Menningarráð - 24. apr. 2008

Fundur var haldinn í Menningarráði Vestfjarða í Þróunarsetrinu á Hólmavík þann 24. apríl 2008. Á fundinn voru mættir Gunnar Hallsson formaður, Dagbjört Hjaltadóttir, Gerður Eðvarsdóttir, Sveinn Valgeirsson, Arnar S. Jónsson og Ólína Þorvarðardóttir. Leifur Ragnar Jónsson hafði boðað forföll. Einnig sat fundinn Jón Jónsson menningarfulltrúi sem skrifaði fundargerð.
 
Fundurinn hófst kl. 12:30 og stýrði Gunnar Hallsson fundinum.
 
Fyrir var tekið:
 
1. Aðalfundur Menningarráðs
Rætt um fyrirhugaðan aðalfund Menningarráðs Vestfjarða sem halda á fyrir lok júní ár hvert samkvæmt samþykktum ráðsins. Ákveðið var að halda aðalfund Menningarráðs Vestfjarða á sunnanverðum Vestfjörðum þetta árið og var rætt um miðvikudaginn 18. júní í því sambandi. Rætt um skipulagningu fundarins og rætt um að ársskýrsla verði send út með fundarboði. Einnig þarf að ganga frá ársreikningi fyrir aðalfund og kom fram að Löggiltir endurskoðendur á Ísafirði eru að vinna í reikingnum.
 
2. Önnur mál
a) Rætt um sérstakar áherslur við úthlutun styrkja við næstu úthlutun í haust, en engar ákvarðanir teknar. Fram kom áhugi á að styrkja ákveðna þætti sérstaklega við næstu úthlutun.
b) Menningarfulltrúi skýrði frá því að styrktum verkefnum hafði fækkað um eitt frá úthlutun þar sem ein umsókn hafði verið dregin til baka vegna þess að það verkefni var að fullu fjármagnað.
c) Strandamönnum voru færðar hamingjuóskir með nýtt Þróunarsetur að Höfðagötu 3 á Hólmavík, en þar hefur menningarfulltrúi aðsetur. Eftir úthlutun styrkja Menningarráðs Vestfjarða og vígslu Þróunarsetursins síðar í dag, verður opið hús í Þróunarsetrinu að Höfðagötu 3 þar sem gestum og gangandi er boðið að líta við og kynna sér starfsemina.
 
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 13:15.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón