föstudagurinn 18. janúar 2008

Sinfóníuhljómsveit Íslands til Ísafjarđar

Hátíđarkórinn - ljósm. www.tonis.is
Hátíđarkórinn - ljósm. www.tonis.is
Fimmtudaginn 24. janúar nk. heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands tónleika á Ísafirði. Langt er um liðið síðan hljómsveitin spilaði síðast á Vestfjörðum, en tilefnið að þessu sinni er 60 ára afmæli Tónlistarskólans á Ísafirði og Tónlistarfélags Ísafjarðar, en tónlistarlíf er sem kunnugt er afar blómlegt á Ísafirði og nágrenni. Það sést best á því hvað þátttaka heimamanna er mikil á tónleikunum. Anna Áslaug Ragnarsdóttir leikur einleik í píanókonserti eftir Chopin, hátíðarkór Tónlistarskólans flytur Gloriu Poulencs með hljómsveitinni og nýtt verk, sinfonietta eftir Jónas Tómasson, verður á efnisskránni.

Á efnisskránni eru verk eftir Shostakovitsj, Chopin, Poulenc og heimamanninn Jónas Tómasson.
Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson
Einleikari: Anna Áslaug Ragnarsdóttir
Kór: Hátíðarkór Tónlistarskóla Ísafjarðar
Einsöngur: Ingunn Ósk Sturludóttir
Kórstjóri: Beáta Joó

Höfundur - Verk
Dímítrí Sjovstakovtsj: Hátíðarforleikur
Francis Poulenc: Gloria
Frédéric Chopin: Píanókonsert nr. 2
Jónas Tómasson: Sinfóníetta

Tónleikarnir hefjast kl. 19:30 og eru haldnir í Íþróttahúsinu á Torfnesi. Miðaverð er 2.000 kr. Miðasala er hafin á síðunni www.sinfonia.is og einnig er hægt að hringja í síma 545 2500 og tryggja sér miða á þennan viðburð.
 
föstudagurinn 18. janúar 2008

Act alone 2008 - Einleikin list óskast

Úr einleiknum Chick with a Trick
Úr einleiknum Chick with a Trick
Leiklistarhátíðin Act alone á Ísafirði verður haldin dagana 2.-6. júlí í sumar og er þetta fimmta árið í röð sem hátíðin er haldin. Act alone er eina árlega leiklistarhátíðin á Íslandi og er aðgangur ókeypis, en sá háttur hefur verið hafður á frá upphafi. Það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem stendur fyrir Act alone og er Kómedíuleikarinn, Elfar Logi Hannesson, listrænn stjórnandi gleðinnar.

Undirbúningur fyrir Act alone 2008 er langt kominn og vinnur nú listrænn stjórnandi að mótun dagskrárinnar en enn er þó hægt að bæta við nokkrum sýningum og einleiknum listauppákomum. Þeir sem hafa áhuga á að koma með einleik eða einleikna uppákomu á Act alone 2008 eru beðnir um að setja sig í samband við hátíðarhaldara á netfangið komedia@komedia.is

Act alone hátíðin hefur stækkað ár frá ári í fyrra bættist t.d. myndlistin inn í dagskrána þegar boðið var uppá sýningu á verkum tveggja einfara í íslenskri myndlist. Í ár bætast tvær nýjar listgreinar inní Act alone flóruna það er dans og tónlist. Act alone er því ekki aðeins leiklistarhátíð heldur er hún nú orðin fjölbreytt listahátíð. Act alone hefur þegar sannað tilgang sinn og er í dag ein stærsta listahátíðin á landsbyggðinni. Þegar hafa verið bókaðar tvær einleiknar danssýningar og einnig verður boðið upp á einleik á fiðlu.

Fjölmargir íslenskir einleikir verða á dagskrá Act alone 2008 og alla vega tvær erlendar gestasýningar, þar á meðal er verðlaunasýning frá Búlgaríu sem nefnist Chick with a Trick. Nánari upplýsingar um Act alone eru á heimasíðu hátíðarinnar www.actalone.net.
laugardagurinn 12. janúar 2008

Sjórćningjar í startholunum

Fréttamaður Tíðis kom við í smiðjunni á Vatneyri á Patreksfirði í vikunni og náði tali af Ólafi Engilbertssyni sýningahönnuði og Öldu Davíðsdóttur yfirsjóræningja. Ólafur var kominn vestur til að skoða húsið og mun í framhaldinu hefjast handa við hönnun sýningarinnar sem sett verður upp á næstunni. Það var hugur í þeim og tjáðu þau fréttamanni að nú bíða Sjóræningjar spenntir eftir því að fá afhentan þann hluta smiðjunnar sem ætlað er að taka fyrst í notkun svo hægt sé að byrja á tiltekt og viðgerðum.

Áætlanir Sjóræningja gera ráð fyrir að taka fyrsta hluta hússins, u.þ.b. 100 m2, í notkun í vor, næstu 100 m2 vorið 2009 og síðan verður unnið að viðgerðum og bætt við sýninguna eftir því sem fjármagn leyfir.

Sögur af sjóránum eru Ólafi ekki ókunnar en síðastliðið vor setti hann upp sýningu um Tyrkjaránið í Vestmannaeyjum og hann sá einnig um hönnun sýningar um Spánverjavígin svokölluðu hjá Snjáfjallasetrinu á Ströndum. Ólafur er sagnfræðingur og hefur nýverið lokið MA-námi í hagnýtri menningarmiðlun en hefur einnig mikla reynslu af gerð leikmynda fyrir sjónvarp og leikhús. Þá má nefna að Ólafur hefur tekið þátt í endurreisnarstarfi því sem unnið hefur verið í Selárdal undanfarin ár og tók þátt í gerð heimildamyndar um Samúel Jónsson sem sýnd var árið 1999.

Alda sagði einnig frá því að þessa dagana vinnur Oddný Guðmundsdóttir landslagsarkitekt að hönnun útisvæðis og framkvæmdir hefjast við það um leið og svæðið losnar.

Þessi frétt er afrituð af www.patreksfjordur.is.

föstudagurinn 11. janúar 2008

Alţjóđleg ráđstefna um viđburđi og hátíđir í Reykjavík

Kassabílarall á Hamingjudögum á Hólmavík - ljósm. Arnar S. Jónsson
Kassabílarall á Hamingjudögum á Hólmavík - ljósm. Arnar S. Jónsson
Í fréttatilkynningu frá Höfuðborgarstofu er vakin athygli á spennandi ráðstefnu sem haldin verður í Reykjavík dagana 27. - 29. febrúar næstkomandi. Um er að ræða árlega ráðstefnu IFEA samtakanna - International Festivals and Events Association.

Samtökin voru stofnuð í Bandaríkjunum 1956 en hafa vaxið þannig að nú eru starfrækt sjálfstæð IFEA samtök í Evrópu, Ástralíu og víðar. Í samtökunum eru fulltrúar frá háskólum, borgum, sveitarfélögum og sjálfstæðum hátíðahöldurum. Samtökin halda stóra ráðstefnu á hverju ári, síðast í Aþenu, þar sem hugað er að ýmsum þáttum hátíða og menningarviðburða, dæmisögur sagðar og hátíðir kynntar.

Höfuðborgarstofa lagði inn umsókn fyrir tveim árum að ráðstefnan yrði haldin hér í Reykjavík í ár og stjórn samtakanna samþykkti það. Til Reykjavíkur eru því að koma u.þ.b. 200 þátttakendur sem allir vinna við viðburði og hátíðir af ýmsu tagi frá bæði Evrópu og Bandaríkjunum til að ræða um hátíðir og viðburði. Um leið gefst gestum tækifæri til að kynnast Reykjavík og því öfluga menningarstarfi sem þar þrífst.

Ráðstefnan hefur fengið yfirskriftina Nurturing Creativity: contrasts, challenge, change. Skráning fer fram á http://ifeaeurope.com/reykjavik/ og þar eru einnig nánari upplýsingar um ráðstefnuna.
föstudagurinn 11. janúar 2008

Aldrei fór ég suđur fékk Eyrarrósina 2008

Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður sem haldin verður á Ísafirði um páskana fékk í gær afhenta Eyrarrósina 2008 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Eyrarrósin eru helstu verðlaun sem afhent eru til menningarverkefna á landsbyggðinni og eru ár hvert veitt einu framúrskarandi verkefni. Fylgja peningaverðlaun að upphæð 1,5 milljónir. Önnur verkefni sem valin voru úr hóp umsækjenda um verðlaunin í hóp þriggja verkefna sem til greina komu að þessu sinni voru Safnasafnið í Eyjafirði og karlakórinn Heimir í Skagafirði.

Í úrskurði nefndarinnar segir að Aldrei fór ég suður sé óvenjuleg og spennandi tónlistarhátíð, þar sem ungt fólk er í fararbroddi. Merk tónlistarhefð svæðisins  samtvinnuð því nýjasta sem er að gerast í tónlistarlífi landsins. Verkefnið hefur á undanförum árum vaxið og eflst og vakið mikla athygli langt út fyrir landsteinana og skipar þannig alveg sérstakan sess í öflugu tónlistarlífi landsins. Hefur dregið athygli að landshlutanum með einstöku framlagi eins fremsta tónlistarmanns landsins, Mugison. Öflugur stuðningur kraftmikilla einstaklinga og bæjarfélagsins hafa  tryggt hátíðina í sessi sem eina öflugustu menningarhátíð landsins. Þetta er í annað skipti sem Aldrei fór ég suður er tilnefnt til Eyrarrósarinnar.

Á síðasta ári fékk Strandagaldur Eyrarrósina 2007 fyrir Galdrasýningu á Ströndum og önnur verkefni, þannig að segja má að íbúar Vestfjarðakjálkans séu svo sannarlega framarlega á landsvísu á menningarsviðinu. Menningarráð Vestfjarða óskar aðstandendum Aldrei fór ég suður hjartanlega til hamingju með verðskulduð verðlaun. Verðlaunin eru rós í hnappagat menningarlífs á Vestfjörðum og það á svo sannarlega líka við um hátíðina sjálfa.
Eldri fćrslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburđir

« Maí 2012 »
S M Ţ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Nćstu atburđir

Myndirnar

Vefumsjón