þriðjudagurinn 8. janúar 2008

Styrkir til námsgagnagerðar

Hrafnseyri - Ljósm. Arnar S. Jónsson
Hrafnseyri - Ljósm. Arnar S. Jónsson
Menntamálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr Þróunarsjóði námsgagna og er hægt að nálgast allar frekari upplýsingar og umsóknareyðublað undir þessari slóð: menntamalaraduneyti.is/frettir/Auglysingar/allar/nr/4367. Nokkrar af þeim umsóknum sem bárust Menningarráði Vestfjarða fyrir fyrstu úthlutun 2007 snérust um námsgagnagerð og safnkennsluefni tengt menningararfinum, en fengu ekki stuðning að þessu sinni. Menningarfulltrúi hefur nú bent þessum umsækjendum á þann möguleika að sækja um styrk úr Þróunarsjóði námsgagna og annað vestfirskt skólafólk er einnig eindregið hvatt til þess að skoða þennan sjóð og sækja um stuðning við verkefni í hann.
þriðjudagurinn 8. janúar 2008

160 milljónir í eflingu ferðaþjónustu

Í Brautarholti í Selárdal - ljósm. Arnar S. Jónsson
Í Brautarholti í Selárdal - ljósm. Arnar S. Jónsson
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 160 milljónum króna til eflingar ferðaþjónustu á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar á veiðiheimildum. Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu. Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við verkefni til atvinnusköpunar í ferðaþjónustu á ofangreindum svæðum. Umsækjendur geta verið sveitarfélög, einstaklingar og fyrirtæki og er hámarksstyrkur til hvers verkefnis 8 milljónir kr. Menningarráð Vestfjarða hvetur þá sem standa fyrir viðamiklum menningar- og ferðaþjónustuverkefnum á Vestfjörðum eindregið til að sækja um stuðning.

Gert er ráð fyrir að verkefnin verði unnin á árunum 2008-2009 og verður styrkurinn greiddur í tvennu lagi, helmingur hvort ár. Seinni greiðslan er háð árangursmælingu í samræmi við ákvæði í umsókn, en hver umsækjandi gerir tillögu að árangursmælikvarða fyrir viðkomandi verkefni.


Við afgreiðslu umsókna verður sérstaklega litið til langtímaáhrifa verkefna á sköpun nýrra starfa á svæðunum og hversu hratt störfin geta orðið til. Ekki er um að ræða styrki til menntunar eða rannsókna. Umsóknum skal skila á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem hægt er að nálgast á vef Ferðamálastofu.


Umsóknum skal skila til Byggðastofnunar, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki eða Ferðamálastofu, Lækjargötu 3, 101 Reykjavík fyrir 5. febrúar 2008.

fimmtudagurinn 3. janúar 2008

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn

Árið 2008 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum nokkrir ferðastyrkir. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar. Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík og á skrifstofu Norræna félagsins í Stokkhólmi, Box 127 07, S-112 94 Stockholm.

Umsóknareyðublöð er einnig að finna á vefslóðinni norden.se. Umsóknir skulu sendar á skrifstofu Norræna félagsins í Stokkhólmi. Umsóknir skal stíla á stjórn Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins/Svensk-isländska samarbetsfonden. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2008. Styrkjunum verður úthlutað í mars.

miðvikudagurinn 2. janúar 2008

Eyrarrósin afhent í næstu viku

Dorrit Moussaieff afhendir forsvarsmönnum Strandagaldurs Eyrarrósina 2007
Dorrit Moussaieff afhendir forsvarsmönnum Strandagaldurs Eyrarrósina 2007
Menningarverðlaunin Eyrarrósin sem er sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent í fjórða sinn á Bessastöðum fimmtudaginn 10. janúar n.k. Frá þessu segir á fréttavefnum www.strandir.is. Að venju hafa þrjú verkefni verið tilnefnd úr hópi umsækjenda og eitt þeirra hlýtur Eyrarrósina sem innifelur auk heiðursins fjárstyrk að upphæð kr. 1,5 milljón og verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur til eignar. Hin tvö verkefnin hljóta síðan 200 þúsund króna framlag. Öll verkefnin hljóta að auki tíu flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Strandagaldur hlaut Eyrarrósina á síðasta ári. Verkefnin sem eru tilnefnd að þessi sinni koma frá Ísafirði og úr Skagafirði, auk þess sem Safnasafnið í Eyjafirði er tilnefnt annað árið í röð.

Karlakórinn Heimir

kórstarf í Skagafirði í 80 ár og aldarafmæli Stefáns Íslandi
Karlakórinn Heimir er glæsilegur fulltrúi íslenskrar karlakórahefðar og hefur í gegnum tíðina verið einn af hornsteinum menningarlífs í Skagafirði. Dagskrá í tilefni aldarafmælis Skagfirðingsins og söngvarans Stefáns Íslandi lýsir metnaði og ræktarsemi við íslenskra atvinnusöngvara um leið og það gefur kórnum einstakt tækifæri til að takast á við stórbrotið verkefni. Samstarf við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og öflugir einsöngvarar  gera verkefnið sérlega glæsilegt og markar 80 ára afmæli kórsins með eftirminnilegum hætti.

Aldrei fór ég suður
tónlistarhátíð á Ísafirði
Óvenjuleg og spennandi tónlistarhátíð, þar sem ungt fólk er í fararbroddi. Merk tónlistarhefð svæðisins  samtvinnuð því nýjasta sem er að gerast í tónlistarlífi landsins. Verkefnið hefur á undanförum árum vaxið og eflst og vakið mikla athygli langt út fyrir landsteinana og skipar þannig alveg sérstakan sess í öflugu tónlistarlífi landsins. Hefur dregið athygli að landshlutanum með einstöku framlagi eins fremsta tónlistarmanns landsins, Mugison. Öflugur stuðningur kraftmikilla einstaklinga og bæjarfélagsins hafa  tryggt hátíðina í sessi sem eina öflugustu menningarhátíð landsins. Þetta er í annað skipti sem Aldrei fór ég suður er tilnefnt til Eyrarrósarinnar.

Safnasafnið
við Svalbarðseyri
Sérstaða Safnasafnsins í íslensku safna og sýningarhaldi er óumdeild, en safnið er hið eina sinnar tegundar á Íslandi. Með metnaðarfullu starfi árum saman hefur tekist að skapa einstakan ramma utan um alþýðulist, nýrri list og handverk af ýmsu tagi. Sýningar safnsins hafa borið faglegum metnaði gott vitni og sérstök verkefni safnsins og sýningar stefna saman ýmsum listastefnum og tvinna saman starf hámenntaðra listamanna og áhugafólks. Frumkvæði einstaklinga í þessu einstaka safni er aðdáunarvert og einstakt. Safnasafnið hlaut einnig tilnefningu í fyrra.

Önnur verkefni auk Strandagaldurs sem fengið hafa Eyrarrósina eru LungA –listahátíð ungs fólks, Austurlandi og Þjóðlagahátíðin á Siglufirði.

Eyrarrósin á rætur sínar í því að árið 2004 gerðu Listahátíð í Reykjavík, Byggðarstofnun og Flugfélag Íslands með sér samkomulag um eflingu menningarlífs á landsbyggðinni til þriggja ára í tilraunaskyni. Afar vel hefur tekist til svo ákveðið var að endurnýja samstarfið á síðasta ári. Markmiðið með Eyrarrósinni er að stuðla að auknu menningarlífi á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu.
Dorrit Moussaieff forsetafrú afhendir verðlaunin en hún er jafnframt verndari Eyrarrósarinnar.

Fréttin er fengin á héraðsfréttavefnum www.strandir.is.
mánudagurinn 10. desember 2007

Skrímslasetur á Bíldudal og Sjóræningjahús á Patreksfirði fengu hæstu styrkina

Styrkjum Menningarráðs Vestfjarða fyrir árið 2007 var úthlutað við hátíðlega athöfn í Náttúrugripasafninu í Bolungarvík föstudaginn 7. desember 2007. Við athöfnina fluttu Gunnar Hallsson formaður Menningarráðs Vestfjarða og Eiríkur Þorláksson fulltrúi Menntamálaráðuneytisins erindi, en athöfninni stjórnaði Anna Guðrún Edvardsdóttir formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga.

Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða kynnti síðan niðurstöður Menningarráðsins varðandi styrkveitingar árið 2007 áður en boðið var upp á léttar veitingar. Menningaratriði voru auk þess á dagskránni, brot af því besta úr vestfirsku menningarlífi. Hægt er að nálgast yfirlit yfir þau verkefni sem fengu styrki hér á síðunni undir tenglinum Styrkir.
Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón