Menningarráð - 26. sept. 2007
Fundur var haldinn í Menningarráði Vestfjarða í Þróunarsetrinu á Ísafirði þann 26. september 2007. Á fundinn voru mættir Helga Dóra Kristjánsdóttir, Gerður Eðvarsdóttir, Leifur Ragnar Jónsson, Sveinn Valgeirsson og Gunnar Hallsson. Í síma voru Arnar Jónsson og Ólína Þorvarðardóttir. Einnig sat fundinn Jón Jónsson menningarfulltrúi sem skrifaði fundargerð. Fundurinn hófst kl. 16:30 og stýrði Gunnar Hallsson fundinum.
Fyrir var tekið:
1. Úthlutunarreglur vegna styrkja 2007
Farið var yfir drög að úthlutunarreglum fyrir verkefnastyrki á árinu 2007 og þau lesin upp af Gunnari Hallssyni formanni. Rætt var um reglurnar og lítilsháttar breytingar gerðar á þeim og þær síðan samþykktar svohljóðandi:
1. Tilgangur styrkjanna er, skv. samningi sveitarfélaga á Vestfjörðum og menntamálaráðuneytisins og samgönguráðuneytis, að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum.
2. Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Vestfjörðum.
3. Verkefnastyrkir Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2007 verða veittir til verkefna sem unnin hafa verið, hófust eða munu hefjast á árinu 2007. Þannig er mögulegt í þetta sinn að fá styrk til verkefna sem lokið er þegar umsóknarfrestur rennur út.
4. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að árið 2007 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
a. Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
b. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
c. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
d. Verkefni sem stuðla að eflingu fagþekkingar á sviði menningar og lista.
5. Umsækjendur verða að geta sýnt fram á fleiri fjárhagslega bakhjarla en Menningarráð Vestfjarða. Styrkir ráðsins geta aldrei verið hærri fjárhæð en sem nemur helmingi alls kostnaðar við verkefni.
6. Með umsókninni verður að fylgja greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun) eða yfirlit um þessa þætti eftir því sem við á. Einnig þarf greinargóðar upplýsingar um aðstandendur og samstarfsaðila og hlutverk þeirra í verkefninu.
7. Umsækjandi ábyrgist að fullnægjandi leyfi séu fyrir framkvæmd verkefnis og notkun heimilda ef þarf, sem og öðrum þáttum verkefnisins.
8. Menningarráð Vestfjarða og styrkþegi gera með sér sérstakan samning sem m.a. kveður á um fyrirkomulag greiðslu, lokaskýrslu og eftirfylgni. Útborgun styrkja er að hluta til háð skilum lokaskýrslu.
9. Menningarráðið mun ekki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- eða endurbótastyrki. Ekki verða veittir styrkir vegna skráningar á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíða, almennra samkoma (s.s. tónleika og sýninga án sýnilegrar sérstöðu), safnaðarstarfs og hefðbundins menningarstarfs innan skóla.
10. Menningarráð Vestfjarða heitir fyllsta trúnaði gagnvart umsækjendum varðandi umsóknir þeirra.
11. Styrkþegi skal skila lokaskýrslu, skriflegri lýsingu á framkvæmd og árangri verkefnisins. Eins ber styrkþega að veita Menningarráði Vestfjarða upplýsingar um framkvæmd verkefnisins og skila áfangaskýrslu þegar og ef eftir því er leitað.
12. Umsóknir þurfa að vera á eyðublöðum frá Menningarráðinu. Umsóknir sem sendar eru í pósti þurfa að vera póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.
Menningarfulltrúa var falið að kanna hvaða þættir menningarstarfs hafa verið styrktir af Menningarráðum Austurlands og Vesturlands sem starfað hafa síðustu ár og gefa Menningarráðinu yfirlit um það.
Farið var yfir uppkast að umsóknareyðublaði og ræddir einstakir þættir. Menningarfulltrúa falið að ganga frá umsóknarblaðinu og auglýsa styrkina. Þá var rætt um kynningu í sambandi við styrkumsóknir og úthlutun styrkja.
2. Ákvörðun um lénsheiti
Rætt var um lén fyrir Menningarráðið og þær tillögur sem fram höfðu komið og verið ræddar í tölvupósti. Samþykkt að lénið vestfirskmenning.is yrði notað. Þegar hér var komið sögu þurfti Ólína Þorvarðardóttir að yfirgefa fundinn.
3. Heimasíðugerð og tillögur um logo
Menningarfulltrúi greindi frá hugmyndum um vefsíðu Menningarráðsins. Fram kom að búið er að gera útlitshugmynd og efnisyfirlit fyrir vefinn og áhersla verður lögð á að koma honum í loftið næstu daga, en til að það væri hægt þyrfti að skipta þróunarvinnunni í tvo hluta og fara síðar í seinni hlutann. Fram kom að vefsíða Menningarráðsins myndi nýtast við auglýsingar styrkja og hægt yrði að sækja um rafrænt í gegnum vefsíðuna.
Til skoðunar voru tvær hugmyndir um merki eða lógó fyrir Menningarráðið sem gerð höfðu verið í tengslum við vefsíðugerðina. Menningarráð samþykkti að nýta þau ekki sem merki félagsins og fram kom tilaga um merki sem byggði á sérvestfirsku mynstri.
4. Bókhaldsumsýsla fyrir Menningarráð
Gunnar Hallsson formaður gerð grein fyrir að rætt væri við Fjórðungssamband um samnýtingu á bókhaldsþjónustu. Honum falið að vinna málið áfram.
5. Önnur mál:
Menningarfulltrúi gerði grein fyrir helstu verkefnum frá því að hann tók til starfa, þ.á m. þátttöku í Fjórðungsþingi Vestfjarða á Tálknafirði þar sem starfsemi Menningarráðsins var kynnt fyrir sveitarstjórnarmönnum af Jóni Jónssyni menningarfulltrúa og Gunnari Hallsyni formanni. Einnig kom fram að menningarfulltrúi hafði setið fundi á Súðavík þegar Melrakkasetur var stofnað og kynningarfund á Reykhólum um fyrirhugað Arnarsetur. Auk þess hafa verið haldnir óformlegir spjallfundir með einstökum menningarstofnunum og einstaklingum, en allmargir hafa sett sig í samband til að ræða margvísleg mál og möguleika.
Greint var frá stöðu mála um húsnæði, en Menningarráð hefur sótt um skrifstofu í fyrirhugðu Þróunarsetri að Höfðagötu 3 á Hólmavík sem sveitarfélagið Strandabyggð hyggst koma á laggirnar, en skýr svör hafa ekki borist. Þangað til verður menningarfulltrúi með skrifstofuaðstöðu á Kirkjubóli.
Tafir hafa orðið á að fá afgreidda kennitölu fyrir Menningarráðið, en vonast er til að það gangi sem fyrst. Kallað hefur verið eftir yfirliti um áfallinn kostnað sem Fjórðungssamband Vestfjarða hefur greitt og stefnt er að uppgjöri á því sem fyrst.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið laust fyrir kl. 18:00.
