Menningarráð vinnuhópur - 30. jan. 2007

Þriðji fundur Menningarráðs Vestfjarða haldinn þann 30. janúar 2007 kl. 13.00 í fundarsal Þróunarseturs á Ísafirði.
 
Mættir voru: Dagný Sveinbjörnsdóttir (AtVest), Ingi Þór Ágústsson (Ísafjarðarbær), Ólína Þorvarðardóttur (Ísafjarðarbær), Leifur Ragnar Jónsson (Vesturbyggð), Sveinn Valgeirsson (Tálknafjörður), Dagbjört Hjaltadóttir (Súðavík), Gunnar Hallsson (Bolungarvík), Arnar S. Jónsson (Strandabyggð) var í síma og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (starfsmaður). 
 
1. Fjarfundur með Signý Ormarsdóttur menningarfulltrúa á Austurlandi.
 
Gunnar setti fundinn og bauð Signýju velkomna. Menningarráðsfulltrúar kynntu sig.
 
Spurt var um hvernig þetta hefði gengið hjá Austurlandi. Signý greindi frá því að henni persónulega þætti þetta stundum ganga svolítið hægt. Framgangan hefur gengið hægari en hún átti von á í byrjun og það þarf að sýna þolinmæði. Gunnar greindi Signýju frá stöðu mála hér fyrir vestan. Signý sagði frá því að samningurinn gekk í gegnum miklar breytingar þegar hann var endurnýjaður. Þegar samningurinn var fyrst samþykktur þá var almennt ákveði um að sveitarfélögin legðu fjármagn á móti. Í dag kemur fjármagnið frá sveitarfélögunum í pottinn. Signý persónulega hefur deilt á sveitarfélögin þar sem ásakar þau fyrir að hafa varpar ábyrgðinni yfir á ríkið. Vildu allir fá en ekki taka þátt. Sveitarfélögin greiða ákveðna prósentu eftir hausafjölda í pottinn. 
 
Spurt var um hvernig er menningarráðið saman sett: SSA er skipt upp í þrjú svæði, tveir frá hverju svæði og einn frá Þróunarfélagi. Fyrsta skipun var af aðalfundi SSA en svo er það aðalfundur sem skipar. Óbeint samkomulag um það að Seyðfirðingar og Vopnfirðingar skiptast á.
 
Beðið var um dæmi um sveitarfélag eins og Fjarðarbyggð. Signý greindi frá því að þar er borgað eftir, taldi að fyrir 2005 væru það um rúmar 3 milljónir. Spurt var hvort sveitarfélögin séu að greiða þetta aukalega. - Já.
 
Menningarráð Austurlands er að úthluta um 20 milljónum á ári. 12 milljónir fara í rekstrarfé til menningarmiðstöðvarnar –Þær fá svo einnig fjármagn frá viðkomandi sveitarfélagi. Rekstrarfé menningarráðs er tekið líka af sjóðnum - frá því að það voru nánast teknir allir peningar í byrjun í verkefnastyrki er meira verið að setja í rekstrarstyrki núna. Breyting á áherslum.
 
Eru með samning þannig að það komi fé frá Rarik og KB banka 2 milljónir á ári. Mikið fjármagn að koma líka frá fleiri aðilum. Umsvif eru að aukast. Það er ekki krafa að það komi endilega fjármagn frá sveitarfélagi, heldur má það einnig koma frá einkastyrktaraðilum.
 
Rætt um fjölda fulltrúa vegna beiðni frá menntamálaráðuneytinu um að fækka fulltrúum í menningarráði Vestfjarða úr 9 í 5. Á Austurlandi eru 7 fulltrúar og hefur gengið vel – Signý benti á að erfitt sé að hafa varamenn. Lagði áherslu á að fulltrúar hefji sig yfir að hugsa eingöngu um eigin sveitarfélög.
 
Varðandi úthlutnarreglur þá eru þær endurnýjaðar á hverju ári. T.d. ástæðan fyrir 4. lið í núverandi - verkefni sem stuðla að menntun eða fræðslu - kom inn í beinu framhaldi af málþingi sem var haldið í haust þar sem skipt var niður í hópa þar sem unnið var með menningu - þótti vanta aukna fagþekkingu á listgreinum. Þótti vanta til að menningin yrði stærri atvinnugrein á Austurlandi. 
 
Aðra sjóði á vegum ríkisins eins og t.d. Menningarsjóður félagsheimila, barna, o.s.frv. má enn sækja í. Hluti af starfi Signýjar er að kynna þessa styrki fyrir fólki, styrkir í kringum þetta jukust með samningnum. 
 
Signý telur að það sé að koma meira fjármagn í menningarmál núna heldur en var. Borið saman 2002 og 2003 - þegar þetta var farið að virka þá fór þetta að skila meiru. Meira fjármagn kom í ný verkefni og nýsköpun eins og var lögð áhersla á þá.
 
Frá því að fyrsti samningurinn kom hefur orðið breyting, umsóknum hefur fækkað - fólk farið að sjá að það þýðir ekki að sækja um hvað sem er. Mjög ójöfn dreifing, minnst frá suðursvæði og flestar frá norðursvæði. Gætt jafnvægis á milli svæða við úthlutun. 
 
Ráðið setur sér verklagsreglur sem eru eingöngu fyrir ráðið - Signý ætlar að senda okkur. Eftir að umsóknir berast eru þær allar sendar á alla fulltrúa ráðsnis.
 
Spurt var hvernig hefði tekist að uppfylla markmið stefnumótunina miðað við úthlutanir og er búið að endurskoða hana? Signý svaraði því til að það verði forgangsatriði hjá þeim á þessu ári að endurskoða stefnumótunina. Hægt að segja já og nei. Var gerð könnun á meðal menningaraðila, menningarviðburðir árið 1999 voru taldir og núna er verið að telja aftur fyrir 2005. Gert með því að fara í gegnum blöð og telja. Menntamálaráðuneytið hefur óskað eftir því að fá úttekt á hvað hefur áunnið. Háskólasetrið mun væntanlega vinna það. Gerð var úttekt á þjónustusamningnum við Gunnarsstofnun af KPMG. Stefnumótunin hefur staðist tímans tönn ágætlega, hefur margt breyst ýmislegt t.d. meiri samvinna við ferðaþjónustuna en gert var ráð fyrir. Áhersla á uppgröft og fornminjar í stefnunni sem ekki hefur verið sinnt - of dýrt. Það sem Signýju finnst vanta enn er að sveitarfélögin sjálf geri sér stefnu í menningarmálum. Hornafjörður hefur verið mjög framarlega í þessum málum. 
 
Signý vinnur mjög mikið með Þróunarsetri, Vaxtarsamning, Frumkvöðlasetur og í norrænu samstarfi. Samstarfið hefur gefið mikið inn í starfið með auknu fjármagni. Hafa fengið t.d. styrki frá norrænu menningarnefndinni t.d. í ráðstefnuhald. Hafa fengið frá norsk/íslenska menningarstarfinu. Verkefni hafa líka tengst út í gegnum þetta samstarf. Margt svona sem hefur aukið flæðið og erfitt að henda reiður á nema með nákvæmri rannsókn sem kemur væntanlega verður gerð á árinu. Mikil margfeldisáhrif sem komu með menningarsamningnum.
 
Fjarfundi lauk kl. 14.00.
 
2. Umræður
Rætt um tilmæli ráðuneytisins um að fækka í Menningarráði niður í fimm. Ráðið vill gera þetta á eigin forsendum. Albertínu falið að hafa samband við Karitas vegna málsins.
 
Umræður um það sem rætt var við Signýju. Mörgum þótti áhugavert hversu mikið fjármagn fór til rekstrar menningarmiðstöðva og menningarráðs. 18 milljónir fara beint í úthlutanir - Vangaveltur um hvort að starfsrækja ætti menningarmiðstöðvar á svæðinu. Fyrsti samningurinn sem var gerður var bara við menntamálaráðuneyti og sá seinni einnig með samgönguráðuneyti.
 
Albertínu falið að fá tölur frá samgönguráðuneytinu um framlög vegna menningartengdrar ferðaþjónustu. 
 
Rætt um framlag sveitarfélaga. Spurning hvort þau taki þetta úr núverandi sjóðum eða hvort þau leggi þetta fram sem viðbót. Geta þeir sem hafa verið að fá styrki frá sveitarfélögunum fengið styrki áfram frá menningarráðinu þá (t.d. kórar). 
 
Hætt við að þetta myndi standa í sveitarfélögunum, þ.e. að setja peninginn í einn pott. Gunnar leggur til að hver og einn skoði sérstaklega samskipti sveitarfélaganna. Hvernig er hægt að selja menningarsamningshugmyndina? - Rætt um þennan sameiginlega pott - litlu sveitarfélögin eru hrædd við að sækja allt til Ísafjarðar. Er þetta viðbót eða samansafn fjármagns sveitarfélaga og viðbót frá Menntamálaráðuneytinu.
 
Mikilvægt að muna að við erum að ræða um verkefnatengdastyrki - ekki fastan rekstur. Erum að tala um meiri miðstýringu en jafnframt markvissari stjórnun, hefur verið töluvert rótleysi á þessum málum í landinu. Ætti að virka hvetjandi til að fá menningaraðila til að vera með metnaðarfyllri ákvarðanir í sínu starfi. Þarf að vera skýrt og afmarkað til að selja hugmyndina. 
 
Finna miðlægan samnefnara fyrir þessi viðkæmu mál. Leita leiða til að geta lagt þetta fram þannig að nefndarmenn séu sáttir.
 
Fá Vesturland á fjarfund með okkur - hvernig seldu þau sveitarfélögunum þetta? Sveitarstjórnarmenn að forvitnast hjá sveitarstjórnarstiginu fyrir austan/vestan um hvernig þetta er að leggjast í þá. Albertínu falið að hafa samband við menningarfulltrúa Vesturlands.   
 
Eru menningarmiðstöðvar eitthvað sem við viljum reyna að setja inn í samninginn?  Edinborg á Ísafirði, félagsheimilið/kirkjan Patró og svo Hólmavík?  Er einhver grundvöllur fyrir því að fá fjármagn til að reka menningarmiðstöðvar á Vestfjörðum, sérstaklega með þeim rökum hvað við erum með erfiðar samgöngur. 
 
Næsti fundur ákveðinn 6. febrúar kl. 14.00.
 
Fundi slitið kl. 14.55.
 

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón