Menningarráð vinnuhópur - 18. jan. 2007
Annar fundur Menningarráðs Vestfjarða haldinn þann 18. janúar 2007 kl. 13.00 í fundarsal Þróunarseturs á Ísafirði.
Mættir voru: Dagný Sveinbjörnsdóttir (Atvest), Ingi Þór Ágústsson (Ísafjarðarbær), Andrea Harðardóttir (varamaður Ólínu Þorvarðardóttur Ísafjarðarbær), Dagbjört Hjaltadóttir (Súðavík), Gunnar Hallsson (Bolungarvík), Ásdís Leifsdóttir (varamaður Arnars S. Jónssonar Strandabyggð) og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (starfsmaður).
Gunnar Hallsson formaður setti fundinn. Farið var yfir stöðuna frá síðasta fundi.
1. Stefnumótun
– Farið var í gegnum fyrri stefnumótun. Sjá hér fyrir neðan.
Kafli 1. Inngangur
Sleppt.
Kafli 2. Heildarskipulag menningarmála á Vestfjörðum
Samþykkt að unnið verði áfram eftir þeirri svæðaskiptingu sem fram var sett í fyrri stefnumótun. Lagfæra þarf Hólmavíkurhreppur/Broddaneshreppur = Strandabyggð. Kafli varðandi Menningarráð: Búið er að skipa Menningarráðið - Spurning er hvort að það þurfi að breyta reglum varðandi skipan ráðsins.
Ingi Þór leggur til að reglum um skipan verði skipað á sama hátt og er gert á Austurlandi, þ.e. eins og kemur fram í 6. grein samþkktar Menningarráðs Austurlands. Rætt um ýmsar mögulegar útfærslur. Tveir frá hverju samstarfssvæði og einn frá Atvinnuþróunar-félaginu. Rætt um að sá einstaklingur sem verður fulltrúi AtVest verði sá sem hefur með menningartengda ferðaþjónustu/atvinnu að gera. Fram kom seinna á fundinum að í drögum að samstarfssamningi sveitarfélaga á Vestfjörðum er gert ráð fyrir skipan ráðsins líkt og Ingi Þór lagði til.
Vangaveltur hvort að ekki væri eðlilegt að hafa aðalfund Menningarráðs á sama/svipuðum tíma og Fjórðungsþing eru haldin.
Það þarf að taka afstöðu til hvernig starfsmaður Menningarráðsins mun virka. Ef starfsmaður kemur frá AtVest ætti fulltrúi í ráðinu að vera frá Fjórðungssambandinu, annars frá AtVest?
Áfram rætt um starfsmann. Ósamræmi er á milli þess sem fram kemur í stefnumótuninni og því sem fram kemur í samningnum. Rætt um hvort að kostnaður við rekstur skrifstofu sé tekin af heildarpotti og restin fari í verkefnastyrki eða hvort að sér framlög séu til staðar sem fari beint í rekstur skrifstofu og potturinn fari eingöngu í verkefnastyrki. Athuga þarf hvernig þessu hefur verið háttað á Vestur- og Austurlandi.
Spurning hvort að hægt væri að fá Signýju Ormars á fjarfund eða í heimsókn til að svara spurningum ráðsins: Fá vinnureglur/úthlutunarreglur menningarráðsins. Athuga hvernig greiðslur sveitarfélaganna komi inn í sjóðinn! Senda svo útskýringar til ráðsins. - Varðandi hver skipar í ráðið? Hvað er verið að sækja um styrki í annars staðar, þ.e. hvar fá þau enn styrki? Hvernig hefur dreifing á fjórðungsvísu? Er t.d. skylda til að styrkja "lélegra" verkefni vegna þess að það er frá einhverju ákveðnu svæði?
Rætt um hvort að samningurinn loki á alla aðra möguleika til að sækja styrki til ríkisins. Mikilvægt er að það sé á hreinu að við séum ekki að loka á neitt, að enginn misskilningur sé á milli sveitarfélaganna og ríkis varðandi þetta.
Ingi Þór bendir á að framtíðarsýn vanti í stefnumótunina. Hvert vill menningarlífið á Vestfjörðum fara? Eru þeir aðilar sem starfa í menningarlífinu í dag sammála stefnumótuninni? Leggur til að stefnumótunin verði send á sem flesta aðila sem starfi í menningarlífi á Vestfjörðum.
Mikilvægt að stefnumótunin skorði engan af.
Fá umsagnir fólks um stefnumótunina.
Lagt til að farið verði fram á það við sveitarfélögin að þau sendi stefnumótunina til umsagnar til þeirra aðila sem starfa að menningarmálum á þeirra svæðum.
Mikilvægt er að hafa vinnureglur þegar kemur að úthlutun til að allar umsóknir fái sömu hlutlausu umfjöllunina.
Athuga þarf setninguna "Stofnaður verði Menningarsjóður Vestfjarða. Sjóðurinn fái fjármagn frá ríkinu samkvæmt menningarsamningi. Sjóðurinn verði í vörslu Menningarráðsins." Spurning hvort að "Sjóðurinn fái fjármagn frá ríkinu og sveitarfélögum samkvæmt menningarsamningi". Hvernig kemur fjármagn sveitarfélaganna inn í sjóðinn?
3. Samstarf og samstaða
Farið í gegnum kaflann. Athuga með verkefni varðandi byggðaáætlun sem fram kemur í þessum kafla.
4. Stefna í einstökum flokkum menningarmála
Rætt um hvort of mikil áhersla sé á menningartengda ferðaþjónustu?
Vangaveltur um stefnumótunina almennt, t.d, hvaða mælieiningar eigi að nota, hversu lengi á stefnumótunin að gilda. Er þörf á að gera könnun á því hver staðan er í dag? Ætti t.d. að láta skila skýrslum eftir framkvæmd verkefnis sem hefur fengið styrk? Hægt væri að skilgreina einhvern fjölda lykilaðila sem kæmi á fund? Hugmynd er hvort ekki væri hægt að gera könnun þegar samningurinn er kominn í höfn meðal menningaraðila á svæðinu til að mynda einskonar upphafspunkt sem hægt væri að nota til viðmiðunar í endurskoðunar.
2. Samstarfssamningur sveitarfélaga á Vestfjörðum um menningarmál
Farið í gegnum samstarfssamninginn, sjá word-skjal: Samstarfssamningur sveitarfélaga drög. Mikilvægt fyrir næsta fund að við höfum upplýsingar um peningalegar stærðir í málunum. Rætt hvort gott væri að senda drögin í gegnum sveitarstjórnirnar strax/fljótlega.
3. Önnur mál
a. Tímasetning næsta fundar
i. Fá Signýju á næsta fund
ii. Rætt um tímasetningu næsta fundar. Albertínu falið að athuga hvenær Signý gæti komist til fundar við nefndina. Miðað verður við 30. janúar 13.00.
b. Varamenn
i. Bent á að mikilvægt er að aðalmenn geti mætt sem allra best vegna þess hraða sem þarf að vera á vinnunni.
Fundi slitið um kl. 14.50.