Menningarráð vinnuhópur - 17. apr. 2007
Sjötti fundur Menningarráðs Vestfjarða haldinn þann 17. apríl 2007 kl. 14.00 í fundarsal Þróunarseturs á Ísafirði.
Mættir voru: Dagný Sveinbjörnsdóttir (AtVest), Ólína Þorvarðardóttur (Ísafjarðarbær), Gunnar Hallsson (Bolungarvík), Dagbjört Hjaltadóttir (Súðavík). Sveinn Valgeirsson (Tálknafjörður) og Leifur Ragnar Jónsson (Vesturbyggð) voru í síma.
1. Samþykkt samstarfssamnings sveitarfélaga
Gunnar greindi frá samtölum við forsvarsmenn sveitarfélaga á Vestfjörðum varðandi breytingar á fulltrúafjölda í Menningarráði. Nú liggur fyrir að öll sveitarfélög hafa annað hvort samþykkt samninginn með þessum breytingum eða hafa gefið til kynna að hann verði samþykktur ýmist í þessari eða næstu viku. Eftir 26. apríl má gera ráð fyrir að öll sveitarfélög á Vestfjörðum verði búin að samþykkja samninginn. Næsta skref yrði þá að finna dagsetningu til að skrifa undir samstarfssamninginn og menningarsamning við menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti. Eftir að samningarnir hafa verið undirritaðir verður skipað í nýtt Menningarráð.
Að endingu þakkaði Gunnar fulltrúum ráðsins fyrir gott samstarf frá upphafi.
Fundi slitið kl. 14.30.