Menningarráð Vestfjarða
Stjórn Menningarráðs Vestfjarða er nú skipuð fimm fulltrúum sveitarfélaga á Vestfjörðum og gildir sú skipun til Fjórðungsþings Vestfirðinga árið 2012. Fulltrúar skiptast þannig að tveir fulltrúar eru skipaðir af Ísafjarðarbæ, einn fulltrúi er frá Strandasýslu og Reykhólahreppi, einn fulltrúi er frá Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi og einn fulltrúi frá Bolungarvík og Súðavíkurhreppi.
Starfsemi Menningarráðsins byggir annars vegar á menningarsamningi milli ríkisvaldsins og Fjórðungssambands Vestfirðinga fyrir hönd sveitarfélaganna um samstarf þessara aðila um menningarmál. Hins vegar á samningi sveitarfélaga á Vestfjörðum um menningarmál. Auk þess eru í gildi samþykktar Menningarráðs Vestfjarða sem samþykktar voru á aðalfundi 2010 sem segja til um vinnubrögð og verklag, stjórnarskipun, aðalfund og starfshætti almennt.
Samkvæmt samþykktum og samningum skal Menningarráð Vestfjarða vera samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Vestfjörðum um menningarmál og hafa meðal annars það hlutverk að samræma aðgerðir á sviði menningarmála á starfssvæðinu, standa fyrir öflugu þróunarstarfi, úthluta fjármagni til menningarverkefna á Vestfjörðum samkvæmt samningi ríkis og sveitarfélaga og hafa eftirlit með framkvæmd þess samnings.
Núgildandi samningar:
Menningarsamningur menningarmálaráðherra, iðnaðarráðherra og Fjórðungssambands 2010
Samningur sveitarfélaga á Vestfjörðum 2010
Samþykktir Menningarráðs Vestfjarða, samþykktar á aðalfundi 2010
Eldri samningar og skjöl:
Samningur milli menntamálaráðherra, samgönguráðherra og Fjórðungssambands Vestfirðinga 2007
Samningur milli sveitarfélaga á Vestfjörðum 2007
Stofnsamþykkt og starfsreglur Menningarráðs Vestfjarða 2007