fimmtudagurinn 3. mars 2011

Umsóknarfrestur Nýsköpunarsjóðs námsmanna - 7. mars kl. 16:00

Nú er orðið tímabært að skila umsóknum um styrki úr Nýsköpunarsjóði námsmanna, en sá sjóður getur nýst menningarstofnunum vel við að ráða námsmenn til verkefnavinnu, rannsókna og nýsköpunar og þróa þannig starfsemi sína.

Markmið Nýsköpunarsjóðs námsmanna er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða háskólanema í grunn- og meistaranámi í sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni.

 

  • Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja.
  • Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein.
  • Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna.
  • Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna.
  • Stjórn er heimilt að veita forgang verkefnum taki fyrirtæki eða aðrir aðilar þátt í kostnaði.
  • Úthlutun liggur fyrir í byrjun apríl 2011
  •  

    Hverjir geta sótt um?

    1)    Háskólanemar í grunn- og meistaranámi

    2)    Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir

    Sjá nánar á www.rannis.is.

    sunnudagurinn 20. febrúar 2011

    Átak til atvinnusköpunar

    Átak til atvinnusköpunar  er styrkáætlun iðnaðarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd iðnaðarráðuneytisins. Næsti umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2011. Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands - www.nmi.is.

    sunnudagurinn 20. febrúar 2011

    Bókmenntasjóður auglýsir eftir umsóknum

    Bókmenntasjóður hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til útgáfu-, þýðingar- og ferðaverkefna og er umsóknarfrestur til 15. mars. Hlutverk Bókmenntasjóðs er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu. Sjóðurinn styrkir m.a. útgáfu frumsaminna verka og þýðingar bókmennta á íslensku, en stuðlar einnig að kynningu íslenskra bókmennta heima og erlendis. Umsóknareyðublöð og upplýsingar er að finna á heimasíðu sjóðsins www.bok.is og einnig á skrifstofu hans.

    mánudagurinn 14. febrúar 2011

    Menning í dag, menning á morgun?

    Föstudaginn 18. febrúar 2011 efna Menningarhúsið Hof og Tónlistarskólinn á Akureyri til málþings um menningarmál, með áherslu á Norðurland. Frummælendur eru:


    Dr. Bjarki Valtýsson, aðjúnkt við IT háskólann í Kaupmannahöfn

    Íslensk menning árið 2050 - Hlutverk sveitarfélaga


    Trond Wika, fiðluleikari/kennari

    Tengslin á milli mennta- og menningarstofnana


    Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdarstjóri Akureyrarstofu

    Mósaíkmyndin Akureyri


    Pétur Halldórsson, menningarviti

    Akureyri á heimsmælikvarða - að hugsa hátt eða lágt í menningarlífinu


    Dr. Margrét Sigrún Sigurðardóttir, lektor við viðskiptafræðideild HÍ og umsjónarmaður Rannsókarmiðstöðvar skapandi greina

    Skapandi atvinnugreinar á Íslandi


    Málþingið fer fram í Hömrum, 1. hæð, Hofi og stendur frá kl. 13:00-17:00. Nánari upplýsingar um dagskrá og frummælendur má finna á www.menningarhus.is. Fundarstjóri er Jón Hrólfur Sigurjónsson. Að erindum loknum verða pallborðsumræður. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir en skrá þarf þátttöku fyrir 17. febrúar nk. á netfangið larasoley@menningarhus.is.

    Sama dag verður sýning tileinkuð Sigfúsi Halldórssyni opnuð á göngum Tónlistarskólans en sýningin kemur frá Tónlistarsafninu í Kópavogi.

    fimmtudagurinn 3. febrúar 2011

    Tríótónleikar í Hömrum sunnudag kl. 15:00

    Tríótónleikar verða haldnir á vegum Tónlistarfélags Ísafjarðar í Hömrum kl. 15:00  sunnudaginn 6. febrúar. Á tónleikunum koma fram listakonurnar Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran, Herdís A. Jónsdóttir víóla og Sólveig A. Jónsdóttir, píanó.

     
    Efnisskrá tónleikanna er einstaklega fjölbreytt og söngröddin, víólan og píanóið óma í blönduðum samsetningum og útsetningum íslenskra og erlendra tónskálda. M.a. verða flutt lög eftir Atla Heimi Sveinsson, Tryggva M. Baldvinsson, Weber og Elgar.


    Tónleikarnir eru 3. áskriftartónleikar Tónlistarfélags Ísafjarðar á starfsárinu og haldnir í samvinnu við FÍT (Félag íslenskra tónlistarmanna). Áskriftarkort gilda, en einnig verða seldir miðar við innganginn á 2.000 krónur og 1.500 krónur fyrir ellilífeyrisþega, en skólafólk 20 ára og yngra fær ókeypis aðgang.

     

    Um listakonurnar:

    Ingibjörg Guðjónsdóttir
    stundaði söngnám við Tónlistarskóla Garðabæjar og framhaldsnám við Indiana University í Bandaríkjunum.  Hún hefur einnig notið leiðsagnar hinnar frægu sópransöngkonu Ileanu Cotrubas. Ingibjörg hefur haldið fjölda einsöngstónleika, tekið þátt í óperum, tónlistarhátíðum og verið einsöngvari með sinfóníuhljómsveitum, kammersveitum og kórum bæði hér á landi og erlendis. Síðastliðin ár hefur hún lagt kapp á að flytja samtímatónlist og frumflutt tónverk íslenskra tónskálda, m.a. með kammersveitinni Caput. Ingibjörg hefur gefið út tvær geislaplötur, Óperuaríur (2005) með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Ó Ó Ingibjörg (2007) þar sem hún syngur íslensk sönglög í frumlegum búningi með bræðrum sínum, djasstónlistarmönnunum Óskari saxófónleikara og Ómari gítarleikara. Ingibjörg er stofnandi og stjórnandi Kvennakórs Garðabæjar en einnig starfar hún sem söngkennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Tónlistarskóla Álftaness.

    Herdís A. Jónsdóttir
    Herdís lauk prófum frá Tónlistarskólanum á Akureyri 1983, Tónlistarskólanum í Reykjavík 1986 og Tónlistarháskólanum í Stuttgart 1992. Hún er fastráðinn víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur spilað með fjölmörgum hljómsveitum og kammerhópum hér á landi og erlendis. Herdís er meðlimur í Dúó Stemmu og hefur haldið fjölda tónleika fyrir börn á öllum aldri.

    Sólveig Anna Jónsdóttir

    Sólveig Anna hóf píanónám á Ísafirði hjá Ragnari H. Ragnar en stundaði síðan nám við Tónlistarskólann á Akureyri, lauk kennara- og einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og stundaði framhaldsnám við University of Houston í Texas. Hún hefur lengst af haft píanókennslu og meðleik að aðalstarfi og kennir nú við Tónlistarskóla Kópavogs. Sólveig Anna hefur haldið fjölda tónleika hérlendis og erlendis sem meðleikari einsöngvara og kóra, leikið kammertónlist af ýmsu tagi og tekið þátt í flutningi verka með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslensku Óperunni og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Hún hefur verið píanóleikari Kvennakórs Garðabæjar frá hausti 2007. 

    Eldri færslur

    Valmynd

    Fréttirnar

    Póstlisti


    Atburðir

    « Maí 2012 »
    S M Þ M F F L
        1 2 3 4 5
    6 7 8 9 10 11 12
    13 14 15 16 17 18 19
    20 21 22 23 24 25 26
    27 28 29 30 31    
    Næstu atburðir

    Myndirnar

    Vefumsjón