Menningarráð - 9. ágúst 2007

Fjórði fundur Menningarráðs Vestfjarða haldinn þann 9. ágúst 2007 kl. 12.00 í fundarsal Þróunarseturs á Ísafirði.
 
Mættir voru: Gunnar Hallsson (Bolungarvík/Súðavík), Helga Dóra Kristjánsdóttir (Fjórðungssamband), Sveinn Valgeirsson (Fjórðungssamband). Ólína Þorvarðardóttir (Ísafjarðarbær), Gerður Eðvarsdóttir (Ísafjarðarbær) og Leifur Ragnar Jónsson (Vesturbyggð/Tálknafjörður) voru í síma. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (starfsmaður) sat einnig fundinn og ritaði fundargerð.
 
1. Ráðning í starf Menningarfulltrúa Vestfjarða.
Farið yfir umsögn og niðurstöður Capacent Ráðninga um umsækjendur í starf Menningarfulltrúa Vestfjarða.

Eftir umræður lagði formaður fram tillögu um að gengið verði til samninga við Jón Jónsson í samræmi við umræður á fundinum. Samþykkt samhljóða.

2. Önnur mál
- Ákveðið að stefna að næsta fundi í tengslum við Fjórðungsþing snemma í september.
 
Fundi slitið kl. 13.50.
 

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón