miðvikudagurinn 30. apríl 2008

Eitur í æðum fékk hæsta styrkinn

Nýtt Þróunarsetur á Hólmavík og höfuðstöðvar Menningarráðsins
Nýtt Þróunarsetur á Hólmavík og höfuðstöðvar Menningarráðsins
Verkefnið Eitur í æðum sem kvikmyndafyrirtækið Í einni sæng ehf stendur fyrir fékk hæsta styrkinn frá Menningarráði Vestfjarða við úthlutun á styrkjum til menningarverkefna á Hólmavík á sumardaginn fyrsta. Styrkir voru afhentir við hátíðlega athöfn í Félagsheimilinu á Hólmavík og um leið var opnað formlega Þróunarsetur að Höfðagötu 3 á Hólmavík, þar sem ýmsar stofnanir og fyrirtæki hafa hreiðrað um sig með skrifstofuaðstöðu, auk þess sem námsver er í húsinu. Þeirra á meðal er Menningarráð Vestfjarða, Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, Náttúrustofa Vestfjarða, Strandagaldur, Þjóðfræðistofa, prent- og útgáfuþjónustan Gagnvegur, Sauðfjársetur á Ströndum og Fræðslumiðstöð Vestfjarða. 

Við athöfnina voru flutt erindi í tilefni af úthlutun Menningarráðsins og opnun Þróunarsetursins, auk þess sem boðið var upp á kaffiveitingar. Þá var styrkjum Menningarráðsins úthlutað og styrkvilyrði afhent. Samtals voru veittir styrkir til 47 verkefna að þessu sinni, samtals að upphæð 17,6 milljónir. Umsóknir sem bárust voru alls 110 og beðið um styrki alls að upphæð rúmlega 86 milljónir. Aftur verður auglýst eftir styrkumsóknum í haust.
 
Allmargir tóku til máls á athöfninni, auk þess sem Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða og Gunnar Hallsson formaður Menningarráð Vestfjarða kynntu niðurstöður Menningarráðsins varðandi styrkveitingar, en einstakir styrkir voru á bilinu 100 þúsund til 1,5 milljón. Eins og áður var mikil áhersla lögð á mögulega atvinnusköpun og að stuðla að tilurð skapandi starfa í fjórðungnum við úthlutun ráðsins, auk þess sem sérstök áhersla var að þessu sinni lögð á verkefni sem virkja eldri borgara og ungmenni til þátttöku í list- og menningarverkefnum. Menningaratriði voru auk þess á dagskránni við athöfnina, atriði og tónlist úr Dýrunum í Hálsaskógi sem sett var upp í vetur í samvinnu Tónskólans og Grunnskólans á Hólmavík og Leikfélags Hólmavíkur með stuðningi frá Menningarráði Vestfjarða.

Eftirtalin verkefni fengu styrki frá Menningarráði Vestfjarða að þessu sinni:

Eitur í æðum (Í einni sæng ehf) - 1.500.000
Kvikmyndaefni fyrir Skrímslasýningu (Félag áhugamanna um Skrímslasetur) - 1.000.000
Hönnun Kistunnar í Trékyllisvík (Strandagaldur ses) - 750.000
Búskapur á Ströndum - upptökur og miðlun á sjónrænum heimildum (Sauðfjársetur á Ströndum) - 750.000
Leiklistarhátíðin Act alone 2008 (Kómedíuleikhúsið) - 700.000
Afmæli Tónlistarfélags Ísafjarðar - Tónlistardagurinn mikli (Tónlistarfélag Ísafjarðar) - 700.000

Stuttmyndakeppni á Ísafirði (Úlfur Þór Úlfarsson) - 500.000
Skjaldborg08 (Geir Gestsson) - 500.000
Tónlistarhátíðin og masterklassarnir Við Djúpið 2008 (Félagið Við Djúpið) - 500.000
Sjóræningjar á plani (Leikfélag Patreksfjarðar) - 500.000
Uppbygging Vatnsfjarðar sem minjastaðar (Súðavíkurhreppur) - 500.000
Listviðburðir í Edinborgarhúsi (Edinborgarhúsið) - 500.000

Grásleppu- og nytjasetur Stranda á Drangsnesi (Félag áhugafólks um stofnun Grásleppuseturs á Drangsnesi) - 400.000
Uppsetning Lister vélasafns (Sandborg ehf) - 400.000
Steinshús (Steinshús sjálfseignarstofnun) - 400.000
Búvélasafnið á Grund í Reykhólasveit (Unnsteinn H. Ólafsson og félagar) - 400.000
Hafstraumar 2008 (Hafstraumar) - 400.000
Súgandi – heimildamynd (Ljósop ehf) - 400.000
Ljósmyndasafn Vestur-Barð. og sumarsýningin Atvinnulíf liðinnar aldar (Ljósmyndasafn Vestur-Barð) - 400.000
Sumarið í Hömrum 2008 (Tónlistarfélag Ísafjarðar) - 400.000
Saga frumkvöðla í Bolungarvík (Við Djúpið ehf) - 300.000
Ljóðlist á myndrænan hátt (Eva Ísleifsdóttir, Monika Frycova, Jón Þórðarson og Gallerie Dynjandi) - 300.000
Leitin að Gísla: heimildamynd um slóðir Gísla sögu Súrssonar (Þjóðfræðistofa) - 300.000
Steinöld – leiksýning (Kómedíuleikhúsið) - 300.000
Þjóðsagnadagskrá (Leikfélag Hólmavíkur og Félag eldri borgara á Ströndum) - 300.000
„Breaking the barriers.“ Alþjóðleg heimildamyndahátíð og ráðstefna á Ísafirði (Safn Jóns Sigurðssonar, Hrafnseyri) - 300.000
Steinn Steinarr - málþing og útgáfa myndskreytts ljóðaheftis (Gagnvegur) - 300.000

„Hér býr ánægjan.“ Sýning um skáldkonuna Höllu á Laugabóli (Guðfinna M. Hreiðarsdóttir) - 250.000
Kvæðaperlur úr Kaldrananeshreppi (Bryggjuhátíð á Drangsnesi, Kaldrananeshreppur) -  250.000
Kaþólskir Vestfirðir í fortíð og nútíð (Vestfirðir á miðöldum) - 250.000
Saga „Þorpsins“ Patreksfjarðar í máli og myndum (Kaffi- og veitingastofan Þorpið) - 250.000
Sauðfé í sögu þjóðar. Þýðing sýningartexta á ensku og þýsku (Sauðfjársetur á Ströndum) - 250.000
Matur og menning á suðursvæði Vestfjarða (Skiptá, félag áhugafólks um menningu og sögu) - 250.000
Gísla saga Súrssonar í myndum (Marsibil G. Kristjánsdóttir) - 250.000
Steinn Steinarr - 100 ára minning (Félag um Snjáfjallasetur) - 200.000
Kaldalón og Kaldalóns - sýning á Ísafirði (Félag um Snjáfjallasetur) - 200.000
Merkingar á menningarminjum í Hveravík við Steingrímsfjörð (Strandagaldur ses) - 200.000
Fólkið úr fjöllunum (Vagna Sólveig Vagnsdóttir) - 200.000
Strandir og Strandamenn í bókmenntum (Héraðsbókasafn Strandasýslu) - 200.000
Leiklistarnámskeið fyrir unglinga (Ylfa Mist Helgadóttir) - 200.000
Búningasafn og áhaldasafn Leikfélags Hólmavíkur (Leikfélag Hólmavíkur) - 200.000
Ferð án fyrirheits (Sögur útgáfa) - 200.000

Hólar og Dalir – myndlistarverkefni (Björn Samúelsson) - 150.000
Þátttaka Hátíðarkórs T. Í. í tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands (Tónlistarskóli Ísafjarðar) - 100.000
Flutningur Jóhannesarpassíunnar eftir Bach í  „ör“útgáfu í Ísafjarðarkirkju á föstudaginn langa (Tónlistarskóli Ísafjarðar) - 100.000
Leikföng, skart og klæði fyrr á dögum (Þjóðbúningafélag Vestfjarða) - 100.000
Uppsetning á sýningu á Harmonikkusafni Ásgeirs S. Sigurðssonar (Byggðasafn Vestfjarða) - 100.000
mánudagurinn 28. apríl 2008

Listamannaþing á Hótel Ísafirði

Kómedíuleikhúsið í samstarfi við listamenn í Ísafjarðarbæ bíður til Listamannaþings á Hótel Ísafirði miðvikudaginn 30. apríl kl.20. Þema þingsins er Staða og framtíð listalífs í Ísafjarðarbæ. Flutt verða erindi um stöðu og framtíð allra listgreina, fjallað um listahátíðarbæinn Ísafjörð og hátíðir kynntar, Menningarráð Vestfjarða og Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar kynna sig og flutt verða tónlistaratriði. Aðgangur ókeypis. Kaffi og rjómapansa í boði þingsins.

föstudagurinn 25. apríl 2008

Ráðstefna um menningartengda ferðaþjónustu

Við Berufjörð
Við Berufjörð

Málþing um menningartengda ferðaþjónustu í Bjarkalundi
Ferðamálasamtök Vestfjarða standa fyrir málþingi um menningartengda ferðaþjónustu í Bjarkalundi föstudaginn 25. apríl kl. 20:00-22:00.
# Menningartengd ferðaþjónusta – Ferðamáladeild Háskólans á Hólum
# Menningarráð Vestfjarða - Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða
# Fulltrúi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands fjallar um verkefni í menningartengdri ferðaþjónustu
Létt spjall í lok erinda.

sunnudagurinn 20. apríl 2008

Afhending menningarstyrkja á Hólmavík

Skrifstofa Menningarráðs Vestfjarða er í nýja þróunarsetrinu
Skrifstofa Menningarráðs Vestfjarða er í nýja þróunarsetrinu

Á sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl kl. 14:00, verður athöfn í Félagsheimilinu á Hólmavík þar sem menningarstyrkir frá Menningarráði Vestfjarða vegna fyrri úthlutunar ársins 2008 verða afhentir. Búist er við fjölda góðra gesta til Hólmavíkur af þessu tilefni. Alls verða veittir 47 styrkir að þessu sinni til margvíslegra menningarverkefna, en 110 umsóknir bárust Menningarráði Vestfjarða að þessu sinni. Á dagskránni í Félagsheimilinu eru erindi og afhending styrkja Menningarráðsins vorið 2008 og einnig fá gestir að sjá brot af því besta úr menningarlífinu á Ströndum. Í lokin á þessari formlegu athöfn verður létt kaffihlaðborð í Félagsheimilinu fyrir gesti samkomunnar.

Sama dag, þann 24. apríl, verður opnað nýtt Þróunarsetur og námsver að Höfðagötu 3 á Hólmavík sem sveitarfélagið Strandabyggð hefur undirbúið síðustu misseri. Í Þróunarsetrinu verða ýmsar stofnanir og fyrirtæki með skrifstofuaðstöðu og hafa Menningarráð Vestfjarða, Náttúrustofa Vestfjarða, Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, útgáfu- og prentþjónustan Gagnvegur, Þjóðfræðistofa og Strandagaldur þegar tryggt sér aðstöðu þar. Þarna verður opið hús frá kl. 16:00-18:00 og þeir sem hreiðrað hafa um sig í skrifstofunum taka á móti gestum og segja frá starfsemi sinna stofnanna og fyrirtækja. Einnig verður námsver í húsinu, þar sem framhaldsnemar og háskólanemar í fjarnámi fá aðstöðu til að stunda sitt nám og verður starfsemi þess kynnt á opna húsinu. Veitingar verða í boði á Höfðagötunni og allir sem áhuga hafa eru hvattir til að lita við.

miðvikudagurinn 16. apríl 2008

Þursaflokkurinn spilar á Ísafirði

Hinn íslenski Þursaflokkur kemur til Ísafjarðar um hvítasunnuhelgina og spilar á tónleikum í Edinborgarhúsinu. Gert er ráð fyrir einum tónleikum föstudaginn 9. mai. Hljómsveitin hætti störfum fyrir um 28 árum en hefur haldið nokkra tónleika að undanförnu við frábærar undirtektir og til að mynda þurfti að bæta við tvennum aukatónleikum þegar hljómsveitin spilaði á Akureyri nýlega. Þursaflokkurinn spilaði síðast á Ísafirði árið 1980.

Frá þessu er sagt á ruv.is.

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón