Menningarráð - 27. ágúst 2008

  1. Þann 27. ágúst 2008 var fundur í Menningarráði Vestfjarða. Fundurinn var haldinn  í Þróunarsetrinu á Ísafirði og setti Gunnar Hallsson fundinn kl. 13:10. Allir fulltrúar í Menningarráði tóku þátt í fundinum. Á staðnum voru Gunnar Hallsson formaður, Ólína Þorvarðardóttir, Dagbjört Hjaltadóttir, Leifur Ragnar Jónsson og Gerður Eðvarsdóttir. Í síma voru Sveinn Valgeirsson og Arnar S. Jónsson. Einnig sat Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða fundinn og ritaði fundargerð.

    1. Úthlutun styrkja haustið 2008, úthlutunarreglur, tímamörk o.fl.
    Rætt var um stöðu menningarmála á Vestfjörðum, hvað hefði áunnist síðustu misseri, hvar væri gróska og sóknarfæri.

    Rætt var um úthlutunarreglur fyrir síðari úthlutun ársins 2008 og eftirfarandi reglur samþykktar:
     
    1. Tilgangur styrkjanna er, skv. samningi sveitarfélaga á Vestfjörðum, menntamálaráðuneytisins og samgönguráðuneytis að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum.

    2. Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki,  stofnanir og sveitarfélög á Vestfjörðum.
     
    3. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við fyrri úthlutun ársins 2008 verði litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:
       a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
       b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
       c. Samstarf milli menningarstofnanna, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
       d. Útgáfa fræði- og ritverka sem lúta að menningu og sögu Vestfjarða.
       e. Útgáfa mynd- eða hljóðdiska sem hafa menningarlegt gildi og sýnilega sérstöðu.

    4. Menningarráðið veitir styrki til afmarkaðra menningarverkefna. Ráðið veitir ekki styrki til reksturs menningarstofnana eða félaga eða vegna stofnkostnaðar og endurbóta á húsnæði. Ekki verða veittir styrkir vegna skráningar á menningarminjum, hefðbundinna bæjarhátíða, almennra samkoma, útgáfu eða viðburða án sýnilegrar sérstöðu (s.s. tónleika og sýninga), starfsemi íþróttafélaga eða hefðbundins menningarstarfs safnaða og innan skóla.

    5. Styrkir Menningarráðsins geta aldrei verið hærri fjárhæð en sem nemur helmingi alls kostnaðar við verkefni.

    6. Í umsókninni verður að vera greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun). Einnig þarf greinargóðar upplýsingar um aðstandendur og samstarfsaðila, ef þeir eru til staðar, og hlutverk þeirra í verkefninu.
     
    7. Umsækjandi ábyrgist að fullnægjandi leyfi séu fyrir framkvæmd verkefnis og notkun heimilda ef þarf, sem og öðrum þáttum verkefnisins.

    8. Menningarráð Vestfjarða og styrkþegi gera með sér sérstakan samning sem m.a. kveður á um fyrirkomulag greiðslu og eftirfylgni. Styrkþegi skal skila lokaskýrslu sem felur í sér lýsingu á framkvæmd og árangri verkefnisins, ásamt yfirliti um kostnað. Eins ber styrkþega að veita Menningarráði Vestfjarða upplýsingar um framkvæmd verkefnisins og skila áfangaskýrslu þegar og ef eftir því er leitað. Útborgun styrkja er háð skilum lokaskýrslu og ef ekkert verður af verkefni eða verulegar breytingar verða á því eru styrkir afturkræfir. Miðað er við að styrkir séu greiddir út innan árs frá úthlutunardegi.

    9. Menningarráð Vestfjarða heitir fyllsta trúnaði gagnvart umsækjendum varðandi umsóknir þeirra.

    10. Umsóknir skulu vera á eyðublöðum frá Menningarráðinu og er mælst til þess að þær séu sendar inn rafrænt í gegnum vefsíðu Menningarráðsins eða í tölvupósti. Umsóknir sem sendar eru í pósti þurfa að vera póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.
  2.  
    Samþykkt að umsóknarfrestur um styrki nú á haustmánuðum verði til 3. október og þeir verði auglýstir nú í byrjun september.
     
    Jón Jónsson lagði til að auglýst verði eftir umsóknum í dreifibréfi sem dreift verði með fjölpósti á Vestfjörðum og inniheldur jafnframt kynningu á Menningarráðinu, í svæðisútvarpi og vestfirskum vefmiðlum, auk fréttatilkynninga. 
     
    2. Funda- og námskeiðsprógramm fyrir umsækjendur vegna styrkumsókna
    Nú stendur yfir vinna við að útbúa leiðbeiningar um styrkumsóknir sem menningarfulltrúar Vestfjarða, Norðurlands vestra og Eyþings hafa unnið saman. Búið er að gera glærur og semja efni fyrir námskeiðahald og verið er að vinna efni til að setja á vefinn.
     
    Samþykkt að halda slíkt námskeið á þremur stöðum á Vestfjörðum áður en frestur til að sækja um styrki rennur út í haust. 

    3. Undirbúningur fyrir Fjórðungsþing á Reykhólum 5.-6. september
  3. Gerð var grein fyrir undirbúningi fyrir Fjórðungsþing. Jón Jónsson menningarfulltrúi kynnir starfsemi ráðsins þar. 
     
    4. Umræða um vestfirsk menningarverðlaun 
    Rætt um möguleika á vestfirskum menningarverðlaunum á vegum ráðsins. Ákveðið að ræða hugmyndina frekar innan hópsins og koma með mótaðar tillögur á næsta fund, ásamt því að nefna hugmyndina á Fjórðungsþingi. Samþykkt að óska þeim vestfirsku aðilum sem fengið hafa verðlaun og viðurkenningar á árinu hjartanlega til hamingju, en m.a. fékk Byggðasafn Vestfjarða íslensku Safnaverðlaunin, hátíðin Aldrei fór ég suður fékk Eyrarrósina í ársbyrjun og Sigríður Ragnarsdóttir skólastjóri Tónlistarskólans á Ísafirði fékk Fálkaorðuna í sumar. Allir þessir aðilar eiga þessi verðlaun svo sannarlega skilin.

    5. Önnur mál
    Ekki voru fleiri mál á dagskránni.
     
    Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð lesin upp og engar athugasemdir gerðar. Fundi slitið kl. 14:40.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón