föstudagurinn 1. febrúar 2008

4.400 blaðsíðna bók í tölvu

Út er komin á vegum Búnaðarsambands Vestfirðinga heildarhandrit Kjartans Ólafssonar vegna Vestfjarðaritsins Firðir og Fólk frá 900 til 1900. Um er að ræða tæplega 400 blaðsíðna verk í tölvutæku formi, en útkomin bók sem kom út árið 1999 er um 600 blaðsíður, þannig að handritið er sjöfalt meira að magni.

Frá þessu sagði í Svæðisútvarpi Vestfjarða og á www.ruv.is.

fimmtudagurinn 31. janúar 2008

Strandabyggð styrkir menningarstarf

Spunatröll Leikfélags Hólmavíkur 2006
Spunatröll Leikfélags Hólmavíkur 2006
Á fundi sveitarstjórnar Strandabyggðar í gær voru teknar fyrir beiðnir frá Leikfélagi Hólmavíkur og kvennakórnum Norðurljós um stuðning við fyrirhuguð verkefni. Báðar styrkumsóknirnar fengu jákvæða afgreiðslu. Samþykkt var samhljóða að styrkja kvennakórinn Norðurljós um 50 þúsund vegna fyrirhugaðrar útgáfu hljómdisks í sumar og Leikfélag Hólmavíkur um 200 þúsund vegna fyrirhugaðrar sýningar á Dýrunum í Hálsaskógi í samvinnu við Grunnskólann á Hólmavík og Tónskóla Hólmavíkur.
sunnudagurinn 27. janúar 2008

Sjálfboðavinna í félagsheimilinu á Hólmavík

Málað í sjálfboðavinnu - ljósm. strandir.is
Málað í sjálfboðavinnu - ljósm. strandir.is
Tvær helgar í janúarmánuði flykktust Hólmvíkingar og nærsveitungar í sjálfboðavinnu við að lagfæra Félagsheimilið á Hólmavík, sparsla og mála og í gær var svo drifið í því að leggja parket á gólf Félagsheimilisins á Hólmavík og lokið við verkið. Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri Strandabyggðar sagði að í næsta áfanga yrði settar plötur í loftið á anddyrinu, en þar er ennþá ber steypan frá byggingu hússins, en ekki er komið fram hvort það verði unnið í sjálfboðavinnu. Vonast er til að það verði gert fyrir Góugleðina, en um næstu helgi er þorrablót í húsinu og þá verður dansað á nýja parketinu undir spili hljómsveitarinnar Kokkteils sem tryllir fólkið í dansinum. 

Framhald verður á endurbótum að sögn Ásdísar og á að endurnýja vatnslagnir í húsinu og loka þakkassanum. Reikna má með að sviðið verði einnig tekið í gegn á næstunni í tengslum við uppsetningu á leikritinu Dýrunum í Hálsaskógi sem byrjað er að æfa í samvinnu Leikfélags Hólmavíkur, Grunnskólans á Hólmavík og Tónskóla Hólmavíkur.

Frá þessu sagði á www.strandir.is.
fimmtudagurinn 24. janúar 2008

Umhverfismála- og ferðaþjónustyrkir

Litlibær í Skötufirði - ljósm. Sögusmiðjan
Litlibær í Skötufirði - ljósm. Sögusmiðjan
Minnt er á að umsóknarfrestur um tvær gerðir styrkja sem tengjast menningarmálum rennur út á næstunni. Á mánudaginn 28. janúar er síðasti möguleiki að senda inn umsókn í Umhverfissjóð Ferðamálastofu, en tiltölulega þægilegt er að fylla út og senda umsóknir þar inn. Í ár er lögð áhersla á aðgengismál, sjá á heimasíðu Ferðamálastofu: http://www.ferdamalastofa.is. Á undanförnum árum hefur sjóðurinn oft styrkt verkefni sem snúast um aðgengi að sögustöðum og merkingar þeirra.

Einnig er rétt að minna á mótvægisaðgerðir ríkisstjórnar til eflingar ferðaþjónustu sem áður hefur verið sagt frá hér. Upplýsingar um þá styrki má finna á vef Ferðamálastofu www.ferdamalastofa.is. Frestur rennur út 5. febrúar. Menningarráð hvetur þá sem standa að umfangsmiklum verkefnum í menningartengdri ferðaþjónustu á Vestfjörðum eindregið til að sækja um stuðning.
laugardagurinn 19. janúar 2008

Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar

Bátur í Mjóafirði  - ljósm. Sögusmiðjan
Bátur í Mjóafirði - ljósm. Sögusmiðjan
Einn þátturinn í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar hefur nú litið dagsins ljós og spurning hvort ekki er hægt að ná hluta af þessum peningum í menningarverkefni með úthugsuðum aðgerðum og vönduðum vinnubrögðum. Hér er um að ræða 100 milljónir sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að setja árið 2008 til eflingar atvinnuþróunar og nýsköpunar á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar þorskaflaheimilda. Styrkhæf svæði eru sveitarfélög og eyjar þar sem hlutfall starfa í veiðum og vinnslu er 10% eða hærra. Áformað er að í fjárlögum ársins 2009 verði 100 milljónir sem verður ráðstafað á sama hátt. Umsóknafrestur er til 19. febrúar. 

Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við verkefni á viðkomandi svæðum. Umsækjendur geta verið sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklingar. Hámarksstyrkur er 8 milljónir króna, þó aldrei hærri en 50% af viðurkenndum heildarkostnaði verkefnisins. Hámarks hlutafé er sömuleiðis 8 milljónir króna, þó að hámarki 50% af heildarhlutafé.

Styrkir verða veittir til:
* Stofnkostnaðar annars en kaupa/byggingar húsnæðis, véla og tækja.
* Þróunarkostnaðar á vöru og/eða þjónustu
* Markaðssetningar á vöru og/eða þjónustu.
 
Við afgreiðslu umsókna verður sérstaklega litið til langtímaáhrifa verkefna, sköpunar nýrra starfa á svæðunum og hversu hratt störfin geta orðið til. Ekki er um að ræða styrki/hlutafé til menntunar- og rannsóknarverkefna.
Umsóknum skal skila á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem hægt er að nálgast á heimasíðu Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is) og atvinnuþróunarfélags Vestfjarða. Umsóknum skal skila til AtVest fyrir 19. febrúar 2008.

Tengiliður hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða fyrir umsóknirnar á Ísafirði er Ásgerður Þorleifsdóttir, asgerdur@atvest.is, s: 450-3053.
Tengiliðir á Patreksfirði eru Jón Örn Pálsson, jonp@atvest.is, og Soffía Gústafsdóttir, soffia@atvest.is, s: 456-2350.
Tengiliður á Hólmavík er Viktoría Ólafsdóttir, viktoria@atvest.is, s: 451-3521.
Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón