Menningarráð - 18. júní 2008

Stjórnarfundur var haldinn í Menningarráði Vestfjarða á veitingastaðnum Þorpinu á Patreksfirði þann 18. júní 2008. Á fundinn voru mættir Gunnar Hallsson formaður, Dagbjört Hjaltadóttir, Gerður Eðvarsdóttir, Sveinn Valgeirsson, Ólína Þorvarðardóttir og Leifur Ragnar Jónsson. Arnar S. Jónsson átti ekki heimangengt á fundinn. Einnig sat fundinn Jón Jónsson menningarfulltrúi sem skrifaði fundargerð.
 
Fundurinn hófst að aflokinni sameiginlegri máltíð á veitingastaðnum Þorpinu kl. 12:30 og stýrði Gunnar Hallsson formaður fundinum.
 
Fyrir var tekið:
 
1. Undirritun og samþykkt ársreikninga fyrir árið 2007
Jón Jónsson menningarfulltrúi lagði fram og kynnti ársreiking fyrir árið 2007 sem unninn er af Löggiltum endurskoðendum Vestfjörðum efh. Reikningurinn hafði áður verið kynntur fyrir meðlimum Menningarráðsins og sendur sveitarfélögum á Vestfjörðum svo þau gætu kynnt sér hann fyrir aðalfund Menningarráðsins. Ársreikningurinn var samþykktur samhljóða og undirritaður á staðnum.
 
2. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2008
Menningarfulltrúi lagði fram tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2008, en fjárhagsáætlun skal leggja fyrir aðalfund Menningarráðs Vestfjarða. Áætlunin hafði áður verið kynnt í tölvupósti. Gert er ráð fyrir að 35 milljónum verði úthlutað í styrki á árinu, en þegar hefur 17,6 milljónum verið úthlutað. Var áætlunin samþykkt samhljóða sem tillaga fyrir aðalfund Menningarráðs Vestfjarða. Rætt var um að framlög sveitarfélaga til reksturs og styrkja Menningarráðsins yrðu innheimt á haustmánuðum.
 
3. Tillaga um þóknun til Menningarráðsins
Rætt var ítarlega um þóknun til meðlima Menningarráðsins og viðruð ólík sjónarmið þar um, en samkvæmt samþykktum ráðsins skal það leggja fram tillögu um þóknun fyrir aðalfund. Samþykkt var að Menningarráðið legði fram sem tillögu til aðalfundar að áfram yrði miðað við mánaðarlaun sem væru hlutfall af þingfararkaupi, 3,25% fyrir óbreytta fulltrúa og 4,25% fyrir formann. Er þar um að ræða hækkun á viðmiðinu úr 2,75% fyrir óbreytta fulltrúa og 3,75% fyrir formann.
 
4. Önnur mál
Ekki gafst tími til að ræða önnur mál og var þeim lið frestað til næsta fundar Menningarráðsins.
 
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið um kl. 13:30.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón