fimmtudagurinn 6. mars 2008

Nýsköpunarsjóður námsmanna

Nýsköpunarsjóður námsmanna - www.nsn.is - var stofnaður 1992. Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi við háskóla til sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni. Á undanförnum  árum hefur sjóðnum tekist að ávinna sér nafn og gott orð fyrir vinnu þeirra mörg hundruð námsmanna sem starfað hafa á hans vegum og niðurstöður verkefnanna sem þeir hafa leyst af hendi.


Styrkjum er úthlutað til kennara á háskólastigi, fyrirtækja, rannsóknastofnana eða einstaklinga sem teljast hafa sérþekkingu á ákveðnu sviði, til þess að ráða stúdenta til sumarstarfa. Mark
mið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun, jafnt fyrir atvinnulíf sem á fræðasviði.

Frestur til að sækja um í sjóðinn er til 10. mars 2008.

fimmtudagurinn 6. mars 2008

Frumkvöðlastuðningur Impru - frestur til 15. mars

Næsti umsóknarfrestur um Frumkvöðlastuðning frá Impru - www.impra.is - rennur út 15. mars. Markmið Frumkvöðlastuðnings er að styðja við nýsköpunarhugmyndir einstaklinga og smærri fyrirtækja með því að veita styrki til verkefna sem stuðla að framþróun viðskiptahugmynda. Einstaklingar og fyrirtæki á landsbyggðinni eru sérstaklega hvött til að senda inn umsókn að þessu sinni.

fimmtudagurinn 6. mars 2008

Styrkir úr Æskulýðssjóði

Æskulýðssjóður starfar samkvæmt æskulýðslögum nr. 70/2007 og reglum um Æskulýðssjóð nr. 60/2008. Næsti umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er 1. apríl 2008.

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:

1. Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
2. Þjálfun forustufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
3. Nýjungar og þróunarverkefni.
4. Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði, né ferðir hópa.

Menntamálaráðherra úthlutar styrkjum úr Æskulýðssjóði að fengnum tillögum stjórnar Æskulýðssjóðs. Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og 1. nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur hverju sinni.
 
Í umsókn til Æskulýðssjóðs skulu koma fram upplýsingar um:
  -  nafn æskulýðsfélags eða æskulýðssamtaka
  -  nafn og heimilisfang umsækjanda
  -  heiti, lýsing og markmið verkefnis, ásamt kostnaðar- og tímaáætlun
  -  áætlaðan fjölda þátttakenda
  -  samstarfsaðila eftir því sem við á
  -  kennitölu og númer bankareiknings er styrkurinn á að leggjast inn á ef viðkomandi hefur fengið úthlutað styrk.
 
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins á vefslóðinni http://umsoknir.stjr.is.  

föstudagurinn 29. febrúar 2008

Bókmenntasjóður - frestur til 15. mars

Minnisvarði um Matthías Jochumsson í Þorskafirði - ljósm. Ásdís Jónsdóttir
Minnisvarði um Matthías Jochumsson í Þorskafirði - ljósm. Ásdís Jónsdóttir

Bókmenntasjóður hefur auglýst eftir umsóknum um útgáfu- og þýðingastyrki en næsti umsóknarfrestur rennur út 15. mars 2008.

Hlutverk Bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu og styrkir hann meðal annars útgáfu frumsaminna verka og þýðingar bókmennta á íslensku. Þá styrkir Bókmenntasjóður þýðingu íslenskra bókmennta á erlend tungumál og stuðlar að kynningu íslenskra bókmennta heima og erlendis.

Umsóknareyðublöð og upplýsingar fást á heimasíðu Bókmenntasjóðs, www.bok.is, en einnig á skrifstofu sjóðsins að Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík. Framkvæmdastjóri Bókmenntasjóðs er Njörður Sigurjónsson og er hægt að hafa samband við hann í gegnum tölvupóst, bok@bok.is, síma 552 8500, eða gsm 820 1919. Skrifstofa Bókmenntasjóðs er yfirleitt opin á milli níu og fimm en öruggast er að panta viðtalstíma ef fólk á erindi.

fimmtudagurinn 28. febrúar 2008

Elfar Logi tilnefndur til menningarverðlauna DV

Elvar Logi í einleiknum Skrímsli
Elvar Logi í einleiknum Skrímsli

Elfar Logi Hannesson, leikari á Ísafirði hefur verið tilnefndur til menningarverðlauna DV. Tilnefninguna hlýtur hann fyrir einleikjahátíðina Act Alone. Í tilnefningunni segir: „Einleikjahátíðin Act Alone, sem er eina reglubundna leiklistarhátíðin á Íslandi, hefur verið haldin á Ísafirði síðan 2004 og er að langmestu leyti framtak eins manns, Elfars Loga Hannessonar. Þar hefur komið fram fjöldi einleikara, bæði innlendra og erlendra, með verk af mjög ólíku tagi. Hátíðin hefur aukið á fjölbreytni íslensks leiklistarlandslags og er einnig mikilsvert framlag til menningarlífs á Vestfjörðum.“

Þrjátíu ár eru síðan Menningarverðlaunum DV var komið á fót en þau voru fyrst afhent árið 1978. Þann 5. mars verða þau afhent í tuttugasta og níunda sinn en afhending þeirra féll niður í fyrsta sinn á síðasta ári í kjölfar eigendaskipta á DV skömmu fyrir þar síðustu áramót. Verðlaun eru veitt í sjö flokkum - bókmenntum, byggingarlist, hönnun, kvikmyndalist, leiklist, myndlist og tónlist - fyrir framúrskarandi árangur á listasviðinu á síðasta ári.

Þessi frétt er afrituð af www.bb.is.

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón