þriðjudagurinn 15. mars 2011

Auglýst eftir umsóknum um styrki frá Menningarráði Vestfjarða

Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarverkefna á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum.
 
Áherslur við fyrri úthlutun 2011
Hægt er að sækja um stuðning við hverskyns menningarverkefni, svo framarlega að umsókn eða verkefni stangist ekki á við úthlutunarreglur sem samþykktar eru við hverja úthlutun. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við fyrri úthlutun ársins 2011 verði horft sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða: 

# Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á Vestfjörðum.

# Verkefni sem stuðla að nýsköpun og fjölbreytni í menningartengdum verkefnum.

# Verkefni sem fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar.

# Menningarstarfsemi sem styður við ferðaþjónustu.

# Verkefni sem stuðla að þátttöku barna og unglinga í listsköpun og menningarstarfi.

  
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 14. apríl. Úthlutun fer fram í maí. Fyrirvari er gerður um undirritun nýs menningarsamnings milli ríkisvaldins og Fjórðungssambands Vestfirðinga fyrir þann tíma.
 
Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Vestfjarða á viðeigandi eyðublöðum eða í gegnum umsóknarform hér á vefnum undir tenglinum Styrkir. Umsækjendur eru eindregið hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur Menningarráðs á sama stað.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.
 

fimmtudagurinn 3. mars 2011

Umsóknarfrestur Nýsköpunarsjóðs námsmanna - 7. mars kl. 16:00

Nú er orðið tímabært að skila umsóknum um styrki úr Nýsköpunarsjóði námsmanna, en sá sjóður getur nýst menningarstofnunum vel við að ráða námsmenn til verkefnavinnu, rannsókna og nýsköpunar og þróa þannig starfsemi sína.

Markmið Nýsköpunarsjóðs námsmanna er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða háskólanema í grunn- og meistaranámi í sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni.

 

  • Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja.
  • Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein.
  • Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna.
  • Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna.
  • Stjórn er heimilt að veita forgang verkefnum taki fyrirtæki eða aðrir aðilar þátt í kostnaði.
  • Úthlutun liggur fyrir í byrjun apríl 2011
  •  

    Hverjir geta sótt um?

    1)    Háskólanemar í grunn- og meistaranámi

    2)    Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir

    Sjá nánar á www.rannis.is.

    sunnudagurinn 20. febrúar 2011

    Átak til atvinnusköpunar

    Átak til atvinnusköpunar  er styrkáætlun iðnaðarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd iðnaðarráðuneytisins. Næsti umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2011. Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands - www.nmi.is.

    sunnudagurinn 20. febrúar 2011

    Bókmenntasjóður auglýsir eftir umsóknum

    Bókmenntasjóður hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til útgáfu-, þýðingar- og ferðaverkefna og er umsóknarfrestur til 15. mars. Hlutverk Bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Sjóðurinn styrkir m.a. útgáfu frumsaminna verka og þýðingar bókmennta á íslensku, en stuðlar einnig að kynningu íslenskra bókmennta heima og erlendis. Umsóknareyðublöð og upplýsingar er að finna á heimasíðu sjóðsins www.bok.is og einnig á skrifstofu hans.

    mánudagurinn 14. febrúar 2011

    Menning í dag, menning á morgun?

    Föstudaginn 18. febrúar 2011 efna Menningarhúsið Hof og Tónlistarskólinn á Akureyri til málþings um menningarmál, með áherslu á Norðurland. Frummælendur eru:


    Dr. Bjarki Valtýsson, aðjúnkt við IT háskólann í Kaupmannahöfn

    Íslensk menning árið 2050 - Hlutverk sveitarfélaga


    Trond Wika, fiðluleikari/kennari

    Tengslin á milli mennta- og menningarstofnana


    Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdarstjóri Akureyrarstofu

    Mósaíkmyndin Akureyri


    Pétur Halldórsson, menningarviti

    Akureyri á heimsmælikvarða - að hugsa hátt eða lágt í menningarlífinu


    Dr. Margrét Sigrún Sigurðardóttir, lektor við viðskiptafræðideild HÍ og umsjónarmaður Rannsókarmiðstöðvar skapandi greina

    Skapandi atvinnugreinar á Íslandi


    Málþingið fer fram í Hömrum, 1. hæð, Hofi og stendur frá kl. 13:00-17:00. Nánari upplýsingar um dagskrá og frummælendur má finna á www.menningarhus.is. Fundarstjóri er Jón Hrólfur Sigurjónsson. Að erindum loknum verða pallborðsumræður. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir en skrá þarf þátttöku fyrir 17. febrúar nk. á netfangið larasoley@menningarhus.is.

    Sama dag verður sýning tileinkuð Sigfúsi Halldórssyni opnuð á göngum Tónlistarskólans en sýningin kemur frá Tónlistarsafninu í Kópavogi.

    Eldri færslur

    Valmynd

    Fréttirnar

    Póstlisti


    Atburðir

    « Febrúar 2012 »
    S M Þ M F F L
          1 2 3 4
    5 6 7 8 9 10 11
    12 13 14 15 16 17 18
    19 20 21 22 23 24 25
    26 27 28 29      
    Næstu atburðir

    Myndirnar

    Vefumsjón