Menningarráð vinnuhópur - 4. jan. 2007

Fyrsti fundur Menningarráðs Vestfjarða haldinn þann 4. janúar 2007 kl. 13.00 í fundarsal Þróunarseturs á Ísafirði.
 
Mættir voru: Dagný Sveinbjörnsdóttir (AtVest), Ingi Þór Ágústsson (Ísafjarðarbær), Ólína Þorvarðardóttir (Ísafjarðarbær), Sveinn Valgeirsson (Tálknafjörður), Þorsteinn Haukur Þorsteinsson (varamaður Dagbjartar Hjaltadóttur Súðavík), Leifur Ragnar Jónsson (Vesturbyggð), Óskar Steingrímsson (Reykhólar), Gunnar Hallsson (Bolungarvík), Aðalsteinn Óskarsson (framkvæmdastjóri Fjórðungssambandsins), Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (starfsmaður). Arnar S. Jónsson boðaði forföll vegna veikinda.
 
Albertína bauð alla velkomna á fundinn og bað fundarmenn um að kynna sig. 
 
Kynning - Fulltrúar ráðsins kynntu sig.
 
Aðalsteinn tók við stjórn fundarins og fór yfir drög að erindisbréfi fyrir Menningarráð Vestfjarða. Aðalsteinn bað fulltrúa Menningarráðsins að ýta á sín sveitarfélög að senda inn upplýsingar varðandi framlög þeirra til menningarmála.  Erindisbréfið rætt og leiðrétt föður nafn Leifs Ragnars Jónssonar. Erindisbréfið samþykkt samhljóða. Endurskoðað erindisbréf var afhent á fundinum.
 
Kosning formanns
Aðalsteinn óskaði eftir tilnefningum til embættis formanns ráðsins. Ólína Þorvarðardóttir kom fram með tillögu um Gunnar Hallson frá Bolungarvík. Ingi Þór Ágústsson kom fram með tillögu um Inga Þór Ágústsson frá Ísafjarðarbæ. Framboðin rædd. Rætt um hvert hlutverk formanns verði í samningagerð við Menntamálaráðuneytið og hver tengslin þurfa að vera við Fjórðungssambandið. 
 
Óskað var eftir leynilegri kosningu og var gengið til kosninga. Atkvæði féllu:
 
Gunnar Hallsson
Gunnar Hallsson
Gunnar Hallsson
Ingi Þór Ágústsson
Gunnar Hallsson
Gunnar Hallsson
Ingi Þór Ágústsson
Gunnar Hallsson
 
Gunnar Hallsson var réttkjörinn formaður með meirihluta atkvæða.
 
Nýkjörinn formaður tók við stjórn fundarins. 
 
Boðið upp á umræður fundarmanna um framhald starfsins. 
 
Ingi Þór bað um upplýsingar um hvaða sveitarfélög hafa skilað inn gögnum: Svar frá Aðalsteini: Vesturbyggð og Kaldrananeshreppur eru þau einu sem hafa skilað inn upplýsingum. 
 
Farið yfir stefnumótunina frá árinu 2004. Rætt um hvað þarf að uppfæra. Hversu djúpt á að fara o.s.frv. Spurning hvort Menningarráðið eigi að hafa eitthvað frumkvæði að verkefnum eða hvert hlutverk þess á að vera. Ólína segir frá því að stofnun Fræðasetra er með ýmislegt í undirbúningi sem hún telur að ætti erindi inn í þennan hóp. 
 
Dagný sagði frá því hver framlög sveitarfélaga til menningarmála voru 2003. 
 
Rætt um hvernig starfsmaður er ráðinn og hvort þörf komi til með að vera á því. 
 
Ingi Þór benti á villu í drögum ríkisins þar sem eingöngu er talað við Ísafjarðarbæ en ekki Ísafjarðarsýslur. 
 
Reynt var að kortleggja vinnuna. Gunnar lagði til eftirfarandi:

# Fyrsta verkefni væri að fara yfir þá samninga sem liggja fyrir og önnur drög. Fara yfir stefnumótun og uppfæra hana. 
# Í öðru lagi að ganga eftir að sveitarfélögin gangi frá samþykktum á samstarfssamningnum og síðan við ríkið. 
 
Dagný bendir á að mikilvægt sé að þegar samið er við ríkið að framlög ríkisins verði ekki lægri en hefur verið síðustu ár.  Gunnar tekur undir það að mikilvægt að auka framlög heldur en minnka þau. Aðrir fundarmenn tóku undir þetta. Rætt um hvaða framlög ættu að teljast með. 
 
Albertínu falið að draga saman framlög menntamálaráðuneytisins síðustu 10 ár til Vestfjarða. Gæta þess að vera með söfnin ekki inn í þessu. Spurning um tónlistarskóla?
 
Gunnar ítrekaði það að mikilvægt sé að það verði peningalegur og hagræðingarlegur ávinningur inn á svæðið af þessum samningi.
 
Ólína velti fyrir sér næstu mánuðum þar sem hlutirnir þurfa að ganga hratt. 
 
Gunnar bað fólk um að fara vel yfir drög að samningum fyrir næsta fund. Samþykkt að næsti fundur verði haldinn fimmtudaginn 18. janúar kl. 13.00.
 
Aðalsteinn benti á að gott væri að sigtað yrði út hvenær minni sveitarfélögin séu að funda svo hægt sé að ganga frá samningunum hratt og vel.  Ef vel gengur þá ætti að vera hægt að greiða út styrki samkvæmt samningnum á þessu ári. 
 
Ákveðið var að gera stutta pásu á fundi áður en farið var í SVÓT-greiningu á menningarmálum á Vestfjörðum.  Hér vék Aðalsteinn af fundi. 
 
Farið var í SVÓT greiningu og má sjá niðurstöður hennar hér fyrir neðan. Fundi lauk um 15.20.


SVÓT greining fundarins 
Styrkleikar
·     Fjölbreytileiki
·     Sagan
·     Náttúra
·     Tónlistarlíf
·     Fjölmenning
·     Atvinnusaga
·     Þátttaka almennings
·     Gott framboð
·     Mikið frumkvæði
·     Auðvelt að virkja fólk
·     Vaxandi þekkingarsamfélag
·     Mikill menningaráhugi
·     Möguleikar á menningarrannsóknum
 
Veikleikar
·     Fámenni
·     Offramboð
·     Fáir einstaklingar sem vinna mörg verk
·     Skortur á fjármagni
·     Samstarfsleysi – skortur á samvinnu milli aðila
·     Samgöngur erfiðar
·     Þörf fólks fyrir hátíðir og skemmtanir hefur minnkað
·     Þverrandi félagslíf
·     Lítil endurnýjun
·     Fjölþjóðamenning (eru ekki að taka nægjanlega mikinn þátt í menningarlífi/samfélagi)
·     Lítið skipulag
·     Skortur á virkri stefnumótun    
 
Ógnanir
·     Fólksfækkun
·     Erfiðar samgöngur
·     Erfiður aðgangur að fjölmiðlum og kynningaraðilum
·     Mikil samkeppni um tíma fólks
·     Erfitt að fá fagmenntað fólk í listum o.s.frv.
·     Ótti við samgöngur
·     Skortur á fólki á aldrinum 20-40 ára í menningarlífi
·     Fordómar gagnvart landsbyggðinni
·     Peningaskortur og lélegt aðgengi að fjármagni
 
Tækifæri
·     Mikil endurnýjun á menningarhúsnæði
·     Uppbygging hljóðvera á svæðinu sem dregur til sín innlenda og erlenda tónlistarmenn
·     Möguleikar í ónotuðu húsnæði
·     Markaðssetja vinnufrið og náttúru
·     Efling námsmöguleika
·     Vaxandi þekkingarsamfélag
·     Tækniframfarir – margmiðlun sem mætti nýta til kynningar
·     Menningarvefur – gagnabanki, atburðadagatal o.s.frv.
·     Söguleg sérstaða
·     Menningartengd ferðaþjónusta

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón