Menningarráð úthlutar styrkjum 2007 nk. föstudag
Menningarfulltrúi Vestfjarða mun í dag og á morgun senda öllum umsækjendum svör með niðurstöðum varðandi umsóknir þeirra.
Næstkomandi föstudag, þann 7. desember kl. 14:00, mun Menningarráð Vestfjarða síðan úthluta verkefnastyrkjum vegna ársins 2007 við hátíðlega athöfn í Náttúrugripasafninu í Bolungarvík. Þess er eindregið vænst að fulltrúi eða fulltrúar styrkhafa mæti á úthlutunina, en láti vita í netfangið menning@vestfirdir.is ef enginn kemur fyrir þeirra hönd.
