mánudagurinn 28. apríl 2008

Listamannaþing á Hótel Ísafirði

Kómedíuleikhúsið í samstarfi við listamenn í Ísafjarðarbæ bíður til Listamannaþings á Hótel Ísafirði miðvikudaginn 30. apríl kl.20. Þema þingsins er Staða og framtíð listalífs í Ísafjarðarbæ. Flutt verða erindi um stöðu og framtíð allra listgreina, fjallað um listahátíðarbæinn Ísafjörð og hátíðir kynntar, Menningarráð Vestfjarða og Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar kynna sig og flutt verða tónlistaratriði. Aðgangur ókeypis. Kaffi og rjómapansa í boði þingsins.

föstudagurinn 25. apríl 2008

Ráðstefna um menningartengda ferðaþjónustu

Við Berufjörð
Við Berufjörð

Málþing um menningartengda ferðaþjónustu í Bjarkalundi
Ferðamálasamtök Vestfjarða standa fyrir málþingi um menningartengda ferðaþjónustu í Bjarkalundi föstudaginn 25. apríl kl. 20:00-22:00.
# Menningartengd ferðaþjónusta – Ferðamáladeild Háskólans á Hólum
# Menningarráð Vestfjarða - Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða
# Fulltrúi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands fjallar um verkefni í menningartengdri ferðaþjónustu
Létt spjall í lok erinda.

sunnudagurinn 20. apríl 2008

Afhending menningarstyrkja á Hólmavík

Skrifstofa Menningarráðs Vestfjarða er í nýja þróunarsetrinu
Skrifstofa Menningarráðs Vestfjarða er í nýja þróunarsetrinu

Á sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl kl. 14:00, verður athöfn í Félagsheimilinu á Hólmavík þar sem menningarstyrkir frá Menningarráði Vestfjarða vegna fyrri úthlutunar ársins 2008 verða afhentir. Búist er við fjölda góðra gesta til Hólmavíkur af þessu tilefni. Alls verða veittir 47 styrkir að þessu sinni til margvíslegra menningarverkefna, en 110 umsóknir bárust Menningarráði Vestfjarða að þessu sinni. Á dagskránni í Félagsheimilinu eru erindi og afhending styrkja Menningarráðsins vorið 2008 og einnig fá gestir að sjá brot af því besta úr menningarlífinu á Ströndum. Í lokin á þessari formlegu athöfn verður létt kaffihlaðborð í Félagsheimilinu fyrir gesti samkomunnar.

Sama dag, þann 24. apríl, verður opnað nýtt Þróunarsetur og námsver að Höfðagötu 3 á Hólmavík sem sveitarfélagið Strandabyggð hefur undirbúið síðustu misseri. Í Þróunarsetrinu verða ýmsar stofnanir og fyrirtæki með skrifstofuaðstöðu og hafa Menningarráð Vestfjarða, Náttúrustofa Vestfjarða, Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, útgáfu- og prentþjónustan Gagnvegur, Þjóðfræðistofa og Strandagaldur þegar tryggt sér aðstöðu þar. Þarna verður opið hús frá kl. 16:00-18:00 og þeir sem hreiðrað hafa um sig í skrifstofunum taka á móti gestum og segja frá starfsemi sinna stofnanna og fyrirtækja. Einnig verður námsver í húsinu, þar sem framhaldsnemar og háskólanemar í fjarnámi fá aðstöðu til að stunda sitt nám og verður starfsemi þess kynnt á opna húsinu. Veitingar verða í boði á Höfðagötunni og allir sem áhuga hafa eru hvattir til að lita við.

miðvikudagurinn 16. apríl 2008

Þursaflokkurinn spilar á Ísafirði

Hinn íslenski Þursaflokkur kemur til Ísafjarðar um hvítasunnuhelgina og spilar á tónleikum í Edinborgarhúsinu. Gert er ráð fyrir einum tónleikum föstudaginn 9. mai. Hljómsveitin hætti störfum fyrir um 28 árum en hefur haldið nokkra tónleika að undanförnu við frábærar undirtektir og til að mynda þurfti að bæta við tvennum aukatónleikum þegar hljómsveitin spilaði á Akureyri nýlega. Þursaflokkurinn spilaði síðast á Ísafirði árið 1980.

Frá þessu er sagt á ruv.is.

fimmtudagurinn 10. apríl 2008

Fjölskyldutónleikar í Hömrum

Pétur og úlfurinn eru loks væntanlegir til Ísafjarðar! Tónlistarfélag Ísafjarðar og Tónlistarskóli Ísafjarðar standa fyrir einstaklega skemmtilegum tónleikum í Hömrum laugardaginn 12. apríl klukkan 15. Í tilefni af 60 ára afmæli félagsins og skólans á þessu ári verður að þessu sinni boðið upp á fjölskyldutónleika þar sem flutt verða tónverk í máli, myndum og tónum.

Á efnisskránni eru tvö tónverk. Fyrra verkið er „Myndir á sýningu” eftir rússneska tónskáldið Modest Mussorsky. Tónverkið er safn verka sem túlka tíu málverk eftir listmálarann Victor Hartmann. Hitt tónverkið er „Pétur og úlfurinn” eftir Sergei Prokofiev.  Prokofiev samdi bæði texta og tónlist þessa fallega tónverks á aðeins einni viku árið 1936, í þeim tilgangi að kenna börnum að skilja og njóta tónlistar.  Í Pétri og úlfinum er sögð saga af litlum dreng, afa hans, öndinni, úlfinum og fleirum og er sagan sögð með hljóðfærum auk sögumanns. Verkið hefur notið mikilla vinsælda æ síðan og hefur verið á verkefnaskrá hljómsveita um allan heim og nýlega fékk teiknimynd um Pétur og úlfinn Óskarsverðlaun í flokki stuttra teiknimynda.

Sögumaður á tónleikunum er leikarinn Sigurþór Albert Heimisson, en aðrir flytjendur eru hljóðfæraleikararnir Pamela De Sensi á þverflautu, Eydís Lára Franzdóttir á óbó, Rúnar Óskarsson á klarínett, Kristín Mjöll Jakobsdóttir á fagott og Emil Friðfinnsson á horn. Myndir sem tengjast tónverkunum er varpað á tjald á meðan á flutningi stendur. 

Tónleikarnir standa yfir í um klukkutíma og er aðgangseyrir  kr.1.500 en kr. 800 fyrir börn yngri en 16 ára.

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón