fimmtudagurinn 10. apríl 2008

Málþing um matartengda ferðaþjónustu

Málþing um matartengda ferðaþjónustu verður haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði laugadaginn 19. apríl nk. og stendur frá  kl. 10.30-15.00. Á dagsskránni eru fyrirlestrar, kynningar á verkefnum og Vestfirðingar segja frá verkefnum á þessu sviði. Skráning fer fram hjá Ásgerði Þorleifsdóttur (asgerdur@atvest.is), sími 450-3053. Tilgangur málþingsins er að leita leiða til að þróa matartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum og hvetja heimamenn til að velja staðbundið hráefni.

Fengnir verða fyrirlesarar sem eru í fremstu röð á þessu sviði, m.a. frá verkefnunum „Matarkistan Skagafjörður“ og „Beint frá býli“. Einnig munu matarhönnuður og næringarfræðingur halda erindi, rætt verður um vestfirskar sælkeraslóðir og vöruþróun úr staðbundnu hráefni, auk þess sem heimamenn segja frá sínu starfi á þessu sviði.

Málþingið er ætlað öllum sem áhuga hafa á þessu málefni og eru aðilar í ferðaþjónustu, allt áhugafólk um vestfiskar matarhefðir, bændur, matvælaframleiðendur, veitingafólk, sultugerðarfólk, bakarar og allir aðrir áhugasamir hvattir til að taka þátt.

Skilgreina má matartengda ferðaþjónustu sem hluta af menningartengdri ferðaþjónustu, því mikilvægur hluti hennar er að bera á borð fyrir ferðamanninn matarmenningu svæða og með því upplifir ferðamaðurinn menningu svæðisins í gegnum matarmenningu og matargerðarlist.

mánudagurinn 7. apríl 2008

Heimildamyndahátíð á Patreksfirði um hvítasunnuna

Íslenskar heimildarmyndir sem öðruvísi kæmu aldrei fyrir augu almennings verða meðal þess sem verður í boði á Skjaldborgar-kvikmyndahátíðinni á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina. Meðal mynda sem verða sýndar má nefna Kjötborg, sem fjallar um líf og starf síðasta kaupmannsins á horninu og samskipti hans við viðskiptavinina, Bara 5 mínútur í viðbót, mynd um tölvuleikjafíkn eftir Steindór Gunnar Steindórsson og Gufan – Ber er kverúlant að baki, eftir Ara Eldjárn sem bregður óvæntu ljósi á samfélagið í heitu pottunum.

Hátíðin fer fram í einu fallegasta og sérstakasta bíói landsins, Skjaldborg á Patreksfirði, dagana 9.-12. maí.

Fréttin er afrituð af www.bb.is.

föstudagurinn 4. apríl 2008

Tónlistarguðsþjónusta í Bolungarvík

Hólskirkja - ljósm. Sögusmiðjan
Hólskirkja - ljósm. Sögusmiðjan

Sannkölluð tónlistarguðsþjónusta verður í Hólskirkju í Bolungarvík á sunnudagskvöldið. Þá ætlar Þorteinn Haukur Þorsteinsson að mæta ásamt Gospelkór Vestfjarða og taka lagið fyrir kirkjugesti og flytja efni af væntanlegum geisladisk sem hann hyggst gefa út í sumar. Diskurinn ber heitið " Lofgjörð til þín" og inniheldur trúarlega tónlist að mestu og hefur Þorsteinn Haukur unnið að þessum geisladiski undanfarin þrjú ár. Diskurinn verður að hluta tekinn upp í Ísafjarðarkirkju og í tónlistarstúdíóinu Tankinum á Flateyri. Í guðsþjónustunni á sunnudag verður m.a. frumfluttur sálmur eftir Þorstein Hauk og mun Gospelkórinn syngja undir.

föstudagurinn 4. apríl 2008

Litróf - tónleikaröð á Vestfjörðum

Hrólfur og Íris
Hrólfur og Íris

Málmblásarinn Iris Kramer og harmonikkuleikarinn Hrólfur Vagnsson verða með röð tónleika á norðanverðum Vestfjörðum næstu daga. Tónleikaröðin, sem gengur undir nafninu Litróf, hefst í félagsheimilinu í Súðavík á föstudag klukkan 20. Því næst halda hljóðfæraleikararnir til Flateyrar og leika þar á Vagninum klukkan 20 á laugardag og enda svo tónleikaröðina í félagsheimilinu á Þingeyri klukkan 16 á sunnudag. Á dagskránni eru verk eftir Piazzolla, Gillespie, Chick Corea og Nordheim auk eigin laga og spuna þeirra Irisar og Hrólfs. Tónleikarnir eru styrktir af Menningarráði Vestfjarða og eru hluti af verkefninu „Tónleikar um alla Vestfirði“. Aðgangseyrir er 1.200 krónur.

Þetta kemur fram á vefnum www.bb.is.

föstudagurinn 4. apríl 2008

Söguslóðir 2008 - Getið í eyðurnar

Þann 10. apríl næstkomandi verður í Þjóðmenningarhúsinu haldið málþing Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu (SSF). Yfirskriftin er Söguslóðir 2008 - Getið í eyðurnar og er málþingið haldið í samvinnu við Iðnaðarráðuneytið og hagnýta menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Fjallað verður um söfn og sögusýningar á  Íslandi og túlkun þeirra á sögu lands og þjóðar frá ýmsum sjónarhornum, auk þess sem danskir sérfræðingar miðla af reynslu sinni. Fundarstjóri er Ásborg Arnþórsdóttir.

Dagskráin er svohljóðandi:

13.00  Samtök í sóknarhug.
 Rögnvaldur Guðmundsson, formaður SSF.

13.10 Ávarp.  Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri.

13.20 Gæði og miðlun.
 Eggert Þór Bernharðsson, sagnfræðingur.
13.30 With or without written evidence, how do we and our guests get closer to everyday life aspects and know-how from the past ?
   Laurent Mazet-Harhoff, fornleifafræðingur, Lejre Forsøgscenter í Danmörku.
13.50 Teaching with roles: some examples of daily dialogues i.e. about “unwritten”  everyday life aspects with guests visiting our Viking market place.
  Jutta Eberhards, leikstjórnandi, Lejre Forsøgscenter í Danmörku.

14.10    Hlé.

14.20 „Ísland, best í heimi.“
  Steinunn Kristjánsdóttir, fornleifafræðingur, lektor við HÍ og stjórnandi Skriðuklaustursrannsókna.
14.40 „Vinsamlegast snertið munina!“
  Helmut Lugmayr, leiðsögumaður og ferðaskipuleggjandi. 
15.00 Drýpur saga af hverju strái?
  Már Jónsson, sagnfræðingur.

15.20    Kaffi.

15.50 Gamalt og nýtt, satt og logið.
  Brynhildur Guðjónsdóttir, leikari og höfundur.
16.10 Má gera söguna sýnilega?
 Björn G. Björnsson, sýningahönnuður.
16.30 Óljósar sögur.
 Þór Vigfússon, sagnamaður og fyrrverandi skólameistari.

16.50 Samantekt: Skúli Björn Gunnarsson.

 
Málþingsgjald: 3.000 kr  - kaffiveitingar innifaldar. Gjald fyrir nemendur og félaga í SSF: 1.000 kr. Skráning hjá ksb@akmus.is.

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón