til Eyrarrósarinnar, menningaverðlauna sem veitt eru afburða menningarverkefni á landsbyggðinni. Af þremur verkefnum sem tilnefnd voru í ár voru tvö vestfirsk. Menningarráð Vestfjarða óskar aðstandendum þeirra verkefna hjartanlega til hamingju. 

 
Menningarráð Vestfjarða mun nú auglýsa þessa stofn- og rekstrarstyrki og vonast til að geta úthlutað þeim í apríl. Verkefnastyrkir verða einnig auglýstir, en athygli umsækjenda er vakin á því að Menningarráð Vestfjarða ákvað á fundi sínum 9. febrúar síðastliðinn að hafa einungis eina úthlutun á verkefnastyrkjum á þessu ári. Er það gert vegna talsverðs kostnaðar við úthlutunarferlið auk þess sem fjármagn til styrkja er minna nú en verið hefur áður og því vart tilefni til tveggja úthlutana.  

 
Leifur Ragnar Jónsson,
formaður Menningarráðs Vestfjarða

mánudagurinn 28. nóvember 2011

Tónlistarhátíðin Við Djúpið fær hæsta styrkinn

Menningarráð Vestfjarða hefur lokið vinnu við að fara yfir styrkumsóknir vegna seinni úthlutunar ráðsins árið 2011 og ákvörðun um framlög til einstakra menningarverkefna liggur fyrir. Úthlutanir ráðsins byggjast á úthlutunarreglum sem samþykktar eru hverju sinni. Ánægjulegt að sjá hversu mörg verkefni sem fá styrki nú snúast að hluta eða öllu leyti um vinnu við listsköpun með börnum og ungmennum. Menningarstarfsemi með þessum aldurshópi var einmitt einn af þeim áhersluþáttum sem horft var sérstaklega til að þessu sinni.

Veitt eru framlög til 37 verkefna, samtals að upphæð 12.350.000.- Styrkirnir eru á bilinu 100 þúsund til 1,2 milljónir, en það var tónlistarhátíðin Við Djúpið sem fékk hæsta styrkinn að þessu sinni. Alls bárust 85 umsóknir og eins og venjulega var í þeim hópi mikill fjöldi góðra umsókna og spennandi verkefna. Menningarráð hefði gjarnan viljað veita fleiri styrki og hærri, en því miður eru fjármunir takmarkaðir. Því þarf að hafna ýmsum áhugaverðum verkefnum og svo fá margir styrkþegar nokkru lægri upphæðir en þeir óskuðu eftir. Samtals hefur Menningarráð Vestfjarða gefið vilyrði fyrir 27 milljónum í styrki til menningarverkefna á Vestfjörðum á árinu 2011.

Menningarráðið þakkar kærlega fyrir allar umsóknir sem bárust og óskar umsækjendum velfanaðar í verkefnum sínum. Næst verður auglýst eftir umsóknum snemma á nýju ári.  

Í Menningarráði Vestfjarða sitja Leifur Ragnar Jónsson formaður, Gerður Eðvarsdóttir varaformaður, Arnar S. Jónsson, Jóna Benediktsdóttir og Katrín Gunnarsdóttir. Menningarráðið sér alfarið um að fjalla um og afgreiða umsóknir.    

Styrkir til menningarverkefna við aðra úthlutun árið 2012:
  

10. tónlistarhátíðin Við Djúpið - nýjar áherslur (Við Djúpið, félag) - 1.200.000.-

Aldrei fór ég suður - tónlistarhátíð á Ísafirði páskana 2012 (Aldrei fór ég suður, félag) - 800.000.-  

Skáldið á Þröm (Kómedíuleikhúsið) - 600.000.-
Frásagnasafnið (Þjóðfræðistofa og Skaftfell - menningarmiðstöð Austurlands) - 600.000.-
Vestfirskar þjóðsögur í nútímabúning - söngleikur fyrir börn (Vestfirska skemmtifélagið) - 600.000.-  

Baunagrasið - Aqustic tónlistarhátíð á Bíldudal (Gísli Ægir Ágústsson) - 500.000.-
Bjálfansbarnið og bræður hans (Kómedíuleikhúsið) - 500.000.-

Fjörulalli og hafmaður í fullri stærð (Félag áhugamanna um skrímslasetur) - 400.000.-
Kynnumst tónlistararfinum (Tónlistarskóli Ísafjarðar) - 400.000.-
Smiðjan. Listsköpun og sjálfstyrking unglinga (Matthildur Helgadóttir Jónudóttir og Auður Ólafsdóttir) - 400.000.-
WAF - Westfjord Art Fest (Litli Vísir ehf) - 400.000.- Smalaraunir (Sauðfjársetur á Ströndum) - 400.000.-

Fjallkonan frá Dýrafirði (Sögumiðlun ehf) - 300.000.-
Sumarleikhús barnanna Vestfjörðum (Þröstur Leó Gunnarsson) - 300.000.-
Farandmyndahátíðin - Flækja (Þjóðfræðistofa) - 300.000.-
Hjólabókin: Vestfirðir (Ómar Smári Kristinsson) - 300.000.-
Sjóræningjaskólinn (Sjóræningjahúsið) - 300.000.-
Tíu þjónar og einn í sal (Leikfélag Patreksfjarðar) - 300.000.-
Húmorsþingið - Vetrarhátíð á Ströndum (Þjóðfræðistofa) - 300.000.-
Sambahátíð - listahátíð til styrktar listasafni Samúels Jónssonar að Brautarholti í Selárdal (Félag um endurreisn listasafns Samúels Jónssonar í Selárdal) - 300.000.-  

Martinus Simson, yfirlitssýning á ljósmyndum (Sigurður Gunnarsson) - 250.000.-  

Menningarminjakort fyrir Skálavík (Náttúrustofa Vestfjarða) - 200.000.-
Rafræn myndlistarsýning Muses.is á Ísafirði (Rakel Sævarsdóttir) - 200.000.-
Heklumót 21.-23. apríl 2012 (Karlakórinn Ernir) - 200.000.-
Ungmenni á Vestfjörðum (Einar Bagi Guðmundsson) - 200.000.-
Saga í myndum - Sögusýning í Einarshúsi (Einarshúsið ehf) - 200.000.-
Hvítabjörn í heimsókn (Melrakkasetur Íslands) - 200.000.-
Óperettudrottningin Sigrún Magnúsdóttir - sögusýning (Ópera Vestfjarða) - 200.000.-
Vestfirska leikárið 2011-2012 (Act Alone) - 200.000.-
Allt á kafi (Tómstunda-, íþrótta- og menningarmálanefnd Strandabyggðar) - 200.000.-
Tónleikaferð í Strandasýslu og á Reykhóla (Kvennakór Ísafjarðar) - 200.000.-
Vestfirsk ljóð með augum myndlistarmannsins (Marsibil G. Kristjánsdóttir) - 200.000.-
Skelin - Menningardagskrá veturinn 2011-2012 (Þjóðfræðistofa) - 200.000.-
Abbanana - geisladiskur með lögum og textum eftir Ástvald og Hafliða frá Bíldudal (Leikfélagið Baldur Bíldudal) - 200.000.-  

Sjómannslíf - Ljósmyndasýning (Eyþór Jóvinsson) - 100.000.-
Falinn kvikmyndafjársjóður á Vestfjörðum (Eysteinn Guðni Guðnason) - 100.000.-
Sumartónleikar í kirkjum á Vestfjörðum (Ólafur Gestur Rafnsson) - 100.000.-  
 

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón