Menningarráð - 3. apr. 2008

Fundur var haldinn í Menningarráði Vestfjarða þann 3. apríl 2008. Á fundinn voru mættir allir fulltrúar í Menningarráði, en þó staðsettir á fimm stöðum á Vestfjörðum. Á Skrifstofuhótelinu á Ísafirði voru Gunnar Hallsson formaður, Dagbjört Hjaltadóttir, Gerður Eðvarsdóttir og Ólína Þorvarðardóttir. Í síma voru Leifur Ragnar Jónsson, Sveinn Valgeirsson og Arnar S. Jónsson auk Jóns Jónssonar menningarfulltrúi sem skrifaði fundargerð. Færð hamlaði því að allir gætu setið fund á Ísafirði eins og til stóð.
 
Fundurinn hófst kl. 16:00 og stýrði Gunnar Hallsson fundinum.
 
Fyrir var tekið:
 
1. Úthlutun verkefnastyrkja vor 2008
Fyrir lágu 110 umsóknir um verkefnastyrki, en frestur til að sækja um rann út 14. mars 2008 síðastliðinn. Fulltrúar í Menningarráði höfðu kynnt sér umsóknirnar fyrir fund og nokkur umræða hefur farið fram um umsóknirnar í tölvupósti. Ákveðið að fylgja stífum reglum um vanhæfi og að fulltrúar menningarráðs víki af fundi og taki ekki þátt í umræðu og afgreiðslu einstakra umsókna ef þeir tengjast verkefnum.
 
Farið yfir umsóknir og þær ræddar ítarlega og tekin ákvörðun í hverju tilviki hvort verkefni væru styrkt eða ekki. Ákvörðun um hluta umsókna var frestað þar til á næsta fundi og ekki var rætt um styrkupphæðir að sinni. Í lok fundar lá fyrir gróft yfirlit um hvaða verkefni yrðu styrkt og hver ekki. Var samþykkt að ræða umsóknir áfram í tölvupósti fram að næsta fundi.
 
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið um kl. 18:00.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón