fimmtudagurinn 30. september 2010

Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir styrkumsóknum

Hér með er auglýst eftir styrkumsóknum vegna seinni úthlutunar Menningarráðs Vestfjarða árið 2010. Bent er sérstaklega á nánari upplýsingar í úthlutunarreglum sem samþykktar hafa verið fyrir þessa úthlutun, en þær er að finna undir tenglinum Styrkir hér til hægri. Einnig gefur menningarfulltrúi Vestfjarða allar nánari upplýsingar í s. 891-7372 eða menning@vestfirdir.is

Samkvæmt ákvörðun stjórnar Menningarráðs Vestfjarða verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur við seinni úthlutun ársins 2010:
   a. Eflingu samstarfs á sviði menningarmála á svæðinu
   b. Nýsköpun í verkefnum tengdum menningu
   c. Fjölgun atvinnutækifæra í tengslum við menningarstarf á svæðinu 
   d. Eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu og ferðatengdrar menningarstarfsemi

Umsóknarfrestur er til og með miðvikudeginum 27. október 2010.

þriðjudagurinn 3. ágúst 2010

Aðalfundur Menningarráðs Vestfjarða 4. september 2010

Ákveðið hefur verið í samráði við stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga að boða til aðalfundar Menningarráðs Vestfjarða laugardaginn 4. september  næstkomandi, í framhaldi af Fjórðungsþingi Vestfirðinga. Fundurinn verður haldinn á Hólmavík og hefst kl. 15:00, en nánari staðsetning verður kynnt síðar. Samkvæmt samþykktum Menningarráðsins velja sveitarstjórnir á starfssvæðinu fulltrúa á aðalfundar Menningarráðs Vestfjarða og fara þeir með umboð viðkomandi sveitarstjórnar í samræmi við íbúafjölda viðkomandi sveitarfélags þann 1. desember árið áður.

 

Á aðalfundi skal taka fyrir eftirfarandi mál:
 

  • Skýrsla stjórnar um starfsemi ráðsins á liðnu starfsári.
  • Ársreikningur ráðsins fyrir liðið ár lagður fram ásamt athugasemdum endurskoðenda ef einhverjar eru.
  • Kosin stjórn og varastjórn, og tveir skoðunarmenn reikninga. Skoðunarmenn má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna ráðsins.
  • Ráðsstjórn leggur fram tillögur að fjárhagsáætlun næsta árs og breytingar á framlögum skv. samningi við ríkið.
  • Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  • Önnur mál.

Á aðalfundinum verða að þessu sinni einnig teknar fyrir breytingar á samþykktum Menningarráðsins

mánudagurinn 17. maí 2010

Styrkir Menningarráðs Vestfjarða vorið 2010

Fyrri styrkúthlutun Menningarráðs Vestfjarða árið 2010 fór fram við hátíðlega athöfn á Skrímslasetrinu á Bíldudal þann 15. maí kl. 15:00. Flutt var tónlist og haldin erindi, Skrímslasetrið kynnt og skoðað, auk þess sem styrkvilyrði voru afhent og að sjálfsögðu var boðið upp á kaffi og vöfflur á eftir. Umsóknir til Menningarráðsins að þessu sinni voru 78 talsins, en alls fengu 34 verkefni stuðning að upphæð 15 milljónir samtals. Þeim fækkaði þó um eitt áður en að úthlutun kom, því einn styrkurinn var afþakkaður þar sem forsendur fyrir verkefninu höfðu breyst og það var ekki lengur framkvæmanlegt. Aftur verður auglýst eftir styrkumsóknum í haust.

Eftirtaldir aðilar og verkefni fengu stuðning frá Menningarráði Vestfjarða í maí 2010: 
 
Í einni sæng: Skáldið á Þröm - 1.000.000
Melrakkasetur Íslands: Sýning Melrakkaseturs Íslands - fræðslu miðlað til barna - 1.000.000
Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda: Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda 2010 - 1.000.000
Act alone: Act alone leiklistarhátíð 2010 - 1.000.000
Við Djúpið, félag: Tónlistarhátíðin Við Djúpið 2010 - 1.000.000

TOS ungmennaskipti: Vestfirska Veðurvölundarhúsið - 800.000
Vestfirska forlagið: Mannlíf og saga fyrir vestan fyrr og nú.
     Úrval frásagna á ensku af Vestfirðingum í blíðu og stríðu
- 750.000
Sauðfjársetur á Ströndum: Hrútar - heimildamynd - 700.000
Í einni sæng, Íslandssaga, Sigurður Ólafsson: Vaxandi Tungl - 700.000

Jóhann Ágúst Jóhannsson: Pönk á Patró - 600.000
Kómedíuleikhúsið: Leiklistarskóli Kómedíuleikhússins - 600.000
Menningarmiðstöðin Edinborg, Ísafirði: Listviðburðir í
     Edinborgarhúsi 15. apríl 2010 - nóvember 2010 -
600.000
Vesturbyggð: Sagafjords - ferðumst og fræðumst 2010 - 600.000

Gautshamar ehf: Til móts við fornan sið - 500.000
Minjasafn Egils Ólafssonar: Félagslíf í Breiðafjarðaeyjum - 400.000
Fólkvangur ehf fyrir Passport Kvikmyndir: Norð Vestur - 400.000
Björgvin Bjarnason: Vegur sem var - Myndir af Óshlíð - 350.000
Félag áhugamanna um skrímslasetur: Útgáfa á Skrímslatali eftir Þorvald Friðriksson - 300.000

Sigríður Hafliðadóttir: Sýning á gömlum munum á Litlabæ - 250.000
Sumarmarkaður Vestfjarða: Sumarmarkaður Vestfjarða 2010 - söguskilti - 250.000
Gíslastaðir Haukadal: Einstök sýning - Ísleifur Konráðsson - 250.000

Þóra Sigurðardóttir og Björn Samúelsson: DALIR og HÓLAR - Landslag 2010 - 200.000
Birgir Örn Sigurjónsson: Útgáfutónleikar Biggabix um Vestfirði - 200.000
Þröstur Jóhannesson: Svo langt sem það nær - tónleikaferð - 200.000
Minjasafn Egils Ólafssonar: Skæði - 200.000
Leikfélag Hólmavíkur, Grunnskólinn á Hólmavík, Tónskólinn á Hólmavík:
     Það er gaman að leika! (Áhugaleikarinn) - 200.000

Jón Þórðarson: Sögur úr pokahorninu - 150.000
Valgerður Rúnarsdóttir: Var það Gangári? - 125.000
Sögumiðlun ehf: Rit um bæjarbrag og atvinnulíf á Ísafirði á fjórða og fimmta áratug 20. aldar - 100.000
Claus Sterneck: Pictures - and their noises - 75.000
 
Þá var ráðstafað fjármagni  í þrjú eftirtalin samstarfsverkefni Menningarráðs með öðrum aðilum:

Samstarf: Safna-, setra- og sýningaklasi á Vestfjörðum - 200.000
Samstarf: Félag vestfirskra listamanna - 150.000
Samstarf: Námskeið um viðburðastjórnun - 50.000

miðvikudagurinn 12. maí 2010

Styrkjum úthlutað 15. maí á Skrímslasetrinu á Bíldudal

Fyrri styrkúthlutun Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2010 fer fram í Skrímslasetrinu á Bíldudal á laugardaginn kemur, 15. maí og hefst athöfnin kl. 15:00. Verða þar afhent vilyrði um styrki frá Menningarráði Vestfjarða, en alls fá 34 verkefni framlög að þessu sinni á bilinu 75 þúsund til 1 milljón, samtals að upphæð 15 milljónir. Umsóknir sem bárust að þessu sinni voru 78 og var samtals beðið um rúmar 55 milljónir í verkefnastyrki, en heildar samtala fjárhagsáætlana var þrisvar sinnum hærri.

Styrkirnir fara til margvíslegra verkefna í fjölbreyttum listgreinum og var áhersla að þessu sinni lögð á að styrkja verkefni sem fólu í sér nýsköpun og fjölgun atvinnutækifæra tengd listum og menningu, samvinnu og menningartengda ferðaþjónustu. Vestfirskt menningarlíf lætur engan bilbug á sér finna og sóknarhugur og bjartsýni eru ríkjandi. Öllum styrkumsóknum sem bárust hefur verið svarað í tölvupósti á þau netföng sem gefin voru upp í umsóknum. Heildarlisti um styrkt verkefni verður síðan birtur á vef Menningarráðs Vestfjarða og sendur fjölmiðlum eftir athöfnina á Bíldudal. Menningarráðið mun næst auglýsa eftir umsóknum um styrki í haust.

Athöfnin er öllum opin og þeir sem standa í eldlínunni í menningarstarfi á Vestfjörðum eru sérstaklega boðnir velkomnir. Á dagskrá eru erindi og afhending styrkja og í lokin á þessari formlegu athöfn verður boðið upp á veitingar.

mánudagurinn 26. apríl 2010

Kynningarfundir um norræna og evrópska menningarsjóði á Hólmavík og Ísafirði

Fundur
Fundur

Kynningarfundir um norræna og evrópska menningarsjóði verða haldnir í Þróunarsetrinu á Hólmavík þriðjudaginn 27. apríl kl. 15-17 og í  Þróunarsetrinu á Ísafirði daginn eftir, miðvikudaginn 28. apríl kl. 14-16.  Allir eru velkomnir. Fyrir utan að þekking á þessum möguleikum er mikilvæg  grunnþekking fyrir alla ráðgjafa um atvinnuþróun, nýsköpun og uppbyggingu, geta t.d. menningarstofnanir og söfn, fræðasetur og rannsóknastofnanir, ferðaþjónar, félög og samstarfsverkefni, viðburðastjórar, sveitarstjórnir og fleiri aðilar tekið þátt í eða staðið fyrir styrkhæfum verkefnum.

Staðsetning:
Hvíti bærinn Borgarnesi, 26. apríl kl. 11:00 - 13:00
Ráðhúsloftið Stykkishólmi, 26. apríl kl. 15:00 - 17:00
Leifsbúð í Búðardal, 27. apríl kl. 10:00 - 12:00
Þróunarsetrið á Hólmavík 27. apríl kl.15:00 -17:00
Þróunarsetur Vestfjarða á Ísafirði 28. apríl kl. 14:00-16:00

Norrænu upplýsingaskrifstofan á Akureyri, Norræna húsið og Upplýsingaþjónusta menningaráætlunar Evrópusambandsins í samstarfi við Menningarráð Vesturlands og Menningarráð Vestfjarða og fleiri, boða til kynningarfunda um norræna og evrópska menningarsjóði.

Flestir þeir sem vinna að menningartengdum verkefnum þurfa að sækja um styrki til fjármögnunar þeirra. Þá er mikilvægt að vita til hvaða verkefna er hægt að fá styrki, frá hverjum og hvernig. Kynning verður á: Norræna menningarsjóðnum, Menningargáttinni / Kulturkontakt Nord og Menningaráætlun Evrópusambandsins.
 
Farið verður yfir helstu áherslur þegar sótt er um styrki og umsóknareyðublöð sjóða verða kynnt. Fyrirlesarar eru:
María Jónsdóttir forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar á Akureyri, Þuríður Helga Kristjánsdóttir starfsmanna- og verkefnastjóri Norræna húsinu og Rósa B. Þorsteinsdóttir forstöðumaður Upplýsingaþjónustu menningaráætlunar Evrópusambandsins. Aðgangur ókeypis.

Sjá nánar: Norræna upplýsingaskrifstofan: www.akmennt.is/nu, Kulturkontakt Nord: www.kulturkontaktnord.org, Upplýsingaþjónusta menningaráætlunar Evrópusambandsins: www.evropumenning.is.
 

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón