mánudagurinn 9. júní 2008

Góð aðsókn á tónlistarhátiðina Við Djúpið

Enn eru laus pláss á námskeið Agnars Más Magnússonar á spunapíanó og á söngnámskeið Hönnu Dóru Sturludóttur á tónlistarhátíðinni Við Djúpið sem hefst þann 17. júní næstkomandi og stendur í viku. "Það er mikill fengur af þessum listamönnum og Ísfirðingar og nærsveitarmenn ættu ekki að missa af því tækifæri að sækja hjá þeim námskeið," segir Greipur Gíslason, verkefnastjóri hátíðarinnar. Tónleikar á hádegistónleikaröð hátíðarinnar verða í Bryggjusal Edinborgarhússins, en allar nánari upplýsingar um dagskráratriði, námskeið og fleira eru á heimasíðu hátíðarinnar www.viddjupid.is. Greipur segir að mikil og góð aðsókn sé á hátíðina að þessu sinni. Henni lýkur á Jónsmessu.

Þessi frétt er afrituð af fréttavefnum www.skutull.is.
 

laugardagurinn 7. júní 2008

Bátasafn Breiðafjarðar leitar eftir liðsauka

Félag áhugamanna um stofnun Bátasafns Breiðafjarðar á Reykhólum var stofnað fyrir bráðum tveimur árum eða 31. ágúst 2006. Stofnfélagar voru Aðalsteinn Valdimarsson, Hafliði Aðalsteinsson, Ásdís Thoroddsen, Hrafn Sigurðsson, Bergsveinn G. Reynisson og bræðurnir Jón, Skúli og Aðalsteinn Aðalsteinssynir. Nú er ætlunin að halda framhaldsstofnfund og safna fleiri félögum. Til fundarins er boðað komandi miðvikudag og verður hann haldinn í Reykjavík, eins og nánar kemur fram hér fyrir neðan.

Forsaga málsins er sú, að fyrir hartnær áratug bauð Aðalsteinn Aðalsteinsson bátasmiður frá Hvallátrum bátana Egil, Björg og Súluna til Stykkishólms með því skilyrði að byggt yrði yfir þá. Hafist var handa með fjármögnun en svo strandaði málið, skammt á veg komið. Nú hafa ofangreindir menn, margir hverjir skyldmenni gamla Aðalsteins, tekið málið að sér og stefna að því að bátasafnið verði á Reykhólum í Austur-Barðastrandarsýslu.

Það sem þegar hefur verið gert frá fyrsta stofnfundi 2006 er:
# Samningur hefur verið gerður milli félagsins og Reykhólahrepps um afnot af gamla Mjólkurbúinu við Maríutröð, með þeim fyrirvara, að hreppurinn eignist allt húsið.
# Rituð hefur verið söfnunarstefna væntanlegs safns með hliðsjón af „Söfnunarstefnu á sviði þjóðminjavörslu" sem menntamálaráðuneytið gaf út árið 2003.
# Hólmarar hafa afþakkað gjöf Aðalsteins og munu afhenda bátana bátasafni á Reykhólum með því skilyrði að byggt verði yfir þá.
# Gerð hefur verið skrá yfir þá muni sem eru nú þegar merktir FÁBBR.

Safninu á Reykhólum er ætlað fjölþætt hlutverk. Þar er súðbyrðingurinn sjálfur í öndvegi, saga hans og þróun við Breiðafjörð sem og í sérhverjum landshluta á Íslandi, lag hans og haffærni eftir því til hvaða þarfa hann átti að nýtast. Smíði bátsins frá kili að borðstokk yrði sýnd, járnsmíðin, seglasaumurinn og farviðurinn. Auk þessa yrði hægt að kynnast siglingaleiðum um Breiðafjörð, fiskimiðum í fjöllum, heyflutningum, kirkjusókn, fiskigengd, byr og fleiru tengdu sjósókn og siglingum. Vitanlega yrði eitt helsta verkefni safnsins að geyma gamla báta og hafa þá til sýnis. Tengslum við skóla og æskulýðsstarf vítt og breitt um land í formi fræðslu og námskeiðahalds í bátsmíðum yrði komið á.

Í fundarboði segir stjórn félagsins: Þeir sem skynja þau verðmæti sem þarna liggja í gömlum munum og fornu handverki eru hvattir til að mæta á þennan framhaldsstofnfund og taka þátt í þessari endurreisn. Með þessum fundi vonumst við til þess að fá í lið með okkur fólk sem hefur áhuga á verkefninu og getur stutt það með einhverjum hætti. Ef þú, viðtakandi góður, veist um einhvern sem hefur áhuga á málefninu, vinsamlega bjóddu honum með þér á fundinn.

Framhaldsstofnfundurinn verður haldinn miðvikudagskvöldið 11. júní í ReykjavíkurAkademíunni, JL-húsinu, Hringbraut 121 í Reykjavík, og hefst kl. 20.

Fréttin er afrituð lítið stytt af vefnum www.reykholar.is.

fimmtudagurinn 5. júní 2008

Auglýst eftir myndum af gömlum búvélum

Á Grund í Reykhólasveit hefur á undanförnum árum orðið til myndarlegt safn gamalla dráttarvéla og annarra búvéla frá fyrri tíð. Margar vélanna eru uppgerðar og gangfærar og aðrar er smátt og smátt verið að gera upp. Mestan heiðurinn af þessu vélasafni á Unnsteinn Ólafsson á Grund, sem hefur einnig ásamt Guðmundi bróður sínum og Arnóri Grímssyni í Króksfjarðarnesi dregið saman mikinn fróðleik um fyrstu dráttarvélar á hverjum bæ í Reykhólahreppi. Áformað er að koma út riti með þessum fróðleik ásamt þeim myndum af elstu vélunum sem unnt verður að afla.

Væntanlega leynast í gömlum albúmum gamlar ljósmyndir af dráttarvélum og öðrum búvélum í héraðinu. Þess er hér með farið á leit, að allir sem luma á slíkum myndum láni þær til skönnunar og birtingar. Hægt er að hringja t.d. í Guðmund á Grund (892-3328).

Frá því var greint í vor að Búvélasafninu á Grund hefði verið veittur styrkur frá Menningarráði Vestfjarða.

Frétt afrituð af www.reykholar.is og birt lítið breytt.

fimmtudagurinn 5. júní 2008

Fjöllistavika Hafstrauma heppnaðist vel

Fjöllistaviku Hafstrauma lauk á sjómannadag með stórtónleikum og mikilli grillveislu við höfnina á Patreksfirði. Tónleikarnir voru einkar veglegir í ár en á þeim komu fram meðal annars Hraun, Mysterious Marta og Sverrir Bergman. Hátíðin var haldin með öðru sniði en síðastliðin tvö ár en í þetta sinn teygði hátíðin sig yfir fimm daga og í nærliggjandi sveitarfélög. Að sögn Atla Keranssonar, eins skipuleggjanda hátíðarinnar, gekk hátíðin ljómandi vel fyrir sig og hann var ekki í vafa um að allir hefðu verið sáttir að henni lokinni.

„Mikið af fólki lagði leið sína í bæinn, mikið um brottflutta en einnig fólk sem hafði heyrt af hátíðinni og vildi taka þátt. Atburðirnir voru vel sóttir þannig að ekki er hægt að kvarta yfir neinu hvað það varðar. Grillveislan var meira að segja svo vel sótt að allur maturinn kláraðist.“ Væntanlega hafa eigendur gistihúsa í byggðinni ekki kvartað því að sögn Atla voru öll rúm bókuð. Í ljósi þess hve vel heppnaðist í ár var sagði Atli að það væri alveg á hreinu að hátíðin yrði haldin aftur að ári liðnu.

Atli vildi að lokum koma þökkum til allra þeirra sem komu að hátíðinni með einum eða öðrum hætti, listamanna sem og aðstandenda sem unnu margvísleg störf í þágu hennar.

Frétt afrituð af fréttavefnum www.patreksfjordur.is.

miðvikudagurinn 4. júní 2008

Pétur og Einar - Saga frumkvöðla í Bolungarvík

Einleikurinn Pétur og Einar - Saga frumkvöðla í Bolungarvík, samstarfsverkefni Einarshúss og Kómedíuleikhússins, var frumsýndur í Einarshúsi á laugardaginn 31. maí síðastliðinn og önnur sýning sunnudaginn um sömu helgi. Fleiri sýningar munu fylgja í kjölfarið. Í einleiknum túlkar Elfar Logi líf og störf þeirra manna sem settu hvað mestan svip á Bolungarvík á miklum uppgangstímum og sveipa sögu þeirra ævintýraljóma. Frumkvöðlarnir Pétur Oddsson og Einar Guðfinnsson voru miklir athafnamenn hvor á sínum tíma og stjórnuðu stórveldum sínum af skörungsskap. Þeir bjuggu báðir í húsi harma og hamingju, Péturshúsi sem síðar var nefnt Einarshús.

Í sýningunni leiða Soffía Vagnsdóttir og Elfar Logi saman hesta sína öðru sinni, en á síðasta ári settu þau upp sýninguna Jólasveinar Grýlusynir sem sýnd var við góðan orðstýr í Tjöruhúsinu. Þar að auki voru íbúar bæjarins kallaðir til aðstoðar og brugðu þeir sér í hljóðver í Bolungarvík og sungu með íðilfögrum röddum, allt frá jólalögum og sálmum til vel þekktra þorrablótsvísna. 

Það var Ragna Jóhanna Magnúsdóttir veitingamaður í Einarshúsi sem átti frumkvæðið að uppsetningu sýningarinnar og vann að fjármögnun verksins. Fékk hún Elfar Loga og Kómedíuleikhúsið til liðs við sig til að koma sögunni á fjalirnar.

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón