Aðalfundur Menningarráðs Vestfjarða 2008 - 18. júní 2008

Fyrsti aðalfundur Menningarráðs Vestfjarða haldinn í húsnæði Grunnskóla Patreksfjarðar miðvikudaginn 18. júní 2008 og hófst fundurinn kl. 14:00. Mættir voru: Ólína Þorvarðardóttir, Sveinn Valgeirsson, Jón Jónsson, Leifur R. Jónsson, Valdemar Guðmundsson, Dagbjört Hjaltadóttir, Gerður Eðvarsdóttir, Gunnar Hallsson, Ragna Jóhanna Magnúsdóttir, Úlfar B. Thoroddsen og Bríet Arnardóttir
 
Formaður, Gunnar Hallson, setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Fundarstjóri kosinn Úlfar B. Thoroddssen og Bríet Arnardóttir fundarritari.
 
Dagskrá skv. 10. grein samþykktar Menningarráðs Vestfjarða:
 
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi ráðsins á liðnu starfsári.
Skýrslu stjórnar flutti Gunnar Hallsson formaður og fór yfir helstu störf Menningarráðs á liðnu starfsári.
 
2. Ársreikningur sl. starfsárs lagður fram.
Jón Jónsson menningarfulltrúi fór yfir ársreikninginn. Rekstrartekjur ársins 30 millj. Rekstargjöld 25,4 milljónir, fjármunatekjur 0,4 millj. Rekstarafgangur ársins kr. 5,0 millj. Ársreikningurinn ásamt fylgigögnum og skýringum, undirritaður af stjórn Menningarráðsins og Guðmundi E. Kjartanssyni endurskoðanda lagður fram til samþykktar og samþykktur samhljóða. 
 
3. Kosin stjórn, varastjórn og tveir skoðunarmenn reikninga
Þar sem stjórn er skv. bráðabirgðaákvæði kosin til ársins 2010 eru ekki stjórnarkosningar að þessu sinni.
Kosning tveggja skoðunarmanna, formaður leggur fram tillögu um Valdemar Guðmundsson og Rögnu Jóhönnu Magnúsdóttir. Tillagan borin upp til atkvæða og samþykkt samhljóða.
 
4. Fjárhagsáætlun lögð fram
Helstu tölur fjárhagsáætlunar 2008.
Rekstrartekjur kr. 48,8 millj.,
Rekstrargjöld samtals kr. 47,5 sem sundurliðast svona:      
laun og launatengd gjöld kr. 8,7 millj.
skrifstofa og stjórnun 3,8 millj.
menningarstyrkir kr. 35,0 millj.
Áætlaður rekstrarafgangur kr. 1,3 millj.
 
Fjárhagsáætlunin lögð fram til samþykktar og samþykkt samhljóða.
 
5. Þóknun til stjórnarmanna
Tillaga um þóknun til fulltrúa í Menningarráði:
Þóknun til stjórnar verði eftirfarandi: Mánaðarkaup, hlutfall af þingfararkaupi, 3,25% fyrir óbreytta fulltrúa og 4,25% fyrir formann, í krónum talið um 17 þús fyrir stjórnarmenn og kr. 23 þús fyrir formann. Tillagan borin upp til samþykktar og samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
 
6. Önnur mál:
a) Jón Jónsson um úthlutun styrkja og tilhögun við úthlutunina.
b) Ólína Þorvarðardóttir um úthlutunarreglur og skilyrði til úthlutunar. Umræður spunnust um málefnið.
c) Jón Jónsson um fyrirhugað námskeið í gerð umsókna í styrktarsjóði.
 
Fundargerð upplesin og borin upp til samþykktar og samþykkt samhljóða.
 
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:40.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón