föstudagurinn 9. apríl 2010

Auglýst eftir umsóknum í tónlistarsjóð

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði, samkvæmt lögum um tónlistarsjóð nr. 76/2004 og reglur nr. 125/2005, til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu júní til ársloka 2010. Næst verður auglýst eftir umsóknum í október 2010 vegna verkefna á fyrri hluta árs 2011.

Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Nánari upplýsingar um hlutverk sjóðsins, úthlutunarreglur, umsóknir og mat á þeim eru á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

 

Lögð er áhersla á að umsóknir og fylgigögn með þeim berist mennta- og menningarmálaráðuneyti áður en umsóknarfrestur rennur út. Að öðrum kosti eru þær ekki teknar til umfjöllunar. Minnt er á að styrkþegar úr fyrri úthlutunum þurfa að hafa skilað inn greinargerð vegna þeirra verkefna áður en nýjar umsóknir eru teknar til umfjöllunar.

 

Gert er ráð fyrir að umsóknir hljóti afgreiðslu tónlistarráðs innan tíu vikna frá auglýstum skilafresti. Við mat á umsóknum er m.a. tekið tillit til listræns gildis og mikilvægis verkefnis fyrir almenna tónlistarstarfsemi og eflingu íslenskrar tónlistar, gildi og mikilvægis verkefnis fyrir kynningu og markaðssetningu íslenskrar tónlistar, starfsferils, faglegs og/eða listræns bakgrunns umsækjanda og fjárhagsgrundvallar verkefnisins.

 

Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í mennta- og menningarmálaráðuneyti eða á vef þess. Umsóknir skulu vera í þríriti og öll eintök undirrituð. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 17 . maí 2010.

 

Umsóknir skal senda á póstfangið:
Mennta- og menningarmálaráðuneyti,
tónlistarsjóður,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

fimmtudagurinn 8. apríl 2010

Yfir 90 milljónir til norræns menningarstarfs

Sólarupprás - ljósm. Sögusmiðjan
Sólarupprás - ljósm. Sögusmiðjan

Fréttatilkynning frá Norræna menningarsjóðnum
Norræni menningarsjóðurinn hefur nýlokið fyrstu úthlutun árið 2010 og hafa 65 verkefni víðsvegar á Norðurlöndum fengið samtals yfir 4 milljónir danskar krónur.

Meðal verkefna sem hlotið hafa styrki má nefna:

Sabaar African Festival på Åland
Nordisk Ballet Konference, Linköping
Kristendommens historie på Grønland
Finland Nordiske mesterskaber for DJs, København
Verdensmusik Aida Nadeem Oslo og Stavanger

Listvinafélag Hallgrímskirkju og LungA á Seyðisfirði fengu úthlutað samtals 150.000 dönskum krónum í þessari fyrstu úthlutun ársins. Hægt er að  skoða lista yfir verkefnin 65 sem hafa fengið styrki á heimasíðu sjóðsins www.nordiskkulturfond.org.

Norræni menningarsjóðurinn styrkir menningarsamstarf á milli Norðurlandanna fimm auk sjálfstjórnarsvæðanna Grænlands, Færeyja og Álandseyja. Sjóðurinn er samstarfsvettvangur sem styrkir norrænt menningarsamstarf í víðum skilningi. Sjóðurinn úthlutar yfir 25 milljónum danskra króna árlega til menningarverkefna á Norðurlöndunum og til norrænna verkefna utan Norðurlandanna.

Þau verkefni, sem fá og hafa fengið styrki, spegla breidd menningarlífsins og spanna allt frá myndlist, leiklist, tónlist og dans til bókmennta og nýrra miðla. Menntun, rannsóknir og þverfagleg verkefni eru einnig styrkt af Sjóðnum. Innan menntunar- og rannsóknasviðsins er lögð áhersla á verkefni með tengsl við menningu og listir.

Árið 2010 leggur Sjóðurinn sérstaka áherslu á eftirfarandi fimm atriði:

- verkefni fyrir og með börnum og unglingum
- verkefni með áherslu á aukna þekkingu á mismunandi tungumálum Norðurlandanna og þýðingu tungumálsins við að varðveita menningu
- verkefni sem hvetja til þátttöku nýrra Norðurlandabúa í norrænu menningarsamstarfi
- verkefni sem unnin eru á fámennum svæðum á Norðurlöndum
- verkefni sem hvetja til samstarfs milli vestnorrænu landanna (Færeyja, Grænlands og Íslands) og hinna Norðurlandanna

fimmtudagurinn 8. apríl 2010

Vestanvindar - laugardaginn 10. apríl

Fréttatilkynning

Njörður P. Njarðvík kynnir verk sín á bókmenntakynningunni Vestanvindar í Bryggjusal kl. 15.30. Davíð Ólafsson söngvari mun flytja lög eftir Njörð við undirleik Margrétar Gunnarsdóttur. Aðgangur er ókeypis, - kaffiveitingar. Menningarmiðstöðin Edinborg.

 

Njörður fæddist á Ísafirði 30. júní 1936. Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1955, lauk Cand. mag-prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands árið 1964 og Fil. dr. prófi í norrænni fílólógiu frá Göteborgs-Universitet árið 1993. 

Njörður er prófessor emeritus við Háskóla Íslands og hefur starfað sem rithöfundur um langt skeið, bækur hans hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál.

Hann var kennari við Gagnfræðaskólann við Vonarstræti 1959-1961 og Hagaskólann 1961-1962. Blaðamaður á Vísi 1962-1963. Kennari við KÍ 1964-1965 og MR 1965-1966. Framkvæmdastjóri Bókaútgáfunnar Skálholts 1964-1966. Lektor við Háskólann í Gautaborg 1966-1971. Lektor í íslenskum bókmenntum við HÍ 1971-1977, dósent 1977-1993 og prófessor frá 1993.

Njörður hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín. Hann hlaut Verðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir þýðingu barnabókar árið 1986. Árið 1987 var hann sæmdur riddarakross fyrsta stigs finnsku Ljónsorðunnar. Hann varð heiðursfélagi Finlands Svenska Författareförening 1992. Kjörinn ævifélagi Clare Hall College, University of Cambridge árið 1995, sama ár var hann sæmdur stórriddarakrossi finnsku Ljónsorðunnar árið 1995. Árið 2000 hlaut hann verðlaun sænsku akademíunnar fyrir kynningu á sænskri menningu.

 

fimmtudagurinn 8. apríl 2010

Óskað eftir ábendingum fyrir safnaverðlaunin 2010

Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað - ljósm. Sögusmiðjan
Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað - ljósm. Sögusmiðjan

Í ár verða safnaverðlaunin veitt í áttunda skiptið. Íslensku safnaverðlaunin eru veitt af Íslandsdeild alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félagi íslenskra safna og safnmanna (FÍSOS). Félag íslenskra safna og safnmanna og Íslandsdeild ICOM óska nú eftir ábendingum frá almenningi, stofnunum og félagasamtökum um söfn sem þykja skara fram úr í uppsetningu, fræðslu, þjónustu, útgáfu og starfi.

 

Ábendingum skal skilað fyrir 19. apríl næstkomandi til Safnaráðs, Þjóðminjasafninu við Suðurgötu, 101 Reykjavík eða á netfangið safnarad@safnarad.is merkt Safnaverðlaun.

 

Valnefnd mun velja úr þrjú söfn eða verkefni sem hljóta tilnefningu á alþjóðadegi safna þann 18. maí næstkomandi, og mun afhending verðlaunanna fara fram á íslenska safnadaginn þann 11. júlí 2010.
 

fimmtudagurinn 8. apríl 2010

Menningarlandið 2010

Mennta- og menningarmálaráðuneyti boðar til menningarþings undir yfirskriftinni Menningarlandið 2010 - Mótun menningarstefnu, á Hótel Loftleiðum, föstudaginn 30. apríl 2010 kl. 12:30-16:45. Á þinginu verður kynnt greining á núverandi menningarstefnu á sviði lista, menningararfs, safna, fjölmiðla og æskulýðs- og íþróttamála. Tilgangur þingsins er að fá viðbrögð við fyrirliggjandi greiningu og að fá fram hugmyndir sem gætu nýst í áframhaldandi vinnu við mótun menningarstefnu til framtíðar.


Einnig verður kynnt sóknaráætlun stjórnvalda í menningarmálum og nýleg menningarneyslukönnun.

Á þinginu verður unnið í vinnuhópum með fjóra málaflokka sem eru:

# listir

# menningararfur og söfn

# fjölmiðlar

# íþrótta- og æskulýðsmál

Við skráningu þurfa þingfulltrúar að velja einn af málaflokkunum. Áhugasamir eru beðnir að skrá sig á þingið og í hópana á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis eigi síðar en 26. apríl.

Menningarþingið er öllum opið en nauðsynlegt getur reynst að takmarka þátttöku vegna húsrýmis en ráðstefnusalurinn tekur 200 manns í sæti. Aðgangur er ókeypis.

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón