Menningarráð - 11. febrúar 2009

Þann 11. febrúar 2009 var fundur í Menningarráði Vestfjarða. Fundurinn var haldinn  í Skrifstofuhótelinu á Ísafirði og setti Gunnar Hallsson fundinn kl. 15:00. Á staðnum voru Gunnar Hallsson formaður, Dagbjört Hjaltadóttir og Gerður Eðvarsdóttir. Í síma voru Ólína Þorvarðardóttir og Arnar S. Jónsson. Einnig sat Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða fundinn og ritaði fundargerð.


1. Samráðsfundur formanna Menningarráða landshlutanna í janúar 2009
2. Skýrsla menningarfulltrúa um verkefni og stöðu mála
3. Verkefnastyrkir 2009 - vinnuáætlun og úthlutunarreglur
4. Samstarf við Listahátíð í Reykjavík
5. Þróunarverkefni með Háskólasetri Vestfjarða
6. Stefnumótun
7. Önnur mál

 

1. Samráðsfundur formanna Menningarráða landshlutanna í janúar 2009
Gunnar fór yfir starfsemi Menningarráðsins frá síðasta fundi og þar á meðal samráðsfund formanna menningarráða Austurlands, Norðurlands eystra, Norðurlands vestra, Suðurlands, Vestfjarða og Vesturlands og menningarfulltrúa sömu landshluta, sem haldinn var á Skeiðum þann 16. janúar sl. Þar voru samþykktar eftirtaldar ályktanir:

Ályktun um endurskoðun menningarsamninga ríkis og landshlutasamtaka sveitarfélaga
Fundur formanna menningarráða og menningarfulltrúa, haldinn á Skeiðum þann 16. janúar 2009, leggur áherslu á að stefnt verði að því að nýir menningarsamningar við landshlutasamtök sveitarfélaga liggi fyrir til undirskriftar í síðasta lagi í lok maí 2009. Samningarnir verði til þriggja ára og verði takmarkaðir við sömu landsvæði og viðkomandi landshlutasamtök, þannig að áfram haldist sá styrkur sem hlýst af núverandi samstarfi stofnana þeirra.

Ályktun um mat á árangri menningarsamninga
Fundur formanna menningarráða og menningarfulltrúa, haldinn á Skeiðum þann 16. janúar 2009, ályktar eftirfarandi:
Í samningum ríkis og sveitarfélaga um menningarmál eru ákvæði um mat á árangri samninga. Fundurinn telur að þörf sé á að skýra þessi ákvæði nánar og að samræma skuli verklag við þetta mat.

Um er að ræða tvö matsverkefni; annars vegar úttekt á starfsháttum menningarráðanna og hins vegar mat á áhrifum menningarsamninganna til eflingar menningarstarfi.

Mat á starfsháttum ráðanna ætti að vera á vegum ráðuneytanna, þar sem ekki er eðlilegt að ráðin beri sjálf ábyrgð á mati á þáttum, s.s. meðferð sinni á opinberu fjármagni, gagnsæi umsóknaferlis og rekstri.

Mat á áhrifum menningarsamninganna er víðtækt rannsóknarverkefni á sviði menningarfræða. Það tekur m.a. til fjölgunar starfa í menningarmálum, menningar sem búsetuþáttar, margfeldisáhrifa menningarstarfs, framboðs og eftirspurnar. Þessi viðfangsefni kalla á langtímarannsókn sem eðlilegt er að vinna af rannsóknastofnunum. Þetta verkefni er ekki á færi menningarráðanna einna og því beinum við þeim tilmælum til ráðuneytanna að hafa frumkvæði að því að leiða saman rannsóknasamfélagið og menningargeirann til að skipuleggja og framkvæma þetta mat.

Ályktun um þátt menningarráða í byggðamálum
Fundur formanna menningarráða og menningarfulltrúa, haldinn á Skeiðum þann 16. janúar 2009, minnir samtök sveitarfélaga, iðnaðarráðuneyti, menntamálaráðuneyti, samgönguráðuneyti og stofnanir þeirra á að skapandi
atvinnugreinar hafa vaxandi vægi í uppbyggingu íslensks samfélags. Því ítrekum við nauðsyn þess að litið sé á menningarráðin og menningarfulltrúa sem lykilþátttakendur í stoðkerfi atvinnulífsins og þróunarverkefnum á sviði
byggðamála.

Ályktun um Menningarsjóð félagsheimila
Fundur formanna menningarráða og menningarfulltrúa, haldinn á Skeiðum þann 16. janúar 2009, harmar þá ákvörðun fjárveitingavaldsins að ekki skuli lagðir fjármunir til Menningarsjóðs félagsheimila á árinu 2009. Einnig er gerð athugasemd við þá tilkynningu menntamálaráðuneytisins, er birtist á heimasíðu þess, að vísa umsækjendum til menningarráða landshluta. Nokkuð er síðan að flest ráðin gerðu áætlanir um ráðstöfun fjármuna vegna yfirstandandi árs og er ekki rými fyrir úthlutanir til verkefna Menningar­sjóðsins þar. Óskað er eftir því að tilkynning ráðuneytisins verði fjarlægð af heimasíðu þess.

 

Jóni og Gunnari falið að fylgja þessum málum eftir og senda ályktanir frá fundi formannanna til viðkomandi aðila.

 

Rætt um ráðstefnuna Menningarlandið sem menntamálaráðuneytið hyggst standa fyrir í Stykkishólmi 11.-12. maí. Fram kom að menningarfulltrúi mun flytja erindi á ráðstefnunni og voru meðlimir menningarráðs hvattir til að mæta.

 

2. Skýrsla menningarfulltrúa um verkefni og stöðu mála

Jón gaf stutta skýrslu um verkefni sem unnið er að og málþing og ráðstefnur sem sóttar hafa verið af menningarfulltrúa. Ákveðið í framhaldinu að hafa fund aftur 11. mars kl. 15:00 til að ræða stöðu mála og verkefni, menningarsamning við ríkið og úttekt á árangri.

 

Samþykkt var að kalla eftir umsögnum frá styrkþegum við fyrstu úthlutun um stöðu mála við verkefni sem enn er ólokið.

 

3. Verkefnastyrkir 2009 - vinnuáætlun og úthlutunarreglur

Rætt um fyrirkomulag við úthlutun og var niðurstaðan að hafa tvær úthlutanir á árinu 2009. Töldu menn að sú aðferð kæmi sér betur fyrir umsækjendur og menningarstarfið í fjórðungnum. 

 

Rætt um úthlutunarreglur fyrir fyrri úthlutun 2009 og breytingar frá fyrri reglum. Menningarfulltrúa falið að setja regurnar upp í samræmi við umræður á fundinum og að stefnt er að því að þær verði ræddar áfram í tölvupósti. Auglýst verði sem fyrst eftir að reglur liggi fyrir og verði umsækjendum gefinn a.m.k. mánuður til að skila umsóknum frá því að auglýst er.

 

4. Samstarf við Listahátíð í Reykjavík

Samþykkt að taka virkan þátt í þróunarverkefni með Listahátíð í Reykjavík, en ætlunin er að setja upp myndlistarsýningar í völdum vitum í öllum landshornum. Samþykkt var framlag að upphæð 400 þúsund til verkefnisins.

 

5. Þróunarverkefni með Háskólasetri Vestfjarða

Kynnt hugmyndavinna um þróunarverkefni á vegum Menningarráðs fyrir ungt fólk á Vestfjörðum. Hugmyndum var tekið mjög vel og samþykkt að vinna að þessu þróunarverkefni sem Menningarráðið myndi kosta. Menningarfulltrúa falið að halda vinnu við verkefnið áfram í samvinnu við Háskólasetri Vestfjarða.

 

6. Stefnumótun

Rætt var um hvort ástæða væri til að endurnýja eða endurskoða stefnumótun í menningarmálum fyrir Vestfirði. Samþykkt var að menningarráð myndi taka þá stefnumótun sem gerð var vorið 2007 og fyrir liggur til skoðunar og leggja mat á hvort öllum þáttum hennar sé fylgt sem skyldi og hvort ástæða sé til að endurnýja hana.

 

7. Önnur mál

Ekki voru önnur mál á dagskrá.

 

Fundi slitið kl. 16:30.

 

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón