Menningarráð - 17. apr. 2008

Fundur var haldinn í Menningarráði Vestfjarða á Skrifstofuhótelinu á Ísafirði þann 17.  apríl 2008. Á fundinn voru mættir Gunnar Hallsson formaður, Dagbjört Hjaltadóttir, Gerður Eðvarsdóttir, Sveinn Valgeirsson, Arnar S. Jónsson og Ólína Þorvarðardóttir. Leifur Ragnar Jónsson tók þátt í fundinum gegnum símfundabúnað. Einnig sat fundinn Jón Jónsson menningarfulltrúi sem skrifaði fundargerð.
 
Ekki var enn orðið fært milli norðursvæðis og suðursvæðis Vestfjarða þegar fundurinn var haldinn, þrátt fyrir að tímasetning fundar hefði verið miðaður við þá opnun. 
 
Fundurinn hófst kl. 13:00 og stýrði Gunnar Hallsson fundinum.
 
Fyrir var tekið:
 
1. Úthlutun verkefnastyrkja 2008
Farið yfir allar umsóknir sem ekki höfðu verið lagðar til hliðar fyrir fundinn og þær ræddar ítarlega og tekin ákvörðun um hvort verkefni yrðu styrkt. Að því búnu var farið yfir og teknar ákvarðanir um styrkupphæðir til einstakra verkefna. Samþykkt var að styrkja 48 verkefni að þessu sinni.
 
2. Önnur mál
a) Úthlutun Menningarstyrkja fer fram á Hólmavík á sumardaginn fyrsta, 24. apríl, ásamt vígslu á Þróunarsetri á Hólmavík. Iðnaðarráðherra og menntamálaráðherra hefur verið boðið á athöfnina.
 
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið um kl. 16:30.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón