miðvikudagurinn 26. mars 2008

Hátíðarstemmning á páskatónleikum

Frá tónleikunum - ljósm. www.tonis.is
Frá tónleikunum - ljósm. www.tonis.is

Það ríkti sannkölluð hátíðarstemmning á fjölsóttum páskatónleikum Tónlistarskóla Ísafjarðar sem haldnir voru í Ísafjarðarkirkju síðdegis á föstudaginn langa undir yfirskriftinni Heimsins ljós. Hátt á annað hundrað áheyrendur sóttu tónleikana og ljóst að þeir kunnu vel að meta þetta framtak.

Á tónleikunum komu fram strengjasveit, einleikarar, sönghópar og upplesarar, alls um 25 manns og fluttu valda þætti úr meistaraverki Bachs, Jóhannesarpassíunni. Það var pólski fiðluleikarinn Janusz Frach, serm átti hugmyndina að þessum óvenjulegu tónleikum, valdi þætti úr passíunni, útsetti, æfði verkið og stjórnaði flutningnum. Markmiðið var að kynna Vestfirðingum eitt af merkustu verkum tónbókmenntanna og veita kennurum og nemendum tækifæri til að taka þátt í flutningi þeirra auk þess að að bjóða heimafólki og gestum Skíðavikunnar upp á að hlýða á tónlist sem fjallar um boðskap páskahátíðarinnar. Þá voru tónleikarnir liður í afmælishaldi Tónlistarskóla Ísafjarðar sem fagnar 60 ára afmæli á þessu ári.

Kammersveitina skipuðu nokkrir nemendur og kennarar Tónlistarskóla Ísafjarðar ásamt framhaldsnemum úr Listaháskóla Íslands og víðar sem tengjast Vestfjörðum á einn eða annan hátt.. Hljóðfæraleikararnir eru Janusz Frach, Maksymilian Frach, Geirþrúður Guðjónsdóttir og Halldór Sveinsson á fiðlu, Bjarni Frímann Bjarnason á víólu, Þorbjörg Daphne Hall á selló og Iwona Frach á orgel. Nokkrir stuttir einleikskaflar voru í höndum Arnþrúðar Gísladóttur á þverflautu, Madis Mäekalle á kornett og Þrastar Jóhannessonar á gítar. Sönghóparnir eru tveir, annar þeirra var að mestu skipaður ungum söngnemum og kórstúlkum sem stunda söng- eða hljóðfæranám við Tónlistarskóla Ísafjarðar en í hinum hópnum voru nokkrir ungir drengir, sem einnig stunda nám við skólann.

Upplesturinn skipaði stóran sess í flutningnum.  Pétur Markan guðfræðinemi las texta guðspjallamannsins, en Þórunn Arna Kristjánsdóttir leiklistarnemi og söngkona flutti aðra texta, ljóð, hugleiðingar og útlegging á söguþræðinum. Í Jóhannesarpassíunni er rakin píslarsaga Jesú Krists eins og hún kemur fyrir í Jóhannesarguðspjalli Nýja testamentisins. Óhætt er að fullyrða að flytjendum á tónleikunum hafi tekist að koma þessari dramatísku sögu til skila til áheyrenda á áhrifamikinn hátt, því að flutningurinn tókst með miklum ágætum, hvort sem um var að ræða söng, hljóðfæraleik eða upplestur. Hrifning og gleði ríkti meðal áheyrenda að loknum tónleikunum enda var allur heildarsvipur þeirra með geðþekkum og hátíðlegum brag, sem bar vitni ást og virðingu flytjendanna á viðfangsefnunum.

Fréttatilkynning frá Tónlistarskóla Ísafjarðar - www.tonis.is.

þriðjudagurinn 25. mars 2008

Vinnuhelgi í Skrímslasetrinu

Vinnutörn í Skrímslasetrinu
Vinnutörn í Skrímslasetrinu

Skrímslakarlarnir fimm, þeir Arnar, Gísli, Kári, Maggi og Valdimar skruppu í vinnuferð til Bíldudals um páskana. Unnið var við að koma upp lofti og einangrun í það rými sem hýsa mun m.a. eldhús setursins og gekk verkið vel.

Nú er búið að skipta um þakjárn á öllu húsinu og megnið af útivinnu því lokið. Verið er að gera gólf í móttöku klárt fyrir steypuvinnu en það er fyrirtækið Lás ehf sem annast þær framkvæmdir. Undirbúningsvinna við sjálfa sýninguna er farin vel af stað og margar skemmtilegar hugmyndir að fæðast.

Fara á aðra vinnuferð í apríl og auglýst er hér með eftir sjálfboðaliðum. Sú ferð á reyndar ekki bara að vera vinnuferð því ætlunin er að gera eitthvað skemmtilegt saman eins og í síðustu hópferðum. Ferðin verður auglýst síðar, þegar dagsetning hefur endanlega verið ákveðin.

Skrímslakallar vilja koma á framfæri kæru þakkæti til Einars og Bjössa fyrir hjálpina.

Þessi frétt og meðfylgjandi mynd er afrituð af www.arnfirdingur.is.

þriðjudagurinn 25. mars 2008

Einþáttungar á sviðið í vor hjá Leikfélagi Hólmavíkur

Úr Dýrunum í Hálsaskógi - ljósm. Þórður Halldórsson
Úr Dýrunum í Hálsaskógi - ljósm. Þórður Halldórsson
Í fréttatilkynningu frá Leikfélagi Hólmavíkur kemur fram að á döfinni er að setja upp nokkra einþáttunga á vegum félagsins sem áætlað er að frumsýna í maí. Áhugasamir leikarar eru því beðnir um að gefa sig fram við stjórn félagsins hið fyrsta og ekki seinna en sunnudaginn 30. mars, þar sem hefja á æfingar í byrjun apríl. Endanlegu vali á þáttum er ekki lokið, en verið er að skoða ýmsa möguleika. Heimamenn verða ráðnir til að leikstýra leikþáttunum að þessu sinni.  

Nánari upplýsingar gefa stjórnarmenn í Leikfélagi Hólmavíkur: Ása 456-3626, Svanhildur 451-3178 og Salbjörg 865-3838.
mánudagurinn 17. mars 2008

Leikhúspáskar á Ísafirði

Dimmalimm með Kómedíuleikhúsinu
Dimmalimm með Kómedíuleikhúsinu

Kómedíuleikhúsið bíður uppá sannkallaða leikhúsveislu í Tjöruhúsinu á Ísafirði um páskana. Sýndir verða leikirnir Dimmalimm og Gísli Súrsson. Á föstudaginn langa 21. mars hefst veislan með sýningu á báðum leikjunum. Dimmalimm verður sýnt kl.14 og tveimur tímum síðar eða kl.16.00 verður Gísli Súrsson á fjölunum. Á Páskadag verður önnur sýning á Dimmalimm og hefst hún einnig kl.14.00.

Miðasala er þegar hafin og er hægt að panta miða á www.komedia.is, undir Kaupa miða. Einsog mörgum er kunnugt fer hin víðfræga og árlega Skíðavika á Ísafirði fram um páskana. Óhætt er að segja að dagskráin sé glæsileg og ættu allir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi. Hæst ber að sjálfsögðu alþýðu rokkhátíðin Aldrei fór ég suður sem er nú haldin fimmta árið í röð og stendur hátíðin í tvo daga. Það verður því leikhúsrokk og allt þar á milli á Ísafirði um páskana.

mánudagurinn 17. mars 2008

Patreksdagurinn haldinn hátíðlegur

Patreksfjörður - ljósm. Sögusmiðjan
Patreksfjörður - ljósm. Sögusmiðjan
Íbúar á Patreksfirði fagna Patreksdeginum í dag í minningu heilags Patreks, verndardýrlings Íra. Að vanda verður dagskrá verður í boði sveitarfélagsins í félagsheimili Patreksfjarðar og að þessu sinni verður einleikurinn Pabbinn - Gamansamar hugleiðingar um föðurhlutverkið sýndur. Heilagur Patrekur, verndardýrlingur Íra, fæddist í Wales í kringum árið 385 og var skírnarnafn hans Maewyn. Hann var heiðingi fram að 16 ára aldri þegar hann var hnepptur í þrælahald og snerist í framhaldi af því til kristinnar trúar. Hann varð annar biskup yfir Írlandi og vann við að kristna Íra í 30 ár, oft var hann handtekinn en tókst ætíð að sleppa. Þjóðsagan segir að hann hafi m.a. reist upp fólk frá dauða og útrýmt öllum snákum á Írlandi í messu. Hann dó 17. mars árið 461 og hefur sá dagur alla tíð síðan verið haldinn hátíðlegur á Írlandi sem dagur heilags Patreks.

Lengst af voru það einungis kaþólikkar sem héldu daginn hátíðlegan á Írlandi en í seinni tíð hefur hann orðið almennur hátíðisdagur. Í Bandaríkjunum varð dagurinn að hátíðisdegi árið 1737 þegar íbúar í Boston héldu hann fyrst hátíðlegan.

Eins og ýmis örnefni hérlendis bera með sér virðist ljóst að írskra áhrifa hafi gætt við upphaf byggðar í landinu. Í hópi þeirra örnefna er nafn Patreksfjarðar.

Þessi frétt er afrituð af www.bb.is.
Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón