Menningarráð - 11. júlí 2007
Annar fundur Menningarráðs Vestfjarða haldinn þann 11. júlí 2007 kl. 16.00 í fundarsal Þróunarseturs á Ísafirði.
Mættir voru: Gunnar Hallsson (Bolungarvík/Súðavík), Ólína Þorvarðardóttir (Ísafjarðarbær), Leifur Ragnar Jónsson (Vesturbyggð/Tálknafjörður) og Arnar S. Jónsson (Strandabyggð/Reykhólar). Gerður Eðvarsdóttir (Ísafjarðarbær) forfallaðist, í hennar stað mætti Inga S. Ólafsdóttir (Ísafjarðarbær). Sveinn Valgeirsson (Fjórðungssamband) forfallaðist, í hans stað mætti Helga Dóra Kristjánsdóttir (Fjórðungssamband). Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (starfsmaður) sat einnig fundinn og ritaði fundargerð.
1. Samþykktir
Samþykkt að senda samþykkt Menningarráðs Vestfjarða til sveitarfélaga á Vestfjörðum.
2. Starfslýsing starfsmanns – Umsóknir – Ferli ráðningar
Farið yfir fyrirliggjandi drög að starfslýsingu starfsmanns menningarráðs og þau samþykkt með breytingum er gerðar voru á fundinum.
- Farið yfir umsóknir sem hafa komið inn, sem og hvernig ferli ráðninga verður.
- Samþykkt að senda starfsauglýsinguna í endurbirtingu hjá Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sunnudaginn 15. júlí. Starfsmanni falið að ganga frá því.
3. Úthlutunarreglur
Formaður hvetur ráðsstjórnina til að íhuga mögulegar áherslur í úthlutunarreglum ársins eða hvort að það eigi að vera sérstakar áherslur í fyrstu úthlutunar.
- Einnig var bent á að gott væri að setja upp sérstök umsóknareyðublöð um styrki til ráðsins. Ráðsmenn beðnir um að íhuga kosti þessa fram að næsta fundi.
4. Önnur mál
- Rætt um mögulegt rekstrarform Menningarráðs Vestfjarða.
- Samþykkt að stefna að næsta fundi þriðjudaginn 24. júlí n.k.
Fundi slitið kl. 17.40.