miðvikudagurinn 2. júlí 2008

Act alone hefst í kvöld

Leiklistarhátíðin Act alone hefst í kvöld, 2. júlí, kl. 20:00, í Alþýðuhúsinu á Ísafirði og stendur til 6. júlí. Opnunarsýning hátíðarinnar er einleikurinn Steinn Steinarr sem verður sýndur á breiðtjaldi í Ísafjarðarbíói. Seinna um kvöldið verður tvíleikurinn Búlúlala - Öldin hans Steins sýndur í Hömrum. Svo tekur hver sýningin við af annarri alveg fram á sunnudag en 24 sýningar eru á dagskránni í ár, þar af þrjár erlendar. Act alone er nú haldin í fimmta sinn en hún er eina árlega leiklistarsýningin á landinu.

Fjölmargar nýjungar verða á Act alone 2008, því nú verður ekki bara leikið heldur líka dansað og sungið. Boðið verður upp á þrjár einleiknar danssýningar. Eins verður boðið upp á leiklistarnámskeið og kennslustund í að reka eins manns leikhús. Einnig verða sýndir tveir tvíleikir sem báðir eru byggðir á verkum íslenskra skálda.

Besta sýningin og besti leikarinn verða valin á leiklistarhátíðinni Act alone. Verður það í fyrsta sinn sem svo er gert en sérstök dómnefnd skipuð þremur áhorfendum á Ísafirði mun velja sigurvegarana. Nefndin mun afhenda verðlaunin á lokadegi hátíðarinnar í Haukadal í Dýrafirði strax að lokinni síðustu sýningu Act alone 2008.

Dagskrá Act alone má finna í heild sinni á heimasíðu hátíðarinnar www.actalone.net. Aðgangur að Act alone er ókeypis, en hátíðin nýtur stuðnings Menningarráðs Vestfjarða.

Frétt afrituð lítið breytt af www.bb.is.  

þriðjudagurinn 1. júlí 2008

Sumarfrí hjá menningarfulltrúa Vestfjarða

Jón Jónsson, menningarfulltrúi Vestfjarða verður í sumarfríi í júlímánuði, að mestu leyti. Hann kíkir þó öðru hverju í tölvupóstinn og svarar í síma þannig að hægt er að ná sambandi ef um áríðandi mál er að ræða eins og t.d. útborgun styrkja eða aðstoð við umsóknagerð.

mánudagurinn 30. júní 2008

Upptökur á Eitur í æðum

Lýður Árnason kvikmyndagerðarmaður og læknir með meiru hefur dvalið á Höfðaströnd undanfarna viku við tökur á nýjustu mynd sinni sem ber vinnuheitið Eitur í æðum. Sögusvið myndarinnar er að mestu Jökulfirðir og Ísafjörður og hafa tökur gengið vel að sögn Lýðs, en hann er nú að vinna að sinni fjórðu mynd.

Eitur í æðum er fyrsta myndin af sex sem Lýður hefur í hyggju að gera en allt veltur framhaldið þó á fjármagni sem fæst til verksins. Myndin verður sýnd í Ríkissjónvarpinu þegar hún verður tilbúin og eru aðalleikarar Bjarne Henriksen og Theodór Júlíusson.

Verkefnið Eitur í æðum er styrkt af Menningarráði Vestfjarða.

Þessi frétt er afrituð lítið breytt af www.vikari.is.

mánudagurinn 30. júní 2008

Landsþekktir skemmtikraftar troða upp á Markaðsdegi í Bolungarvík

Hinn árlegi Markaðsdagur í Bolungarvík verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 5. júlí nk. Mikið hefur verið lagt upp úr því að hafa dagskrána sem glæsilegasta og munu landsþekktir skemmtikraftar stíga á stokk og skemmta gestum og gangandi.

Kynnir á samkomunni verður enginn annar en Bolvíkingur allra landsmanna Pálmi Gestsson og á hann án efa eftir að sveipa skemmtiatriðin ævintýraljóma í kynningu sinni á dagskráratriðum. Ragnar Bjarnason mun stíga á stokk ásamt Þorgeiri Ástvaldssyni og ætla má að þeir félagar taki nokkra vinsæla smelli og hleypi enn meira fjöri í mannskapinn fyrir vikið. Túpílakarnir með Odd, söngvara Ljótu Hálfvitanna í broddi fylkingar, koma fram og ætla má að þeir taki lagið sem ómar svo ótt og títt á rás 2 þessa dagana og ber heitið “Brennið þið hálvitar” í bland við fleiri skemmtileg lög. Einnig kemur fram hópur af frambærilegum listamönnum frá Vestfjörðum og ber það einna helst að nefna hljómsveitina The Rimbrandts, Elín Sveinsdóttir, Eyrún Arnarsdóttir og Mysterious Marta. Að endingu og síðast en ekki síst mun Ný Dönsk spila af sinni alkunnu snilld á hátíðarsvæðinu en þeir kappar leika einnig á stórdansleik í Íþróttahúsinu Árbæ á laugardagskvöldinu.

Leiktæki, hoppikastalar, hringekjur og go-kart bílabraut verða á svæðinu en einnig munu trúðar leika lausum hala, auk þess verður boðið upp á andlistmálun, happdrætti og ýmsir skemmtilegir leikir verða í boði fyrir yngri kynslóðina. Auk alls þessa verður sungið við varðeld í gryfjunni líkt og undanfarin ár á föstudagskvöldið undir styrkri stjórn Benna Sig.

Af þessu má glöggt sjá að allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á þessari glæsilegu bæjarhátíð Bolvíkinga sem ætíð er haldin fyrsta laugardag í júli. Markaðurinn sjálfur spilar einnig stóran sess í hátíðarhöldunum enda þykir vinsælt að koma með vörur og selja gestum og gangandi á svæðinu. Aðalatriðið er þó síðast en ekki síst að koma saman og hafa gaman og brosa umfram allt framan í heiminn og njóta þess að vera til á Markaðsdegi í Bolungarvík.

Þessi frétt er afrituð óbreytt af www.vikari.is.

föstudagurinn 27. júní 2008

Þrírifað í þrístýft og þrettán rifur ofan í hvatt

Nú á sunnudaginn 29. júní kl. 13:00, við upphaf Furðuleika á Ströndum, verður opnuð sýning í Sauðfjársetrinu í Sævangi á verkinu Þrírifað í þrístýft og þrettán rifur ofan í hvatt, sem unnið er af nemendum Grunnskólans á Reykhólum í samvinnu við kennarana Kolfinnu Ýr Ingólfsdóttur og Rebekku Eiríksdóttur. Verkið gerir skil eyrnamörkum og markaheitum og bæjamörkum í Reykhólahreppi. Áður en Furðuleikarnir hefjast verður nemendum Reykhólaskóla þakkað fyrir verkið, sem verður til sýnis á Sauðfjársetrinu í sumar. Strandamenn, íbúar Reykhólahrepps og aðrir gestir eru hvattir til að líta við og skoða þessa skemmtilegu sýningu.

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón