föstudagurinn 16. maí 2008

Mikil spenna fyrir frumsýningu Forleiks

Mikil spenna er fyrir frumsýningu Forleiks á veitingastaðnum Við Pollinn á Ísafirði í kvöld en sýndir verða fjórir einleikir áhugaleikara. „Þetta leggst rosa vel í okkur og það er mikil spenna í gangi“, sagði Marta Sif Ólafsdóttir, ein leikaranna þegar blaðamaður náði á hana rétt áður en hún fór á generalprufu í gær. Auk hennar flytja Marsibil Kristjánsdóttir, Ingi Árnason og Sveinbjörn Hjálmarsson fjóra íslenska einleiki. Þeir eru: Súsan baðar sig, Munir og minjar, Það kostar ekkert að tala í GSM hjá guði og Örvænting. Sýningin er hugsuð sem forleikur fyrir einleikjahátíðina Act alone sem fer fram í fimmta sinn dagana 2.-6. júlí á Ísafirði.

Aðstandendur sýningarinnar notuðu fremur nýstárlega leið til að auglýsa Forleik en birt var kynningarmyndband á veraldarvefnum, svipað því sem tíðkast með kvikmyndir áður en þær koma í bíóhús. „Við höfum fengið mjög góð viðbrögð við myndbandinu og fólk virðist hafa gaman af þessu“, segir Marta.

Kómedíuleikarinn og framkvæmdastjóri Act alone Elfar Logi Hannesson leikstýrir en um er að ræða samstarfsverkefni Kómedíuleikhússins og Litla leikklúbbsins á Ísafirði. Enn eru lausir miðar á frumsýninguna en hægt er að panta þá með því að senda tölvupóst á komedia@komedia.is eða hringja í síma 897-2020.

Næstu sýningar verða dagana 18. og 23. maí á veitingastaðnum Við Pollinn, 6. júní í Kjallaranum í Bolungarvík og 7. júní í Vagninum á Flateyri. Sýningarnar hefjast kl. 21 og miðinn kostar 1.500 krónur.

Þessi frétt er afrituð óbreytt af fréttavefnum www.bb.is.

föstudagurinn 16. maí 2008

Evrópskt og bandarískt tónlistarfólk heimsækir Ísafjörð

Tuttugu og fimm manna hópur tónlistarfólks er staddur á Ísafirði þar sem hann mun funda yfir helgina. Hópurinn kemur hingað á vegum Evrópuverkefnisins Joint Music Masters for New Audiences and Innovative Practice. „Tilgangur þessa viðamikla verkefnis er að búa til nýtt meistaranám í tónlist sem styrkir tónlistarfólk framtíðarinnar til að takast á við nýjar áskoranir í tónlistarheiminum: auka sveigjanleika tónlistarmanna, breikka starfssvið þeirra, fjölga starfsleiðum og símenntunarmöguleikum“, segir í tilkynningu. Um er að ræða verkefnishópa, stýrihóp, gæðastjórnunarhóp og námsefnishóp, sem verða á stífum vinnufundum til sunnudags en einnig munu þau nýta tímann til að skoða áhugaverða staði á svæðinu og njóta gestrisni heimamanna. Verkefnishóparnir funda á mismunandi stöðum nokkrum sinnum á ári og í þetta sinn varð Ísafjörður fyrir valinu.

Ísafjarðarbær hefur tengst verkefninu vegna náinnar og farsællar samvinnu og tengsla Tónlistarskóla Ísafjarðar við Listaháskóla Íslands mörg undanfarin ár. Bæði hafa 1.árs tónlistarnemar LHÍ heimsótt TÍ árlega, margir nemar þeirra hafa komið til Ísafjarðar til að halda tónleika og eins hafa allmargir nemar úr TÍ stundað nám við Listaháskólann og staðið sig þar með mikilli prýði svo eftir er tekið. Tónlistarskólinn er tengill („external partner“) Listaháskólans í verkefninu og hefur m.a. skipulagt fundahöld hópsins hér vestra.

Tónlistarfólkið kemur frá ýmsum virtum háskólum í Evrópu og Bandaríkjunum, The Guildhall School of Music í London, hollensku tónlistarháskólunum í Groningen og Haag, tónlistarháskólanum í Jyväskylä í Finnlandi, Listaháskóla Íslands og tónlistarháskólanum í Georgia í Bandaríkjunum. Leitast verður við að tengja Háskólasetur Vestfjarða inn í þetta verkefni og mun Peter Weiss forstöðumaður Háskólasetursins sitja fundi með hópnum.

„Vonir standa til að í framtíðinni muni einhverjir þeirra sem fara í þetta nýja meistaranám koma til Ísafjarðar og vinna hér einhver lokaverkefni, í samvinnu við Háskólasetrið, Tónlistarskólann eða aðra listaskóla á svæðinu, menntaskóla eða grunnskóla, Tankinn, sjúkrahúsið, jafnvel einhver fyrirtæki o.s.frv“, segir í tilkynningu.

Þessi frétt er afrituð óbreytt af fréttavefnum www.bb.is.

föstudagurinn 16. maí 2008

Tónleikar í Tónlistarskóla Vesturbyggðar

Loksins er blessað sumarið komið, sólin hækkar á lofti og sólbjart verður fljótlega allan sólarhringinn, m.a. þess vegna er rétti tíminn fyrir fréttir frá Tónlistarskólanum í Vesturbyggð. Þau hljóðfæri sem æft og leikið er á núna eru : gítar, bassi, píanó, þverflauta, fiðla, selló og blokkflauta. Í söngnámi eru nú 14 nemendur.

Sparisjóður Vestfirðinga lagði fram styrk í hljóðfærasjóð Tónlistarskóla Vesturbyggðar 500.000 krónur í febrúar mánuði sl. og munar um minna. Er hér með áréttað þakklæti skólans til Sparisjóðsins. Keypt hafa verið nokkur ný hljóðfæri m.a. gítarar og fiðlur. Á öllum tónleikum skólans greiða gestir í hljóðfærasjóð.

Vegna mikillar ásóknar í skólann er óskað eftir að þeir sem áhuga hafa á að vera áfram í skólanum, og einnig þeir sem vilja komast inn, staðfesti skólavist fyrir næsta skólaár í síðasta lagi 22. maí nk. í síma 456 1584 eða í Tónlistarskólanum við Stekka 21 á Patreksfirði frá kl. 14.00 og 16.00 alla virka daga.

Áætlun skólans í maímánuði er eftirfarandi:

Fimmtudagur 15. maí nk. kl. 20:00 Vortónleikar í Bíldudalsskóla.
Miðvikudagur 21. maí nk. kl. 20:00 Vortónleikar í Birkimelsskóla.
Miðvikudagur 21. maí nk. kl. 15:00 Lokaæfing í Félagsheimilinu á Patrksfirði.
Fimmtudagur 22. maí nk. kl. 20:00 Vortónleikar í Félagsheimilinu á Patreksfirði.

Skólaslit Tónlistarskóla Vesturbyggðar fara fram í Tónlistarskólanum að Stekkum 21 á Patreksfirði 28. maí nk. kl 18:00. Þess má geta að allir nemendur skólans hafa nú þegar fengið upplýsingar um væntanlega vortónleika, vorpróf og skólaslit hans. Bestu kveðjur með ósk um gleðilegt sumar frá kennurum Tónlistarskóla Vesturbyggðar.

Þessi frétt er afrituð af www.patreksfjordur.is og birt hér lítið eitt stytt.

föstudagurinn 16. maí 2008

Herdísar og Ólínu Andrésdætra minnst

Ákveðið var á aðalfundi Sambands breiðfirskra kvenna (SBK) á dögunum að efna til dagskrár um skáldkonurnar og tvíburasysturnar Ólínu og Herdísi Andrésdætur, en í júnímánuði verða 150 ár liðin frá fæðingu þeirra í Flatey á Breiðafirði. Einnig var rætt hvernig halda skuli upp á 75 ára afmæli sambandsins, sem stofnað var 19. júní 1933. Fundurinn var haldinn í Thomsenshúsi, elsta húsinu í Búðardal, í boði eiganda þess, Kvenfélagsins Þorgerðar Egilsdóttur í Búðardal. Á fundinum lét Guðrún María Björnsdóttir af störfum gjaldkera, en því hlutverki hefur hún gegnt um áraraðir með miklum sóma.

Einnig var ákveðið á fundinum að Orlofsnefnd sambandsins efndi til dagsferðar á Reykholtshátíð í sumar. Þá var kynnt skipulagsskrá fyrir mennta- og fræðslusjóð Sambands breiðfirskra kvenna, sem ákveðið var á aðalfundi sambandsins á síðasta ári að stofna, og voru í tilefni afmælisins lagðar eitt hundrað þúsund krónur í þann sjóð. Hlutverk hans verður að auka menntun og fræðslu kvenna á starfssvæði sambandsins og er honum þannig ætlað að veita námsstyrki til kvenna í Dalabyggð og Reykhólahreppi. Allar gjafir til sjóðsins væru vel þegnar svo að hann geti sem fyrst farið að sinna hlutverki sínu.

 

Í lok fundarins flutti Guðrún Alda Gísladóttir fornleifafræðingur erindi um fornleifarannsóknir í Reykhólahreppi og Dölum. Sýndu konurnar efninu mikinn áhuga og þurftu margs að spyrja.

 

Kvenfélagskonur í Búðardal buðu til kvöldverðar af miklum myndarskap eins og kvenfélagskvenna er siður. Var setið fram eftir kvöldi yfir veitingum og góðum umræðum.

 

Stjórn Sambands breiðfirskra kvenna skipa:

  • Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Mýrartungu II, Reykhólasveit, formaður,
  • Svanhildur Sigurðardóttir, Mávatúni, Reykhólum, gjaldkeri,
  • Þrúður Kristjánsdóttir, Búðardal við Hvammsfjörð, ritari,
  • Þóra Guðjónsdóttir, Staðarfelli á Fellsströnd, varaformaður,
  • Ingibjörg Eyþórsdóttir, Spágilsstöðum í Dölum, meðstjórnandi,
  • Jóhanna Jóhannsdóttir, Magnússkógum í Dölum, meðstjórnandi.
þriðjudagurinn 13. maí 2008

Sjálfboðavinna framundan við félagsheimili Patreksfjarðar

Á vefnum www.patreksfjordur.is er nú birt ávarp til bæjarbúa á Patreksfirði þar sem þeir eru beðnir að leggja hönd á plóg við sjálfboðavinnu við endurbætur á félagsheimili staðarins. Framundan er að mála salina í húsinu fyrir sjómannadaginn. Ávarpið hljóðar svo:

"Kæru bæjarbúar!

Árið 1958 var byrjað á byggingu FHP. Þá var grunnurinn steyptur og svo kom hitt koll af kolli. Allt þetta hús var byggt í sjálfboðavinnu af bæjarbúum og margir lögðu þar hönd á plóg. Á endanum byggðist húsið upp af mikilli bjartsýni og dugnaði bæjarbúa. Húsið hefur síðan þjónað miklum tilgangi fyrir þorpið okkar og við fólkið í bænum deilt þar bæði gleði og sorgum. Nú er svo komið að húsið okkar er nánast komið á gjörgæslu vegna lélegs ástands. En með bjartsýni og dugnaði er allt hægt. Gaman væri ef við gætum sýnt félagsheimilinu okkar þann sóma og þar með öllum þeim sem lögðu vinnu sína og krafta í þetta mikla verkefni á sínum tíma, og endurtekið leikinn. Tökum höndum saman og málum bæði stóra og litla salinn fyrir sjómannadag svo við getum tekið stolt á móti gestum sem heimsækja okkur þessa helgi ár hvert. Með góðri skipulagningu ætti verkið ekki að taka langan tíma. Hver hálftími, sem þú kæri bæjarbúi, getur séð af í þetta verkefni getur skipt sköpum því margar hendur vinna létt verk.

Til þess að auðvelda framkvæmdina væri gott ef þú skrifaðir þig á lista sem liggur í versluninni því nauðsynlegt er að vita hve við getum á von á mörgum svo hægt sé að gera sér grein fyrir hve verkið tekur langan tíma eða hvort nægur mannskapur fáist yfirhöfuð.

Ef þú getur ....

málað, sparslað,pússað, skrúfað, hellt uppá kaffi, þrifið pennsla og rúllur, sagt brandara, komið með góðgæti með kaffinu, bakað vöfflur, tekið tusku í hönd, ryksugað, komið með góða skapið og dreift yfir hópinn þá þiggjum við það með þökkum því allar hendur og kraftar eru vel þegnir !

Með kveðju,
Eigendafélag FHP."

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón