fimmtudagurinn 12. júní 2008

Við Djúpið hefst þann 17. júní

Tónlistarhátíðin Við Djúpið hefst á Ísafirði í sjötta sinn á þjóðhátíðardaginn 17. júní, þriðjudag í næstu viku, og stendur í sex daga. Hátíðin er viðameiri en nokkru sinni fyrr. Hátíðin samanstendur af tónleikum og námskeiðum sem hafa það markmið að auka við fjölbreytni í menningarlífi á Vestfjörðum og gefa þannig almenningi sem og ferðamönnum kost á að njóta tónlistar í upphafi hins hefðbundna ferðamannatíma í fagurri náttúru þessa landshluta. Hún hefur nú skipað sér í fremstu röð tónlistarhátíða landsins sem framsækin og metnaðarfull hátíð. Við Djúpið er um leið eina hátíð sinnar tegundar þar sem jafn rík áhersla er lögð á námskeið, svokallaða masterklassa, samhliða tónleikahaldi.

„Það er sömuleiðis eitt af markmiðunum að auka með þessu samskipti og tengsl milli listamanna á Vestfjörðum og á höfuðborgarsvæðinu jafnt sem erlendis. Í öllu kynningarefni hátíðarinnar er Ísafirði gert hátt undir höfði. Bærinn er þekktur á Íslandi og víðar fyrir blómlegt tónlistarlíf. Framtíðarsýn er sú að hátíðin verði áfram árviss viðburður þar sem þekktum innlendum og erlendum listamönnum verður boðin þátttaka“, segir í tilkynningu frá aðstandendum.

„Um leið og námskeið hátíðarinnar eru einstaklega frambærileg eru tónleikar hennar það líka. Alla daga hátíðarinnar er að finna tónleika á heimsmælikvarða. Í ár verður sú nýjung á dagskránni að hátíðin býður upp á í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða; fræðandi hádegistónleika. Þetta eru stuttir tónleikar sem eru samofnir fræðandi erindum listamannana. Svo verða auðvitað hefðbundnir tónleikar á dagskrá, en reyndin er sú að sífellt fleiri gestir sækja þá, heimamenn jafnt sem aðkomufólk.“

Verkefnisstjóri hátíðarinnar er Greipur Gíslason, en Tinna Þorsteinsdóttir er listrænn stjórnandi.

Eins og áður segir hefst hátíðin á þriðjudag. Opnunartónleikarnir verða með hinum unga Finna Pekka Kuusisto, fiðluleikara, og Simon Crawford-Philips, píanóleikara.

Fréttin er afrituð af vefnum www.bb.is. Vefslóð hátíðarinnar er www.viddjupid.is.

fimmtudagurinn 12. júní 2008

Steinn Steinarr - aldarminning

Snjáfjallasetur stendur fyrir dagskrá í tilefni af aldarminningu Steins Steinarr þann 21. júní 2008, kl. 15.00-18.00 í Dalbæ á Snæfjallaströnd við Ísafjarðardjúp.

Skáldið Steinn Steinarr fædd­ist að Laugalandi í Naut­eyrarhreppi árið 1908 og verður þann 21. júní dagskrá honum til heiðurs í Dalbæ á Snæfjallaströnd við Ísafjarðardjúp. Þórður Helgason rithöfund­ur fjallar um áhrif Steins á íslenskar bókmenntir. Ása Ketils­dóttir kvæðakona sem býr á fæðingarstað Steins mun segja nokkur orð um tengsl hans við svæðið og flytja nokkur kvæða hans. Þórarinn Magnússon mun kynna áform um stofnun Steinssafns á Nauteyri og sönghópur frá Hólma­vík flytur nokkur ljóða Steins sem gerð hafa verið lög við.

Loks munu Elfar Logi Hannesson og Þröstur Jóhannesson flytja á vegum Kómedíuleikhússins leikþáttinn BÚLÚLALA - öldin hans Steins sem fjallar um skáldið með söngv­um og gítarundirleik. Leikmynd gerði Marsibil G. Kristjánsdóttir. Menningarráð Vestfjarða styrkti þennan viðburð.

fimmtudagurinn 12. júní 2008

Styttist í Act alone leiklistarhátíðina á Ísafirði

Kinki skemmtikraftur að sunnan
Kinki skemmtikraftur að sunnan

Hulunni hefur nú verið svipt af dagskrá Act alone 2008 og má nálgast hana á heimasíðu hátíðarinnar www.actalone.net. Það eru engar ýkjur að segja að dagskráin hafi aldrei verið jafn glæsileg og í ár. Boðið verður uppá 24 sýningar, leiklistarnámskeið og kennslustund í að reka eins manns leikhús. Að vanda er aðgangur að Act alone ókeypis eins og verið hefur frá upphafi en þetta er fimmta árið í röð sem Act alone er haldin.

Meðal þess sem boðið verður uppá á Act alone 2008 eru þrjú erlend leikverk sem koma frá jafnmörgum löndum. Fyrst ber að nefna sýninguna Völuspá frá Rússlandi en hér er á ferðinni athygliverð sýning byggð á einu besta bókmenntaverki þjóðarinnar. Frá Tékklandi fáum við sýninguna Fragile og frá Búlgaríu kemur verðlaunasýningin Chick with a trick. Að vanda er uppistaðan í dagskrá Act alone innlendar sýningar og hafa þær aldrei verið jafn margar og í ár eða 21. Má þar nefna sýningar á borð við Aðventa, Álfar tröll og ósköpin öll, Eldfærin, Kinki skemmtikraftur að sunnan, Pétur og Einar, Superhero og Örvænting.

Fjölmargar nýjungar verða á Act alone 2008 því nú verður ekki bara leikið heldur líka dansað og sungið. Boðið verður uppá þrjár einleiknar danssýningar. Saga Sigurðardóttir flytur dansverkið Blúskonan einleikinn blúsverkur og dansleikhúsið Pars pro toto sýnir leikina Jói og Langbrók. Act alone verður ekki bara einleikin því einnig verða sýndir tveir tvíleikir sem báðir eru byggðir á verkum íslenskra skálda. Sigurður Skúlason, leikari, verður með leiklistarnámskeið og Benóný Ægisson með kennslustund í að reka eins manns leikhús. 

Í fyrsta sinn verður sérstök dómnefnd starfandi á Act alone sem hefur það hlutverk að velja bestu sýningu hátíðarinnar og besta leikarann. Dómnefndin er skipuð þremur áhorfendum á Ísafirði og mun nefndin afhenda verðlaunin á lokadegi hátíðarinnar í Haukadal í Dýrafirði strax að lokinni síðustu sýningu Act alone 2008. Það er listakonan Marsibil G. Kristjánsdóttir sem hannar og gerir Act alone verðlaunagripinnn en hún hannar einnig Act alone plakatið í ár.

Það ætti því engum að þurfa að leiðast á Act alone 2008 og nú er bara að fara að pakka niður í ferðatösku og skella sér í einleikjabæinn Ísafjörð. 

miðvikudagurinn 11. júní 2008

Söguskilti um Gísla Súrsson afhjúpað

Fyrsta söguskiltið af ellefu sem byggt er á Gísla sögu Súrssonar verður afhjúpað í Dýrafirði kl. 15:00 fimmtudaginn 12. júní. Skiltið verður afhúpað á Gemlufallsheiði á þeim stað er Vésteinn mælti þau fleygu orð „Nú falla vötn öll til Dýrafjarðar“. Á næstu dögum og vikum verða önnur sambærileg skilti sett upp við þjóðveginn á Vestfjörðum, allt frá Önundarfirði suður í Reykhólasveit. Skiltunum sem eru myndskreytt og með texta á þremur tungumálum er ætlað að minna á staðbundna merka atburði úr sögunni. Við hvert skilti standa tréskúlptúrar í víkingastíl. Markmið þessa verkefnis, sem hefur verið í undirbúningi í nokkur ár, er að styrkja stöðu Vestfjarða sem sögusvæði á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu.

Frétt afrituð af www.bb.is og breytt smávægilega.

mánudagurinn 9. júní 2008

Góð aðsókn á tónlistarhátiðina Við Djúpið

Enn eru laus pláss á námskeið Agnars Más Magnússonar á spunapíanó og á söngnámskeið Hönnu Dóru Sturludóttur á tónlistarhátíðinni Við Djúpið sem hefst þann 17. júní næstkomandi og stendur í viku. "Það er mikill fengur af þessum listamönnum og Ísfirðingar og nærsveitarmenn ættu ekki að missa af því tækifæri að sækja hjá þeim námskeið," segir Greipur Gíslason, verkefnastjóri hátíðarinnar. Tónleikar á hádegistónleikaröð hátíðarinnar verða í Bryggjusal Edinborgarhússins, en allar nánari upplýsingar um dagskráratriði, námskeið og fleira eru á heimasíðu hátíðarinnar www.viddjupid.is. Greipur segir að mikil og góð aðsókn sé á hátíðina að þessu sinni. Henni lýkur á Jónsmessu.

Þessi frétt er afrituð af fréttavefnum www.skutull.is.
 

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón