Menningarráð - 6. sept. 2007

Sjötti fundur Menningarráðs Vestfjarða haldinn þann 6. september 2007 kl. 17.00 á hreppsskrifstofu Tálknafjarðarhrepps. Mættir voru Gunnar Hallsson og Leifur Ragnar Jónsson. Ólína Þorvarðardóttir, Gerður Eðvarsdóttir og Arnar S. Jónsson voru í síma. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir og Jón Jónsson starfsmenn ráðsins sátu einnig fundinn. Albertína ritaði fundargerð.

1. Ráðning Menningarfulltrúa Vestfjarða
Ráðningarsamningur Menningarfulltrúa Vestfjarða lagður fram. Stjórn Menningarráðs samþykkir samninginn og verður hann undirritaður um leið og kennitala Menningarráðs liggur fyrir, væntanlega í næstu viku.

2. Starfsaðstaða Menningarfulltrúa Vestfjarða á Hólmavík
Rætt um stöðu mála vegna starfsaðstöðu Menningarfulltrúa á Hólmavík. Menningarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

3. Heimasíða fyrir Menningaráð Vestfjarða
Lagt fram tilboð frá Snerpu e.hf. vegna heimasíðu fyrir Menningarráð Vestfjarða. Einnig var leitað eftir tilboðum frá ecWeb og Netheimum en þau höfðu ekki borist fyrir fundinn. Menningarráð Vestfjarða samþykkir tilboð Snerpu ehf. og felur menningarfulltrúa að hafa samband við Snerpu og vinna með þeim að málinu.

4. Úthlutun styrkja til menningarverkefna – tímaáætlun og framkvæmd
Rætt um úthlutun styrkja til menningarverkefna. Formaður leggur til að reynt verði að auglýsa úthlutun styrkja um mánaðarmótin september/október. Áætlaður er mánuður í umsóknarfrest og mánuður þaðan í frá til úthlutunar. Starfsmanni falið að senda drög að úthlutunarreglum til ráðsins til umfjöllunar á næsta fundi.

5. Tillaga um þóknun til stjórnar
Lögð fram tillaga formanns um þóknun til stjórnar. Menningarráð Vestfjarða samþykkir tillögu formanns einróma.

6. Önnur mál
- Menningarráð Vestfjarða býður Jón Jónsson velkominn til starfa og vonast eftir farsælu samstarfi. 
- Rætt óformlega um starfið á næstu mánuðum.
- Albertínu Friðbjörgu þakkað fyrir störf sín með ráðinu síðustu mánuði og henni óskað farsældar í náminu sem framundan er.
 
Fundi slitið kl. 18.00.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón