Menningarráð - 4. nóvember 2008
Símafundur var haldinn í Menningarráði Vestfjarða þriðjudaginn 4. nóvember 2008 og hófst hann kl. 16:00. Fyrirkomulag var með þeim hætti að hver og einn hringdi inn á fundinn, en ekki var um fastan fundarstað að ræða. Gunnar Hallsson formaður, Ólína Þorvarðardóttir, Gerður Eðvarsdóttir, Dagbjört Hjaltadóttir, Sveinn Valgeirsson og Arnar S. Jónsson tóku þátt í fundinum, en Leifur Ragnar Jónsson boðaði forföll. Einnig tók Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða þátt í fundinum og ritaði fundargerð. Formaður setti fundinn og stýrði honum, en á dagskrá var eitt mál.
1. Umræður um styrkveitingar við seinni úthlutun 2008.
Rætt var um umsóknir um styrki til Menningarráðsins við síðari úthlutun 2008. Umsóknarfrestur var til föstudagsins 3. október, en alls bárust 77 umsóknir að þessu sinni sem eru færri en áður. Fjallað var um hverja umsókn fyrir sig, en umræða hafði einnig farið fram áður í gegnum tölvupóst. Þær umsóknir sem ekki voru taldar innihalda fullnægjandi upplýsingar eða féllu ekki að reglum sjóðsins voru lagðar til hliðar. Umræðu um þær umsóknir sem með einhverjum hætti tengjast einstaklingum í menningarráði var frestað.
Fundi var slitið um kl. 18:00.
