Menningarráð vinnuhópur - 3. apr. 2007

Fimmti fundur Menningarráðs Vestfjarða haldinn þann 3. apríl 2007 kl. 14.00 í fundarsal Þróunarseturs á Ísafirði.
 
Mættir voru: Dagný Sveinbjörnsdóttir (AtVest), Ingi Þór Ágústsson (Ísafjarðarbær), Ólína Þorvarðardóttur (Ísafjarðarbær), Leifur Ragnar Jónsson (Vesturbyggð), Gunnar Hallsson (Bolungarvík), Sveinn Valgeirsson (Tálknafjörður) og Arnar S. Jónsson (Strandabyggð) voru í síma. Anna G. Edvardsdóttir sat fundinn fyrir hönd stjórnar Fjórðungssambandsins.
 
 
1. Inngangur
- Gunnar setur fundinn og fór yfir þróun mála frá síðasta fundi. 
Gögn hafa verið send út til sveitarfélaganna og flest hafa þau fjallað um samninginn nú þegar og komið með athugasemdir, samþykkt og hafnað eins og við á. Almennt eru sveitarfélögin á því að samningurinn sé góður og stefnumótunin fín, en Strandabyggð hefur þó hafnað samningnum á þeim forsendum að of margir fulltrúar séu í Menningarráðinu. Gunnar greindi einnig frá því að menntamálaráðuneytið hefur gert kröfu um að Menningarráð Vestfjarða verði  ekki fjölmennara en 7 manna.
 
2. Fjöldi fulltrúa í Menningarráði
Fulltrúar ráðsins ræddu möguleika á að fækka niður í sjö eða fimm manna stjórn. Ljóst að ráðið verður að taka afstöðu til þess máls. Eftir nokkrar umræður um fulltrúafjölda lagði Gunnar til að reynt yrði að vinna út frá sjö manna stjórn á þessum fundi. Þá lagði hann til að skorað yrði á sveitarstjórnarmenn að fylgjast vel með störfum Menningarráðsins í framtíðinni og veita því þannig aðhald og því þannig gætt að leikreglum sé fylgt. Aðrir fundarmenn tóku undir þetta.

Eftirfarandi tillaga var lögð fram:

Aðalmenn
2 frá Ísafjarðarbæ
1 frá Bolungarvík/Súðavík
1 frá Ströndum/Reykhólum
1 frá Vestur-Barðastrandasýslu
2 frá Fjórðungssambandi (sem myndu flakka á milli sveitarfélaga)

Varamenn
Í samræmi við skipan aðalmanna.

Gunnar leggur það til að málið verði unnið fram yfir páska og þá verði það lagt fyrir sveitarfélögin aftur. Samþykkt að fela formanni og starfsmanni ráðsins að kynna þessa tillögu og afla henni fylgis hjá sveitarfélögunum.
 
3. Gögn frá Austurlandi. 
Albertína kynnti upplýsingar sem Signý starfsmaður Menningarráðs Austurlands sendi, m.a. ársreikningar, úttektir sem hafa verið unnar á starfsemi ráðsins og upplýsingar varðandi þróunarverkefni. Gögnin verða fjölfölduð og afhent ráðinu á næsta fundi.


4. Annað
Rætt um dreifingu styrkja og þau áhrif sem menningarsamningurinn getur haft á þau menningarverkefni á svæðinu sem hafa verið að fá stóra verkefnastyrki frá ráðuneytinu.
 
Fundi slitið kl. 15.03.
 

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón