föstudagurinn 1. apríl 2011

Listamannaþing í Listakaupstað 9. apríl

Laugardaginn 9. apríl er fyrirhugað að halda Listamannaþing Vestfjarða á Ísafirði. Þá er kallað saman listafólk í ólíkum listgreinum um alla Vestfirði til skrafs og ráðagerða á eins konar stefnumót. Allir eru velkomnir á Listamannaþingið, en dagskrá stendur á milli 13-16 í Listakaupstað í Norðurtanga, 3. hæð.

Þema þingsins er menningartengd ferðaþjónusta og koma góðir gestir til að ræða um uppbyggingu á því sviði. Einnig miðla fulltrúar einstakra listgreina af reynslu sinni og ræða um og spekúlera í framtíð listarinnar á Vestfjörðum. Fulltrúar listahátíða á Vestfjörðum munu einnig kynna sín verkefni. Fjölmargir listviðburðir verða á Ísafirði um helgina og er hugmyndin að hópurinn taki sig saman og kíki á það sem um er að vera. Listamannaþingið er samvinnuverkefni Menningarráðs Vestfjarða og Listakaupstaðar á Ísafirði.

Þá verður lögð fram hugmynd um stofnun Félags vestfirskra listamanna á Listamannaþinginu. Ef það fær góðar undirtektir verður slíkt félag stofnað á staðnum og kosið í stjórn.

Allar nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson, menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða menning@vestfirdir.is.

fimmtudagurinn 31. mars 2011

Opið hús á skrifstofu Menningarráðs Vestfjarða

Þróunarsetrið á Hólmavík
Þróunarsetrið á Hólmavík

Föstudaginn 1. apríl  verður opið hús milli kl. 15:00 og 17:00 í Þróunarsetrinu á Hólmavík, að Höfðagötu 3. Boðið verður upp á kaffisopa og vöfflur fyrir gesti og gangandi og starfsmenn segja frá starfsemi sinna stofnanna og fyrirtækja. Ekki er langt síðan sveitarfélagið Strandabyggð flutti höfuðstöðvar sínar í húsið og rekur nú öfluga starfsemi á miðhæðinni. Auk þess eru Menningarráð Vestfjarða, Náttúrustofa Vestfjarða, Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Verkalýðsfélag Vestfirðinga og Þjóðfræðistofa með skrifstofuaðstöðu í Þróunarsetrinu. Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að líta við og kynna sér starfsemina og hina nýju aðstöðu Strandabyggðar. 

fimmtudagurinn 31. mars 2011

Umsóknir um Nýræktarstyrki Bókmenntasjóðs 6. apríl 2011

Bókmenntasjóður auglýsir eftir umsóknum um Nýræktarstyrki en næsti umsóknarfrestur fyrir þessa styrki rennur út miðvikudaginn 6. apríl 2011.

Nýræktarstyrkir Bókmenntasjóðs eru sérstakir styrkir til útgáfu á nýjum íslenskum skáldskap. Eru styrkirnir ætlaðir til að styðja við útgáfu á fyrstu verkum nýrra höfunda, verkum sem hafa takmarkaða eða litla tekjuvon, en hafa ótvírætt menningarlegt gildi. Hér falla undir skáldverk í víðri merkingu þess orðs, til dæmis sögur, ljóð, barnaefni, leikrit eða eitthvað allt annað, og leitast er eftir breidd og fjölbreytni í umsóknum. Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á vefsíðu Bókmenntasjóðs, www.bok.is. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Bókmenntasjóðs, Austurstræti 18, 101 Reykjavík. Frekari upplýsingar fást á netfanginu bok@bok.is og í síma 552 8500.

Hlutverk Bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Bókmenntasjóður styrkir meðal annars útgáfu frumsaminna verka og þýðingar bókmennta á íslensku, en stuðlar einnig að kynningu íslenskra bókmennta heima og erlendis og sinnir öðrum verkefnum sem falla undir verksvið sjóðsins.

þriðjudagurinn 22. mars 2011

Tengsl akademíu og menningartengdrar ferðaþjónustu

Framundan er málstofa á Hugvísindaþingi þann 25. mars þar sem fjallað verður um tengsl akademíu og menningartengdrar ferðaþjónustu. Hún verður haldin í aðalbyggingu Háskóla Íslands, stofu 220 og hefst kl. 13.00. Markmið málstofunnar er að kalla á umræðu um það hver aðkoma hugvísindaakademíunnar geti verið og skuli vera að ferðaþjónustu, sem á örskömmum tíma er orðin ein af aðalatvinnugreinum landsins. Unnið er markvisst að uppbyggingu greinarinnar og framundan blasir enn við aukning að því marki sem valda mun róttækum breytingum á íslensku samfélagi.

Sjónum verður beint að menningartengdri ferðaþjónustu, fagþekkingu hugvísinda á því sviði og stefnu, eða stefnuleysi, þeirra sem að uppbyggingunni standa. Stefnt er að því að umræða málstofunnar snúist meðal annars um hvernig þekking þeirra sem hafa menntað sig á sviði hug- og mannvísinda geti nýst til þess að auka gæði fyrirtækja og verkefna og um leið bætt atvinnumöguleika menntaðs fólks í hinni nýju atvinnugrein.
 
Fyrirlestar:

Lára Magnúsardóttir, forstöðumaður Rannsókna- og fræðaseturs HÍ á Norðurlandi vestra: Þegar menning er atvinnulíf
Áki G. Karlsson, þjóðfræðingur: Hagnýt(t) og ónýt(t) fræði: Hvernig þjóðfræðin bjó til menningartengda ferðaþjónustu á Íslandi
Katrín Jakobsdóttir, íslenskufræðingur og mennta- og menningarmálaráðherra: Menning og atvinna - andstæður eða samstæður?
Uggi Ævarsson, minjavörður Suðurlands: Menningarminjar og menningartengd ferðaþjónusta
Jón Jónsson, menningarfulltrúi Vestfjarða: Rótað í framtíðinni: Gæðaþróun og samvinna
Sólveig Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar: Friðargæslusveit UNESCO og upphefðin að utan

Málstofustjóri: Valdimar Tryggvi Hafstein, dósent í þjóðfræði
 

fimmtudagurinn 17. mars 2011

Fyrirlestur um menningararf

Nú í vetur stendur Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands, Vestfirði á miðöldum og Minjavörð Vestfjarða fyrir röð fyrirlestra undir heitinu Menningararfurinn. Fimmtudaginn 17. mars er komið að næsta fyrirlestri. Þá mun Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða fjalla um um hvernig þjóðmenning og saga hefur með fjölbreyttum hætti verið nýtt við atvinnusköpun á Vestfjörðum. Um leið verður skoðað hvaða áhrif slík notkun á menningararfi svæðisins hefur á ímynd þess út á við og sjálfsmynd íbúanna. Skyggnst verður inn í framtíðina og rætt um möguleika á fjölgun skapandi starfa og frekari uppbyggingu á þessu sviði. 


Jón verður á Hólmavík og fyrirlesturinn sendur í gegnum fjarfundabúnað til Ísafjarðar og Patreksfjarðar. Hægt er að mæta á fjarfund á þessum stöðum eða í Þróunarsetrið á Hólmavík. Fyrirlesturinn hefst kl. 17:00 og stendur í um eina klukkustund. Þátttökugjald er 1.000 kr. Allar frekari upplýsingar og skráning á www.frmst.is  og í síma: 456-5025.  

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón