Menningarráð - 21. nóv. 2007
Fundur var haldinn í Menningarráði Vestfjarða í Þróunarsetrinu á Ísafirði þann 21. nóvember 2007. Á fundinn voru mættir allir fulltrúar í menningarráði; Gunnar Hallsson formaður, Dagbjört Hjaltadóttir sem skipuð var í Menningarráð af Fjórðungssambandi í byrjun nóvember, Gerður Eðvarsdóttir, Leifur Ragnar Jónsson, Sveinn Valgeirsson, Arnar S. Jónsson og Ólína Þorvarðardóttir. Einnig sat fundinn Jón Jónsson menningarfulltrúi sem skrifaði fundargerð.
Fundurinn hófst kl. 15:00 og stýrði Gunnar Hallsson fundinum.
Fyrir var tekið:
1. Úthlutun verkefnastyrkja 2007
Fyrir lágu 104 umsóknir um verkefnastyrki, en frestur til að sækja um rann út 2. nóvember síðastliðinn. Fulltrúar í menningarráði höfðu kynnt sér umsóknirnar fyrir fund. Rætt var um hugsanlegt vanhæfi meðlima Menningarráðs vegna tengsla við einstakar menningarstofnanir og verkefni og ákveðið að fylgja stífum reglum um vanhæfi og að fulltrúar menningarráðs vikju af fundi við umræðu og afgreiðslu einstakra umsókna ef þeir tengdust verkefnum.
Þá var farið yfir allar umsóknir og þær ræddar og tekin ákvörðun í hverju tilviki hvort verkefni væru styrkt eða ekki. Ákvörðun um allnokkrar umsóknir var frestað þar til síðar á fundinum og þær teknar til umræðu aftur eftir matarhlé milli 19:30-20:00. Þá var farin önnur umferð yfir þau verkefni sem frestað var og þau voru rædd betur með hliðsjón af samræmi og úthlutunarreglum og ákvarðanir teknar. Loks var farið yfir styrkupphæðir til einstakra verkefna með hliðsjón af fjárhagsáætlunum og umbeðnum styrk. Í lok fundar lá fyrir tillaga um úthlutun og var samþykkt að Gunnar Hallsson formaður myndi ganga endanlega frá yfirliti með hliðsjón af því fjármagni sem til ráðstöfunar væri og það yrði síðan rætt í tölvupósti eða á öðrum fundi ef með þyrfti.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið laust eftir kl. 23:00.
